Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 18
K
aþólska kirkjan,
frumkirkjan, er
sveipuð leyndar-
dómum og dular-
fullum sögum um
leynireglur og því er
kannski ekki skrítið að samsæris-
kenningasmiðir fái sitthvað fyrir
sinn snúð í sögu hennar og menn-
ingu. Þessar smíðar náðu ákveðnu
hámarki þegar Dan Brown gaf út
bókina Da Vinci lykilinn. Reyf-
arinn um Róbert Langdon og leit
hans að hinu heilaga „graal“, ætt-
lið Jesú og baráttu við leyniregl-
una Opus Dei sló í gegn svo um
munaði. Bókin seldist eins og heit-
ar lummur og voru þeir ófáir sem
töldu að þarna væri um söguleg-
ar staðreyndir að ræða. Í formála
bókarinnar er meira segja látið
að því liggja að svo sé. Da Vinci
lykillinn byggir allt sitt á fræði-
rritinu The Holy Blood and the
Holy Grail en í bókinni kristall-
aðist kannski hvað best þessi trú
manna um mannlegt eðli Jesú, að
hann hefði átt í ástarsambandi
við Maríu Magdalenu og að þau
hefðu uppskorið ávöxt ástar sinn-
ar. Enda, hvað er mannlegra held-
ur en að verða ástfanginn?
Margir kirkjunnar menn hugsa
með hryllingi til þessara vinsælda
og var kaþólska kirkjan þar fremst
í flokki enda hefur hún predikað
skírlífi presta frá upphafi og vísað
þar til afneitunar Jesú Krists á
holdlegu lífi með hinu kyninu.
Hann helgaði sig guði og andanum
en ekki efninu og syndum þess.
Þó að fárið í kringum Brown og
bók hans hafi að einhverju leyti
sjatnað hefur leikstjórinn Camer-
on hleypt nýju lífi í þessar kenn-
ingar um tilhugalíf Jesú Krists.
James Cameron er flestum kunn-
ur fyrir kvikmyndir sínar um Tor-
tímandann og Titanic en að undan-
förnu hefur hann einbeitt sér að
gerð heimildarmynda. Hann og
ísraelski kvikmyndagerðarmaður-
inn Simcha Jacobovici fóru saman
og rannsökuðu grafhýsi sem ísra-
elskir fornleifafræðingar fundu
árið 1980 í Talpiot-hverfinu í Jer-
úsalem. Í grafhýsinu voru tíu kist-
ur og á nokkrum þeirra voru hebr-
esku nöfnin Yeshu Ben Yossef
(Jesús sonur Jósef), Yehuda Bar
Yeshu (Jósef sonur Jesús), Marta
og Myriam (María) rituð, en þessi
nöfn eru öll vel þekkt úr Nýja
testamentinu. Fundurinn og kvik-
myndin vöktu athygli heimspress-
unnar enda þykir ætíð spennandi
þegar nýtt sjónarhorn er dreg-
ið fram um líf Jesú Krists. Þótt
flestir fræðimenn skelli skolla-
eyrum við yfirlýsingum Camer-
ons og telji þetta slagorðaglam-
ur vekur hann þó upp óþægileg-
an draug í herbúðum kirkjunnar
og krefur hana um svör við spurn-
ingum sem henni hefur reynst erf-
itt að svara:. Er það mögulegt að
Jesús hafi getað orðið ástfanginn,
jafnvel elskað konu, þau haft lík-
amlegt samneyti og eignast börn?
Spurningarnar hleypa ímyndunar-
aflinu á flug. Væri það ekki spenn-
andi ef afkomendur Jesú sjálfs
og Maríu Magdalenu væru meðal
oss og að kannski væru þau með
erfðamengi guðs? Ekki að furða
þótt samsæriskenningasmiðir og
skáld nýti sér þessa óvissu í verk-
um sínum og hljóti miklar vin-
sældir fyrir.
Með fullyrðingum James Cameron
í heimildarmyndinni, The Lost
Tomb of Jesus, er þó gengið mjög
nálægt grunnstoðum kristinn-
ar trúar. Jesús Kristur lifði og dó
fyrir mannkynið og ef gröf hans
og hvað þá fjölskyldu væri fundin
þýddi það að frelsarinn hefði alls
ekki dáið fyrir syndir mannanna
heldur jafnvel verið spámaður
sem hefði látið sig hverfa eftir að
hafa komið boðskap sínum á fram-
færi. „Reyndar er staðurinn þar
sem Cameron segist hafa fund-
ið gröf Jesú og fjölskyldu hans
mjög hlægilegur. Jósifus, þekktur
sagnaritari í Jerúsalem um árið
75, minnist á Jesú í sínum ritum
og hefði vafalítið látið þess getið
hvar hann hefði verið grafinn en
því var ekki að heilsa,“ segir Þór-
hallur Heimisson, sóknarprestur í
Hafnarfjarðarkirkju, sem um ára-
bil hefur kennt Íslendingum sög-
urnar á bak við samsæriskenn-
ingarnar um Jesú og þá ekki síst
fræðin á bak við hina vinsælu bók
Dans Brown um Da Vinci lykilinn.
„Við þetta bætist að andstæðing-
ar kristinnar trúar á fyrstu árum
frumkirkjunnar hefðu vafalítið
nýtt sér þessa vitneskju og farið
með fylgismenn trúarinnar að
þessum stað þar sem Jesús var
grafinn og einfaldlega sýnt þeim
líkið,“ bætir Þórhallur við.
Í guðspjöllunum er sagt frá því
þegar Jesús reis upp frá dauðum
og birtist lærisveinum sínum á
þriðja degi. „Jesús leyfði þeim að
þreifa á sárum sínum og borðaði
með þeim. En þeir sáu líka að hann
var eitthvað öðruvísi og hann gat
horfið fyrirvaralaust,“ útskýrir
Þórhallur. Þessi líkamlega upprisa
Jesú er einn af grunnþáttum krist-
innar kenningar og að lík Jesú hafi
horfið úr gröfinni forðum daga
skiptir kirkjuna miklu máli. En
þeir eru ófáir sem hafna þessu og
telja þetta hina mestu firru. Fund-
ur á borð við þann sem Cameron
segist kynna í myndinni ýtir enn
frekar undir þá skoðun þeirra að
Jesús hafi ekki verið guð, holdi
klæddur á jörðinni, heldur ein-
faldlega mjög víðsýnn og réttsýnn
maður. „Reyndar hélt þýski guð-
fræðingurinn Bultman því fram
að Jesús skipti í raun ekki höfuð-
máli heldur væri það í raun boð-
skapur Nýja testamentisins sem
væri aðalmálið. Þetta naut mikilla
vinsælda um tíma en síðan hefur
þessum fræðum verið lítill gaum-
ur gefinn,“ segir Þórhallur.
Hann segir að vissulega hafi það
reynst kirkjunni erfitt að sam-
þætta þessi tvö eðli, að Jesús væri
bæði guð og maður. Og nóg er til
af dæmum til að gefa samsæris-
kenningum byr undir báða vængi.
Vinsælast hefur verið að vitna
til síðustu orða Krists á krossin-
um. „Faðir, hví hefur þú yfirgef-
ið mig.“ Og klókir menn hafa bent
á að ef Jesús væri guð af hverju
hann væri þá að ákalla sig sjálfan.
„En hann sýnir á sér mjög mann-
legar hliðar í Nýja testamentinu.
Jesús grætur og hann er reið-
ur, í raun mjög tilfinningaheitur
maður,“ segir Þórhallur. „Og því
er í raun ekkert sem útilokar að
Jesús hefði getað orðið ástfang-
inn,“ bætir hann við. „Það voru
hins vegar heittrúaðir menn í forn-
öld sem töldu að það væri vont að
vera giftur, vont að eiga líkamlegt
samneyti við aðra manneskju. Og
þaðan kemur kannski þessi mi-
skilningur. Ekkert í Biblíunni úti-
lokar að Jesús hefði getað eignast
fjölskyldu,“ segir Þórhallur.
Hann segir þó að kirkjan hafi
lengi vel þráast við að svara spurn-
ingum um ástalíf Jesú Krists,
sumir hafi fordæmt þær og dæmi
séu um það í Bandaríkjunum að
bækur sem héldu þessu fram hafi
verið brenndar. „En margir innan
kirkjunnar taka þessum samsæris-
kenningum sem áskorun. Kannski
hefur stofnunin gert of mikið af
því að yppa öxlum og talið að þessi
áhugi á Jesú ætti eftir að dvína,“
segir Þórhallur. „En þetta ber vott
um mikinn áhuga hjá fólki Þetta
eru ekki bara menn sem vilja
koma höggi á kirkjuna heldur er
þetta andlegur áhuga og ástríða
fyrir að ræða þessi mál. Kirkjan
mætti gera meira af því að tala um
þetta,“ segir Þórhallur. Hann telur
ólíklegt að raddir um ástir Jesú
og Maríu komi einhvern tímann
til með að þagna. „Þegar ég fór í
nám til Svíþjóðar í almennri trúar-
bragðafræði fyrir fimmtán árum
var bara slegið létt á öxlina á mér
og sagt að þetta æði myndi ganga
yfir,“ segir Þórhallur. Þegar hann
fór svo að kenna á námskeiðum
um Da Vinci lykilinn og kenningar
bókarinnar komu sömu menn og
töldu að þetta myndi ekki endast
lengi. „En í dag hef ég prentað yfir
fimm hundruð bæklinga frá ára-
mótum og það er alltaf jafn þétt-
setið á námskeiðunum,“ útskýrir
Þórhallur. „Þetta hefur ef til vill
hleypt nýju lífi í áhuga á krist-
inni trú og það verður kirkjan og
kristnin að nýta sér.“
Ástir Jesú
Krists og örlög
Þó að í hugum flestra kristinna manna sé Jesús
Kristur heilagur maður hafa ýmsar kenningar,
og samsæriskenningar, um líf hans verið vinsæl-
ar meðal fræðimanna og ekki hvað síst meðal
skáldsagnahöfunda. Nýverið bættist bandaríski
kvikmyndaleikstjórinn James Cameron í þann
hóp og taldi sig hafa fundið gröf Jesú og fjöl-
skyldu hans. Freyr Gígja Gunnarsson skoðaði mál-
ið og ræddi við Þórhall Heimisson um þennan
lífseiga orðróm um ástir og örlög frelsara mann-
kyns.