Fréttablaðið - 18.03.2007, Síða 82

Fréttablaðið - 18.03.2007, Síða 82
 Kvennastarfið í körfu- boltanum í Haukum hefur verið frábært undanfarin ár og á dög- unum urðu Haukar fyrstir til að vinna alla fimm bikartitlana sem keppt er um í kvennaflokki. Ein stúlka úr Haukum skrifaði nafn sitt á spjöld sögunnar því hún spilaði með öllum fimm flokkum Hauka. Þetta er Guðbjörg Sverris- dóttir, 14 ára yngri systir Helenu Sverrisdóttur, fyrirliða Íslands og bikarmeistaranna. Þetta einstaka afrek verður seint jafnað enda þarf margt að fara saman, sama félag verður að vinna alla bikara og að leikmaður í 9. flokki verður að vera það góður að hann komist í liðið í meistaraflokki félagsins. „Þetta var þreytandi en ég hefði alveg geta spilað einn leik í við- bót,“ segir Guðbjörg sem þurfti að harka af sér seinni daginn eftir að hafa meiðst illa á ökkla. „Það er mikil reynsla að fá að spila með þessum eldri stelpum. Ég reyni að gera mitt besta. Í eldri flokkunum er ég meira að spila á kantinum en í mínum flokki þá er ég leik- stjórnandi,“ segir Guðbjörg. „Ég hef hæðina til að spila inni í teig og boltatæknina til að spila leik- stjórnanda þannig að ég ætla ekk- ert að stefna á að spila ákveðna stöðu. Ég finnst það langbest að fá að spila margar stöður og finnst best að vera ekki föst í ákveðnu hlutverki,“ segir Guðbjörg. Guðbjörg jafnaði einnig árang- ur systur sinnar frá árinu 2002 þegar Helena Sverrisdóttir var einnig valin best í í bikarúrslita- leikjum 9. og 10. flokks. Guðbjörg var með 26 stig, 15 fráköst, og 7 stolna bolta á 22 mínútum í 55-23 sigri Hauka á Hamar/Selfoss í úr- slitaleik 9. flokks og 36 stig, 12 fráköst, 11 stolna bolta og 4 varin skot í 62-57 sigri í framlengdum úrslitaleik 10. flokks gegn Hruna- mönnum. Guðbjörg komst ekki á blað í leikjum stúlknaflokks og unglingaflokks en var með 13 stig og 12 fráköst í sigri stúlknaflokks- ins í undanúrslitunum. Guðbjörg spilaði síðan í 4 mínútur í bikarúr- slitaleik meistaraflokks. Guðbjörg kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu og foreldr- ar hennar eru mjög virk í starfinu í Haukum. Þau mæta á alla leiki og styðja vel við bakið á krökkun- um sínum. „Það er erfitt að æfa svona mikið en ég fæ alltaf mikla hjálp frá foreldrunum og nánustu vinum,“ segir Guðbjörg og hún segist ennfremur hafa verið mjög spennt að fá að spila með eldri systur sinni áður en hún færi út í háskólanám. „Ég var að reyna að komast í meistaraflokkinn í vetur þannig að ég gæti spilað með henni áður en hún færi út. Mér langar líka að fara út í skóla í Bandaríkj- unum,“ segir Guðbjörg. „Mig langar mest að bæta mig í vörninni og verða jafngóð og Pál- ína. Vörnin er aðalmálið,“ segir Guðbjörg sem hefur verið sett til höfuðs bestu leikmönnum and- stæðinganna á þeim mínútum sem hún hefur fengið að spreyta sig í meistaraflokknum í vetur. Guðbjörg er ekkert hætt því framundan eru lokaúrslit Ís- landsmótsins. Guðbjörg gæti þar bætt við nokkrum titlum en þó ekki nema fjórum af því að ekki er keppt á Íslandsmóti unglinga- flokks kvenna þar sem ekkert félag lagði í Haukana í vetur sem voru þeir einu sem skráðu sig í mótið. Haukastúlkan Guðbjörg Sverrisdóttir er fyrsta alla íslenskra körfuboltamanna bikarmeistari í öllum fimm flokkunum sem keppt er í í bikarkeppni körfunnar. Ágúst Björgvins- son þjálfar Guðbjörgu í þremur flokkanna, meistaraflokki, ungl- ingaflokki og stúlknaflokki. Ágúst hefur mikla trú á Guðbjörgu og hefur tekið hana inn í meistara- flokkinn í vetur. „Hún er rosalega fjölhæf og hefur verið mjög dugleg undan- farin sumur,“ segir Ágúst. En hverjir eru helstu kostir hennar? „Hún er alhliða leikmaður og mjög góður varnarmaður. Hún skil- ur leikinn mjög vel bæði varnar- og sóknarlega. Á seinni árum hefur hún síðan verið að taka ennþá meiri ábyrgð á sig. Hún sýndi það þessa bikarhelgi að hún getur tekið virkilega af skarið,“ segir Ágúst sem hefur unnið mikið með systur hennar, Helenu Sverrisdóttur. „Það er margt líkt og jafnframt margt ólíkt með þeim. Ég kynnist Helenu á mjög svipuðum aldri og hef ágætis samanburð. Þær voru báðar rosalega metnaðargjarnar á þessum aldri. Guðbjörg á eftir að verða stærri og á ekki eftir að verða alveg jafnmikill leikstjórn- andi og Helena. Hún á eftir að verða mikill skorari og sterkur varnarmaður,“ segir Ágúst. En það er ekki alltaf auðvelt að skara fram úr svona ung. „Hel- ena hefur fengið mikla gagnrýni og fær mikla gagnrýni enn í dag. Hún fékk mikla gagnrýni á þess- um aldri sem Guðbjörg er á núna. Gugga er þegar byrjuð að fá mikla gagnrýni og þar koma foreldr- ar þeirra tveggja inn því þau hafa hjálpað þeim mikið að vinna úr öllu álaginu sem er sett á þessar stelpur. Ég veit að það mun hjálpa Guðbjörg ótrúlega mikið að eiga skilningsríka og góða foreldra,“ segir Ágúst. Fjölhæf og góð í vörninni Almenn störf á framleiðslusviði Duglegir og samviskusamir starfsmenn óskast á 12 og 8 tíma vaktir í kerskála, steypuskála og skautsmiðju. Störfin eru fjöl- breytt og tækifæri gefast til að öðlast mikilvæga starfsþekkingu. Jafnrétti Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna til að starfa hjá Norðuráli. Hvernig sækir þú um? Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 26. mars næstkomandi. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg og Guðný Sævinsdóttir hjá Hagvangi í síma 520 4700. Farið verður með umsókn þína og allar persónulegar upplýsingar sem trúnaðarmál. Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is Norðurál Hjá okkur starfa nú um 400 manns að margvíslegum verkefnum. Norðurál framleiðir árlega 220.000 tonn af áli til útflutnings og unnið er að stækkun álversins sem felur í sér að framleiðslugetan verður aukin í 260.000 tonn á þessu ári. Störf hjá Norðuráli Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar hjá Norðuráli
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.