Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 86

Fréttablaðið - 18.03.2007, Page 86
Reitti andlegan leiðbeinanda til reiði Jude Law kemur til landsins um næstu helgi. Þetta hefur Frétta- blaðið eftir áreiðanlegum heimild- um. Hann hefur þegar pantað sér herbergi á 101 hótel þar sem hann dvaldi síðast og hyggst skoða næt- urlífið aðeins betur en þá og jafn- vel einnig fara út á land. Sam- kvæmt upplýsingum Fréttablaðs- ins mun leikarinn dveljast hér í nokkra daga enda hefur hann gjörsamlega fallið fyrir landi og þjóð. Eins og Fréttablað- ið greindi frá hefur þessi ferð Law staðið til um þó nokkurn tíma og ætlar breski sjar- mörinn að skilja börn- in sín þrjú eftir heima en tekur þess í stað nokkra góðvini með sér. Ekki hefur fengist upp- gefið hvort það séu einhverjir þungavigtarmenn úr bresku skemmtanalífi en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er ekki loku skotið fyrir að leikarar á borð við Ewan McGregor og Johnny Lee Miller slæðist með. Ef marka má fréttir er- lendu slúðurpressunnar þá gæti allt eins verið að Law fetaði í fótspor Leonardos DiCaprio og tæki með sér nýju kærustuna sem er samkvæmt nýjustu fréttum glam- úrgellan Lindsay Lohan. Ástamál Law hafa lengi verið á milli tann- anna hjá gulu pressunni og er skemmst að minnast storma- sams sambands leikarans og Siennu Miller. Law var hér á landi fyrir tæpum mánuði og var það í þriðja sinn sem hann heimsækir Ísland. Honum tókst að láta lítið fyrir sér fara en skellti sér meðal annars í sund og á skauta í Laugadaln- um og reið út með Ís- hestum í Hafnafirði ásamt krökkunum sínum. Þá fór fjöl- skyldan í skoðunar- ferð um Latabæ. Jude Law kemur í næstu viku „Það er alltaf góð tilfinning að vera við hliðina á Ragga Bjarna. Hann er svo hress og kátur og bjartsýnn og það er svo mikil gleði og birta yfir karlinum,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri um vin sinn til tuttugu ára og núver- andi söngfélaga. Þeir félagar hafa vakið mikla at- hygli síðan þeir byrjuðu að troða upp saman á hjúkrunarheimilum og félagsmiðstöðvum í Reykjavík. Þeir hafa sungið á styrktartónleik- um í Grafarvogskirkju fyrir fram- an átta hundruð manns, auk þess sem þeir vöktu mikla lukku á stór- tónleikum í Háskólabíói á dögun- um. Sat Vilhjálmur þá á fremsta bekk þegar Raggi skoraði á hann að stíga á svið og taka lagið með sér og hinni berfættu Eivöru Páls- dóttur. Sungu þau í tvígang slagarann „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig“ og fóru meðal annars út í sal til áheyrenda. Áttu þau ekki í vandræðum með að bæta stemn- inguna, sem var þó mikil fyrir. „Ég varð við áskor- un Ragga. Við höfum tekið þetta lag saman nokkuð oft þannig að ég hafði ekkert fyrir því að syngja það,“ segir Vilhjálmur. Undirleikari var útvarpsmaðurinn geðþekki Þorgeir Ástvaldsson. Raggi Bjarna ber Vilhjálmi jafnframt vel söguna og minn- ist þess sérstaklega er þeir sungu saman í sextugsafmæli Vil- hjálms. Hann segir að borgarstjórinn sé þrælgóður söngv- ari. „Hann er ekki vanur að syngja mikið en hann yrði ágætis söngvari ef hann gefði sér tíma í það því hann er lagviss maður,“ segir Raggi. Auk „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig“ hafa verið á efnisskrá þeirra lög á borð við Játning, Komdu í kvöld og Suður um höfin. Má því segja að Vilhjálm- ur sé kominn með töluverða reynslu úr skemmtanabransan- um. „Ég söng í gamla daga í Verslunarskóla- kórnum og hef alltaf haft mjög gaman af söng. Mér finnst mjög viðeigandi þegar ég er í kirkju að syngja með. Ég hlusta líka töluvert á nútímatónlist og sumum finnst það sérkennilegt að sextugur maður þekki þessi lög. Ég hef gaman af fallegri og svona þægilegri og lýr- ískri tónlist með góðum melódíum. Eins og lagið sem Eiríkur brúni, eða rauði, ég veit ekki alveg hvort það er, syngur,“ segir hann í léttum dúr og vísar þar í breyttan hára- lit Eiríks Haukssonar í nýju mynd- bandi við Eurovision-lagið „Ég les í lófa þínum.“ Hefur Vilhjálmur fulla trú á að lagið nái langt í Hels- inki í vor. „Ég held að það venjist mjög vel. Það er góður taktur í því. Það var svolítið „irriterandi“ fyrst en þegar maður heyrir það oftar er það miklu aðgengilegra. Það er fínn stígandi í laginu.“ Vilhjálmur ætlar sér ekki að skorast undan ef Raggi óskar aftur eftir kröftum hans á tónleik- um svipuðum þeim í Háskólabíói: „Ég mun aldrei bregðast Ragga ef hann kallar á mig.“ „Ég lærði að maður þarf ekkert að taka neitt ef maður tilheyrir yfirstétt á Íslandi, þarf ekki að sinna kvaðningu um að mæta sem vitni í sakamáli. Hvað þá að gefin sé út handtökuskipan á viðkomandi lögum samkvæmt. Nú ætla ég að gerast yfirstétt.“ SUNNUDAGUR 18.MARS TJARNARBÍÓISKRÁNINGSTENDUR YFIR FILMFEST.IS (The Cranes Are Flying / Letyat zhuravli) (RUS), Mikheil Kalatozishvili, 1957. (East of Eden), (USA), Elia Kazan, 1955. KLUKKAN 15.00 KLUKKAN 19.00 KLUKKAN 21.00 AUSTAN VIÐ EDEN (East of Eden), (USA), Elia Kazan, 1955. AUSTAN VIÐ EDEN TRÖNURNAR FLJÚGA (James Dean: Forever Young) (USA), Michael J. Sheridan, 2005. KLUKKAN 17.15 EILÍF ÆSKA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.