Fréttablaðið - 20.04.2007, Side 29
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson, leikari og leikstjóri, er
mikill villimaður í eldhúsinu. Hans uppáhaldsréttur
er villimanna-sushi.
Guðjón hefur einfaldan smekk þegar kemur að mat. Hann
á að vera einfaldur, fljótlegur og helst hrár. „Villimanna-
sushi er lýsandi réttur fyrir þessa stefnu mína,“ segir Guð-
jón. „Maður tekur laxaflak og úrbeinar það, roðhreinsar og
sker í bita. Með bitunum ber maður fram fullt af wasabi,
sojasósu, smá af engifer og piparrót.“
Matreiðsluleiðbeiningar Guðjóns eru einfaldlega að éta
matinn eins og hann kemur. „Ég vil helst hafa allt á stórum
diski svo allt sé til taks. Smyrja sósu og wasabi á laxinn og
piparrótinni og engiferinu með,“ segir Denni og bætir við
með kaldhæðnum tón: „Mér finnst best að taka rótina sér og
reyni að sýna mikla karlmennsku og borða mikið af henni
án þess að grenja. Ég er að verða betri og betri í því.“
Matinn borðar Guðjón með pinnum eða einfaldlega putt-
unum. „Það er langbest. Svo verður maður helst að vera ber
að ofan og fara bara í sturtu eftir matinn,“ bætir hann við
og hlær.
Ástæðurnar fyrir fljótheitunum í eldamennskunni eru
ærnar. Mikið hefur verið að gera hjá Guðjóni upp á síðkast-
ið en hann hefur bæði verið að leika og leikstýra auk þess
að vinna fulla dagvinnu. „Við vorum að enda við að frum-
sýna Examinasjón sem heppnaðist mjög vel,“ segir Guðjón.
„Leikararnir bjuggu verkið til sjálfir og það er alveg drep-
fyndið. Ég mæli með að fólk kíki á www.myspace.com/stu-
dentaleikhusid og kynni sér málið.“
Best að snæða ber að ofan
90% heimila ná Sirkus TV á ADSL kerfinu, Breiðbandinu, Digital Ísland
en einnig er hægt að ná Sirkus TV með venjulegu UHF loftneti
ALLT UM
HOLLYWOOD
ENTERTAINMENT TONIGHT
OG INSIDER