Fréttablaðið - 29.04.2007, Síða 1
59%
36%
0% F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars 2007.
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
allt landið
Sunnudagur
Blaðið
30
10
20
40
0
50
60
www.xf.is
AFNEMUM TEKJUTENGINGU
VIÐ MAKA ÖRYRKJA
Menn búast við að fjör
verði á uppboðinu sem Gallerí
Fold stendur fyrir á Hótel Sögu í
kvöld. Þar verða boðin upp ríf-
lega 130 verk af ýmsu tagi og
þurfti að taka á fimmta tug verka
af uppboðsskránni vegna góðs
framboðs.
Á verkaskránni í kvöld eru
fyrirferðarmikil verk eftir stóru
kanónurnar í íslensku olíumál-
verki: hæst er metin olíumynd
frá 1918 eftir Jóhannes Kjarval
af skútu í kvöldskini og er mats-
verð 5-6 milljónir. Svo gamlar
myndir eftir Kjarval eru fágæt-
ar. Þar er einnig að fá olíuverk
eftir Þórarin B. Þorláksson frá
1910 metið á 3,5 til 4 milljónir,
Blómauppstilling eftir Jón Stef-
ánsson, sem er metin nokkuð
hærra, og eina af mörgum Húsa-
fellsmyndum Ásgríms Jónssonar
sem metin er á 3 til 3,5 milljónir.
Þá hafa vakið nokkra athygli
litlar dúkristur eftir Svavar
Guðnason sem hann vann í Kaup-
mannahöfn 1941 en dúkristur
hans eru afar fáar. Um 30 list-
munir eru að auki á uppboðinu.
Leirverk eftir Guðmund frá Mið-
dal þar á meðal. Í auglýsingum
Gallerís Foldar af uppboðinu
hefur borið á árituðu printi eftir
Andy Warhol frá 1965 og þrykk-
verkum eftir Dieter Roth og
Richard Serra. Dieter er þekktur
hér á landi og þrykk eftir hann
hafa oft sést áður á uppboðum
Foldar. Þetta mun þó í fyrsta sinn
sem verk eftir Serra er til kaups
hér á landi en hann er kunnastur
hér fyrir Áfanga, útilistaverk sitt
í Viðey. Þá er einnig á uppboðinu
ljósmynd eftir Cindy Sherman.
Mun þetta vera í fyrsta sinn sem
verk eftir Sherman, Serra og
Warhol eru til sölu á opinberu
uppboði hér á landi en þau eru öll
virtir og mikilsmetnir listamenn
vestanhafs og víðar um lönd.
Uppboðið hefst í Súlnasalnum
kl. 18.45 í kvöld.
Kjarvalsverk
frá 1918 til sölu
Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins er nú 40,6 prósent sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Í öðrum könnun-
um blaðsins hefur verið hringt í
800 manns en nú var hringt í 3.600
manns, 600 í hverju kjördæmi.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnk-
ar eilítið frá síðustu viku og fengi
flokkurinn 27 þingmenn kjörna.
Framsóknarflokkurinn mælist
nú með 10,1 prósents fylgi og fengi
sex þingmenn kjörna. Allir þing-
mennirnir kæmu frá landsbyggðar-
kjördæmunum þremur, sem þýðir
að Jón Sigurðsson, Jónína Bjart-
marz og Siv Friðleifsdóttir myndu
ekki ná kjöri. Sæunn Stefánsdóttir,
ritari Framsóknarflokksins, segir
að þessar tölur yrðu ekki ásættan-
legar í kosningum. „Sem betur fer
eru enn tvær vikur til þeirra.
Þannig að nú er það okkar að fara
um og tryggja að við fáum inn
mann í hverju kjördæmi hér á Suð-
vesturhorninu.“
Fylgi Frjálslynda flokksins er
nú 5,4 prósent, aðeins meira en í
síðustu viku, og fengi flokkurinn
því þrjá þingmenn kjörna. Allir
þingmennirnir yrðu jöfnunar-
menn. Varaformaður flokksins,
Magnús Þór Hafsteinsson, sem
býður sig fram í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður, kæmist ekki á þing.
Þrátt fyrir það er Magnús bjart-
sýnn. „Það er hálfur mánuður í
kosningar þannig að ég held að við
eigum eftir að bæta við okkur. En
það eru náttúrulega kjósendur
sem ráða. Við pöntum auðvitað
ekki fylgi.“
Samfylking mælist nú með 22,5
prósenta fylgi, aðeins meira en í
síðustu viku, og fengi því fimmtán
þingmenn kjörna.
Fylgi Vinstri grænna dalar örlít-
ið frá síðustu viku og mælist nú
18,0 prósent og fengi flokkurinn
því tólf þingmenn kjörna, þar af
sjö af höfuðborgarsvæðinu. Þeirra
á meðal er Paul Nikolov, sem yrði
þá eini innflytjandinn á þingi.
Katrín Jakobsdóttir, varafor-
maður Vinstri grænna, segir
ánægjulegt að flokkurinn mælist
hvað eftir annað með tvöfalt kjör-
fylgi. „Það yrðu nú aldeilis tíðindi
til næsta bæjar, að fá fyrsta inn-
flytjandann inn á þing. Það myndi
kannski gera þessa innflytjenda-
umræðu á þingi markverðari.“
Þrír ráðherrar Framsóknar
ná ekki kjöri til Alþingis
Framsóknarflokkurinn fær sex þingmenn, samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Formaður Frjálslynda
flokksins er inni en ekki varaformaður flokksins. Innflytjandi yrði meðal tólf þingmanna Vinstri grænna.