Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.04.2007, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 29.04.2007, Qupperneq 11
Fullt tilefni er til að ræða stefnumál stjórnmálaflokk- anna í utanríkis- og alþjóðamál- um nú þegar fáeinar vikur eru til kosninga. Tvennt stendur vissu- lega upp úr í því efni undanfar- in ár. Þátttaka Íslands í ólög- legu árásarstríði í Írak og brott- för Bandaríkjahers frá Íslandi. Nú bætist við nýr hernaðarsamn- ingur við Noreg sem vekur óneit- anlega hugrenningartengsl við Gamla sáttmála 1262. Í aðdrag- anda hans var ekki leitað eftir áliti þjóðarinnar frekar en venju- lega þegar utanríkis- mál eiga í hlut. Það var mikið fagn- aðarefni þegar banda- ríski herinn hvarf af landi brott sl. haust. Ís- lendingar eru best sett- ir án hers, hvort sem hann er innlendur eða erlendur. Satt að segja væri tíma og fjármun- um stjórnvalda betur varið í mörg önnur verkefni á sviði utan- ríkismála en „varnarviðræður“ við hvert einasta land sem hefur áhuga á því. Raunhæft og brýnt verkefni væri að friðlýsa landið og lögsögu þess fyrir kjarnorku- sýkla- og efnavopnum og banna umferð kjarnorkuknú- inna farartækja. Til- laga þess efnis hefur ítrekað verið flutt á Alþingi síðan 1995 en aldrei fengið efn- islega meðferð. Þar hefur herseta Banda- ríkjanna eflaust tafið fyrir. Bandaríkjastjórn hefur aldrei viljað úti- loka að herskip eða flugvélar sem koma í íslenska lögsögu beri kjarnorkuvopn. Núna er herinn farinn og því engin ástæða til að láta tillits- semi við Bandaríkin koma í veg fyrir aðgerðir. Allir eru í orði kveðnu sammála um þá ógn sem stafar af kjarnorkuvopnum – en æsingurinn virðist oft aukast eftir því sem þau eru fjær okkur sjálfum. Við getum sýnt viðhorf okkar til kjarnorkuvopna í verki með því að friðlýsa eigin rann. Annars væri það hrein sýnd- armennska að berjast fyrir af- vopnun annars staðar á hnettin- um. Samhliða þessu þyrfti auð- vitað að beina aukinni athygli að umhverfisöryggi og vernda hafið fyrir úrgangi frá kjarnorkuver- um og herstöðvum. Í aðdraganda Íraksstríðs- ins kom það fram af hálfu ým- issa stjórnarþingmanna að vera Bandaríkjahers á Íslandi skipti sköpum fyrir stuðning íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak. Þjóðin á rétt á því að stjórnar- flokkarnir geri hreint fyrir sínum dyrum og svari því afdráttarlaust hvort vænta megi frekari stuðn- ings við hernaðaraðgerðir Bush- stjórnarinnar. Afstaða Vinstrihreyfingarinn- ar – græns framboðs í þessu máli er skýr: Við höfnum áframhald- andi þjónkun við hernaðarhyggju eins og þá sem birtist í stuðningi stjórnarflokkanna við stríðið í Írak. Atkvæði greitt okkur send- ir skýr skilaboð um afstöðu til Íraksstríðsins og setu Íslands á lista „hinna staðföstu þjóða“. Höfundur er borgarfulltrúi og skipar 2. sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavík norður. Sjálfstæð utanríkisstefna Mikils mis-skilnings gætir í mál- flutningi stjórn- arandstöðunnar, þegar hún lætur að því liggja, að eftir 5 ára kyrr- stöðu í fjárfest- ingum í orku- kræfum iðn- aði verði unnt að taka upp þráðinn við sömu fjár- festa, þar sem frá var horfið. Ekk- ert er fjær lagi en að fjárfestar sitji með hendur í skauti og bíði þess, að valdhöfum í stjórnmálum á Íslandi þóknist að leyfa samninga um stór- iðju. Fjárfestarnir munu freista gæfunnar annars staðar í heimin- um í stað þess að bíða. Sveltur sitjandi kráka, en fljúg- andi fær. Hið sama á við um fjár- festana. Þeir eiga á hættu að tapa markaðshlutdeild, ef þeir bíða í 5 ár; hvað þá lengur. Þess vegna yrði valdaskeið núverandi stjórnarand- stöðu tímabil hinna glötuðu tæki- færa. Þjóðarbúskapurinn íslenzki yrði af um 200 milljörðum króna á slíku stöðnunarskeiði, og er þá að- eins reiknað með því erlenda fé, sem mundi streyma um æðar ís- lenzks efnahagskerfis vegna fjár- festinga í virkjunum fyrir álver og í álverunum sjálfum. Miðað er við hóflegan uppbyggingarhraða, sem íslenzka efnahagskerfið ræður við án verðbólgu. Þetta jafngildir því, að stjórnmálamenn forræðishyggj- unnar hafi með handstýringu sinni og úreltum vinnubrögðum haft eina milljón króna í tekjuaukningu af hverjum einasta launþega í landinu. Sameignarsinnarnir yrðu lands- mönnum miklu dýrari en þetta, kæmust þeir til valda eftir kosn- ingarnar 12. maí 2007. Þeir væru með sínu „stóriðjustoppi“ búnir að stórskaða trúverðugleika ís- lenzkra yfirvalda í samskiptum við fjárfesta. Trúnaðarbrest tekur langan tíma að bæta fyrir. Þá er og líklegt, að sameignarsinnarn- ir í Samfylkingu og VG færu að föndra við skattakerfið með þeim afleiðingum, að allir bæru skarð- an hlut frá borði; ríkissjóður, fjár- magnseigendur og launþegar. Slíkt er ávísun á samdrátt efna- hagslífsins, skuldasöfnun hins op- inbera og gengissig. Hafa þá skap- azt aðstæður fyrir verðbólgu, og í heild gætu landsmenn undir nýrri vinstri stjórn setið uppi með dýr- tíð og kreppu (e. „stagflation“). Sameignarsinnarnir á Íslandi skilja hvorki gangverk viðskipta- lífsins né efnahagslífsins. Forystumenn vinstri manna eru hugmyndafræðilegar fornaldar- eðlur, sem engan veginn er þor- andi að hleypa inn í Stjórnarráð- ið. Þeir boða stjórnunaraðgerðir, sem henta ekki frjálsu efnahags- kerfi í heimsviðskiptum, en þóttu nothæfar, þegar stjórnmálamenn ginu yfir atvinnulífinu. Höfundur er verkfræðingur. Glötuð tækifæri BÆTUM KJÖRIN BURT MEÐ FÁTÆKT BARÁTTUDAGUR VERKALÝÐSINS 1. MAÍ VG Í REYKJAVÍK Á NASA Dagskrá byrjar 15:00 Katrín Jakobsdóttir flytur barátturæðu Steinunn Þóra Árnadóttir flytur ávarp Sigríður Kristinsdóttir flytur ávarp Einar Már Guðmundsson rithöfundur les Kvartettin Krummafótur með alþjóðlega tóna VG Í KÓPAVOGI, KOSNINGAMIÐSTÖÐINNI HAMRABORG 1-3 Dagskrá byrjar 15:00 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir flytur barátturæðu Hljómsveitin Bardukha leikur af alkunnri snilld "Við brún nýs dags" Þorleifur Friðriksson fjallar um verkalýðsbaráttuna Aðalsteinn Ásberg rithöfundur les ljóð Leikararnir Hjálmar Hjálmarsson og Valgeir Skagfjörð flytja leiklestur Guðrún Gunnarsdóttir og Tryggvi Hubner flytja nokkur lög ALLIR VELKOMNIR BARÁTTUTÓNLEIKAR Á NASA KL: 21:00 Pörupiltarnir Hannes og Smári kynna af alkunnri snilld Guðrún Gunnars syngur Ellý Vilhjálms Einar Már flytur skáldskap Toggi - Puppy Dóri DNA Nýstirnin í Johnny and the rest heiðra okkur með nærveru sinni Heiða í Unun með sig heilann sinn Didda Jóns og rakasta sinua Elvis, Didda elskar Elvis ALLT ANNAÐ LÍF! - með vinstri grænum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.