Fréttablaðið - 29.04.2007, Page 4
Tveir menn, annar
26 ára og hinn tvítugur, voru
handteknir um tvöleytið í gær
eftir að hafa rænt handtösku af
sjötugri konu á Grettisgötu.
Konan slapp án nokkurra áverka.
Konan tilkynnti strax um ránið
á lögreglustöðinni við Hverfis-
götu og voru mennirnir hand-
teknir nokkrum mínútum síðar á
gangi á Rauðarárstíg og færðir til
yfirheyrslu. Veskið sem og
innihald þess komst aftur í
hendur eiganda síns.
Að sögn lögreglu eiga báðir
mennirnir nokkurn brotaferil að
baki.
Rændu veski af
sjötugri konu
Landspítali -
háskólasjúkrahús, LSH, fær háa
einkunn í könnun sem Capacent
Gallup hefur gert fyrir LSH.
Langflestir svarenda, eða
tæplega níutíu prósent, bera
mikið traust til spítalans og
ríflega áttatíu prósent telja
þjónustuna góða.
Magnús Pétursson, forstjóri
LSH, er ánægður með útkomuna
og segir starfsmenn fá „ágætis-
einkunn fyrir sín störf enda
leggja þeir sig hér fram meira en
nokkur um að sinna sjúklingum
og aðstandendum vel. Það er
aðalsmerki þessara starfsmanna
og þessarar stofnunar“.
Starfsmenn fá
ágætiseinkunn
Margaret Beckett,
utanríkisráðherra Bretlands, lýsti
í heimsókn til New York í síðustu
viku þeirri hættu sem öryggi
mannkynsins stafar af loftslags-
breytingum sem væri „meiri en af
nokkrum einstökum átökum“.
Sagði hún að ekkert land hefði for-
sendur til að nota þá afsökun að
það myndi skaða efnahagslega
samkeppnishæfni þess að grípa til
ráðstafana til að sporna við gróður-
húsaáhrifunum.
Í ræðu hjá bresk-bandarísku við-
skiptasamtökunum British-
American Business Inc. lagði
Becket áherslu á mikilvægi ábyrgð-
ar einkafyrirtækja á að umbreyta
efnahagslífinu þannig að minna af
gróðurhúsalofttegundum sé losað
út í andrúmsloftið. Hún varaði við
því að hafast ekkert að og áhrifum
aðgerðarleysis á öryggi manna.
Aðalerindi Becket til New York
að þessu sinni var að stýra óform-
legum fundi í Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna, þar sem afleiðingar
loftslagsbreytinganna voru rædd-
ar. Hún varaði þar við átökum sem
loftslagsbreytingar gætu leitt til,
svo sem um aðgang að drykkjar-
vatni og mat.
Ógn við öryggi mannkynsins
Litlar breytingar
eru á fylgi flokkanna frá því í
könnun blaðsins í síðustu viku og
allar breytingar eru innan
skekkjumarka.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
nú með 40,6 prósenta fylgi og
fengi samkvæmt því 27 þing-
menn. Þetta er 0,6 prósentustig-
um minna en fylgi flokksins var í
síðustu viku, en vikmörk mælast
nú 2,0 prósentustig fyrir flokkinn.
Það þýðir að með 95 prósenta
vissu er hægt að segja að fylgi
flokksins sé á bilinu 38,6 til 42,6
prósent.
Fylgið er mun meira á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem flokkur-
inn fengi sextán þingmenn og
mælist með 42,9 prósenta fylgi.
Mest er fylgið í Suðvesturkjör-
dæmi þar sem 48,5 prósent segj-
ast myndu kjósa flokkinn. Þá segj-
ast 45,7 prósent svarenda í
Suðurkjördæmi myndu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn. Minnst fylgi
Sjálfstæðisflokksins er í Norð-
austurkjördæmi, þar sem 29,6
prósent styðja flokkinn. Alls fengi
Sjálfstæðisflokkurinn ellefu þing-
menn kjörna í landsbyggðarkjör-
dæmunum.
Framsóknarflokkurinn fengi
sex þingmenn og kæmu þeir allir
frá landsbyggðarkjördæmunum.
Það þýðir að þrír ráðherrar flokks-
ins; Jón Sigurðsson iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, Siv Friðleifs-
dóttir heilbrigðisráðherra og Jón-
ína Bjartmarz umhverfisráðherra
kæmust ekki á þing. Fylgið mælist
nú 10,1 prósent og skekkjumörk
eru 1,3 prósentustig. Mest er fylg-
ið í Norðausturkjördæmi, þar sem
Valgerður Sverrisdóttir leiðir
lista flokksins. Þar segjast 23,8
prósent myndu kjósa flokkinn.
5,4 prósent segjast nú myndu
kjósa Frjálslynda flokkinn og eru
vikmörk 0,9 prósentustig. Ef það
yrðu niðurstöður kosninga fengi
flokkurinn engan þingmann kjör-
dæmakjörinn, en þrjá jöfnunar-
menn; í Norðausturkjördæmi,
Reykjavíkurkjördæmi suður og
Suðvesturkjördæmi. Varaformað-
ur flokksins, Magnús Þór Haf-
steinsson, næði ekki kjöri.
22,5 prósent segjast nú myndu
kjósa Samfylkingu og fengi flokk-
urinn samkvæmt því 15 þingmenn
kjörna. Þetta er aðeins meira fylgi
en í síðustu viku þegar 20,3 pró-
sent sögðust myndu kjósa flokk-
inn. Vikmörk eru 1,7 prósentu-
stig.
Aðeins fleiri segjast myndu
kjósa flokkinn á höfuðborgar-
svæðinu, eða 23,9 prósent, en þar
fengi flokkurinn níu þingmenn
kjörna. Í landsbyggðarkjördæm-
unum segjast 20,2 prósent myndu
kjósa Samfylkingu og fengi flokk-
urinn þar sex þingmenn kjörna.
Mest er fylgið í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður, 26,4 prósent. Minnst
er fylgið í Suðurkjördæmi þar
sem 18,8 prósent sögðust myndu
kjósa flokkinn.
Fylgi Vinstri grænna heldur
áfram að dala örlítið og segjast nú
18,0 prósent myndu kjósa flokk-
inn, í stað 19,7 prósenta í síðustu
viku, og fengi hann samkvæmt
því tólf þingmenn kjörna. Vik-
mörk reiknast 1,6 prósentustig.
Af þingmönnunum tólf kæmu
fimm frá landsbyggðarkjördæm-
unum þremur þar sem 17,8 pró-
sent segjast nú myndu kjósa
flokkinn, en sjö frá höfuðborgar-
svæðinu þar sem 18,0 prósent
segjast myndu kjósa flokkinn.
Fylgi Vinstri grænna er mest í
Reykjavíkurkjördæmi norður,
22,2 prósent. Minnst er fylgi
flokksins í Suðvesturkjördæmi,
13,0 prósent.
Hringt var í 3.600 manns á
kosningaaldri dagana 23. til 28.
apríl og skiptust svarendur jafnt
eftir kyni og kjördæmum. Niður-
staða hvers kjördæmis var svo
vigtuð til að fá landsfylgi hvers
flokks. Spurt var „Hvaða lista
myndir þú kjósa ef gengið yrði til
kosninga nú?“ 61,4 prósent svar-
enda tóku afstöðu til spurningar-
innar. Hægt er að sjá nánar
hvernig fylgi flokkanna er í
hverju kjördæmi fyrir sig og
hvaða frambjóðendur kæmust á
þing, væru þetta niðurstöður
kosninga á síðu 18.
Meirihlutinn heldur velli
Ríkisstjórnarflokkarnir fengju 33 þingmenn kjörna samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Fram-
sóknarflokkurinn fengi sex þingmenn en Sjálfstæðisflokkur 27. Samfylking fengi fimmtán þingmenn,
Vinstri græn tólf og Frjálslyndi flokkurinn fengi þrjá, en enginn af þeim yrði kjördæmakjörinn.
Þingflokkur
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs fer fram á opinbera
rannsókn á aðbúnaði verkamanna
við Kárahnjúka.
Undanfarið hafa komið fram
ásakanir um vítaverða vanrækslu
Impregilo á vinnusvæðinu og
vilja Vinstri græn að ríkisstjórn-
in kanni hvað hæft sé í þeim.
Vinstri græn segja fram-
kvæmdirnar við Kárahnjúka á
ábyrgð ríkisstjórnarinnar og
erlendum verktökum beri að fara
eftir þeim reglum sem gilda um
réttindi og aðbúnað launafólks í
landinu.
Vinstri græn
vilja rannsókn