Fréttablaðið - 29.04.2007, Page 12
Félagið Einstök börn fagnar tíu ára af-
mæli sínu í dag. „Félagið var stofnað
af þrettán fjölskyldum sem áttu í raun-
inni ekki heima í neinum öðrum starf-
andi félögum,“ sagði Helga Kristjáns-
dóttir, framkvæmdastjóri Einstakra
barna. „Í félaginu eru foreldrar barna
sem eru með það sjaldgæfa sjúkdóma,
að barnið er kannski það eina á land-
inu, og jafnvel í heiminum, sem er með
þann sjúkdóm,“ bætti hún við. Í dag
eiga 137 fjölskyldur aðild að Einstök-
um börnum, sem hefur um 80 mismun-
andi sjúkdóma á skrá.
Helga segist finna mikla sam-
kennd meðal foreldra, þó að börn-
in kljáist við mismunandi sjúkdóma.
„Þegar fólk stendur frammi fyrir því
að það er eitthvað alvarlegt og mikið
að hjá barni þess, þá leitar það auð-
vitað fyrst í fjölskylduna sína. En
síðan finnst manni svo gott að kom-
ast í samband við einhvern sem hefur
svipaða reynslu,“ sagði Helga. „Við
fáum stuðning hvert frá öðru, þó svo
að börnin séu ekki með nákvæmlega
sama sjúkdóm,“ sagði hún.
Félagið styður einnig við bakið á for-
eldrum og hefur til að mynda styrkt
fjölskyldur til að halda á ráðstefnur er-
lendis. „Þótt barnið sé það eina á land-
inu með einhvern ákveðinn sjúkdóm
eru samt oft fjölskylduráðstefnur um
þennan sama sjúkdóm í boði erlendis,“
sagði Helga. „Fólk hefur verið gríð-
arlega ánægt með að geta sótt þær,“
sagði hún.
Félagið hefur nýlega sett á fót ungl-
ingahóp undir handleiðslu Freyju Har-
aldsdóttur.
„Þar geta unglingarnir komið saman
og spjallað um sín mál og notið þess
að vera í umhverfi þar sem fátt þarf
að útskýra,“ sagði Helga, sem segist
finna að starfið sé krökkunum gríðar-
lega mikils virði. Þar fyrir utan stend-
ur félagið fyrir ýmsum skemmtunum
og uppákomum yfir starfsárið. „Við
erum alltaf með ýmislegt í gangi,“
sagði Helga.
Afmælishátíðin í dag fer fram í
Gerplusalnum í Kópavogi á milli 13 og
16. „Hún er aðallega fyrir félagsmenn
og ættingja þeirra, en vinir og velunn-
arar félagsins eru líka velkomnir. Við
erum ekki ríkisstyrkt, svo við erum
háð því að það séu einhverjir velvilj-
aðir í þjóðfélaginu sem vilja styrkja
okkur,“ sagði Helga.
„Í kvikmyndum er leikstjórinn guð.
Í heimildarmyndum er guð leik-
stjórinn.“
Óeirðir í Los Angeles
Ástvinur okkar,
Svavar Guðmundsson
frá Odda á Seltjarnarnesi, starfsmaður
Vífilfells hf.,
lést 13. apríl síðastliðinn á heimili sínu að Seljahlíð.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn
30. apríl kl. 11.00.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Þorgerður Sigurjónsdóttir
Guðrún Þorgrímsdóttir
Útför föður okkar, tengdaföður, afa,
langafa, bróður og mágs,
Skúla Þórðarsonar
fer fram frá Akraneskirkju 30. apríl kl. 14.00.
Bragi Skúlason Anna Þuríður Kristbjörnsdóttir
Hrafnhildur Skúladóttir Ólafur Jón Guðmundsson
Hafdís Skúladóttir Magnús Árnason
Sigríður Birna Bragadóttir Sigurjón Þorsteinsson
Ámundi Steinar Ámundason Hrafnhildur Vala Grímsdóttir
Hafdís Anna Bragadóttir Grímur Arnar Ámundason
Sara Skúlína Jónsdóttir Arnar Már Símonarson
Arnar Ólafsson
Skúli Bragi Magnússon Árni Þórður Magnússon
Bragi Þórðarson Elín Þorvaldsdóttir
Birgir Þórðarson Ása Gústavsdóttir
Hilmar Þórarinsson
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jóhanna Aðalsteinsdóttir
frá Vaðbrekku, Lindasíðu 4, Akureyri,
áður til heimilis á Ásgarðsvegi 15, Húsavík,
er látin. Jarðarförin fer fram frá Húsavíkurkirkju
laugardaginn 5. maí kl. 14.30.
Aðalsteinn Helgason Ágústa Þorsteinsdóttir
Kristjana Helgadóttir Arnar Björnsson
Bjarni Hafþór Helgason Margrét Þóroddsdóttir
Helgi Helgason Anna Guðrún Garðarsdóttir
Ingibjörg Helgadóttir Halldór Benediktsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Guðmundur Þorgeirsson
prófessor var útnefndur
heiðursvísindamaður Land-
spítala – háskólasjúkrahúss
2007 á föstudag. Útnefning-
in fór fram á vísindadag-
skrá við upphaf Vísinda á
vordögum. Við sama tæki-
færi var Sveinn Hákon
Harðarson valinn Ungur
vísindamaður ársins 2007.
Guðmundur Þorgeirs-
son er sviðstjóri lækninga
á lyflækningasviði I á LSH.
Hann útskrifaðist sem
læknir frá læknadeild Há-
skóla Íslands árið 1973. Að
loknu kandídatsári á Land-
spítalanum lagði Guðmund-
ur stund á framhaldsnám
við Case Western Reserve
háskólann í Cleveland og
varði þar doktorsritgerð
sína. Guðmundur hefur
starfað á Landspítalanum
frá heimkomu sinni árið
1982, fyrst sem sérfræð-
ingur í lyflækningum og
hjartasjúkdómum og síðar
sem yfirlæknir á bráða-
móttöku spítalans og yfir-
læknir hjartadeildar. Hann
hefur kennt við læknadeild
Háskóla Íslands og setið í
ritstjórn Læknablaðsins og
erlendra vísindatímarita.
Sveinn Hákon stundar
nú doktorsnám við Háskóla
Íslands. Að loknum þrem-
ur námsárum við lækna-
deild tók Sveinn sér hlé
frá námi. Hann vann þá við
rannsóknir, fyrst á raflíf-
eðlisfræðilegri kortlagn-
ingu á sjónhimnu í rottum
og síðar á súrefnismettun
í augnbotnum, undir hand-
leiðslu Einars Stefánsson-
ar, prófessors í augnsjúk-
dómum.
Vísindamenn
heiðraðir