Fréttablaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 14
D
avíð Þór Jónsson
segist ekki muna
eftir því að hafa
nokkru sinni gert
grín að Önnu K. eða
öðru fólki úr hópi
„transgender“ fólks, þrátt fyrir að
hafa tekið ýmsa minnihlutahópa á
teppið. Anna segir að ef svo væri
myndi hún örugglega ekki hafa
tekið því persónulega, þótt hún
hefði kannski gert það fyrir nokkr-
um árum síðan. En muna þau hvar
þau kynntust fyrst og hvað vita
þau hvort um annað?
Anna: Mín fyrstu kynni af Davíð
voru á Olís-bensínstöðinni við
Álfheima. Hann var að kaupa sér
sígarettur og við fórum að ræða
nýjustu lagafyrirmæli um tak-
mörkun reykinga.
Davíð: Ég man ekki eftir þessu
atviki sem hún er að lýsa en þegar
Anna hefur gefið sig á tal við mig
hef ég sennilega fattað strax hver
hún var enda þjóðþekkt mann-
eskja eftir sína baráttu fyrir til-
verurétti „transgender“-fólks. Svo
höfum við líka hist í gegnum starf
Amnesty International á Íslandi
en við erum bæði félagar þar.
Anna: Já, og þú varaformaður. Ég
hef nú ekki verið nógu dugleg að
mæta á fundina.
Davíð: Nei, en þeim mun duglegri
í bréfamaraþoninu. Og þú mætir
á landsfundinn, sem er (dregur
miða upp úr vasanum) 12. maí, kl.
14.00.
Anna: Jú, ég geri það. Annars veit
ég að mamma Davíðs er fyrr-
verandi flugfreyja og að hann
var í guðfræði. Svo er hann með
vitrustu mönnum í eldri kveðskap
og sagnagerð.
Davíð: Ég segi það nú kannski
ekki.
Anna: Nú, nefndu mér betri sér-
fræðinga?
Davíð: Jæja, jæja. En þeir eru
örugglega margir. Annars veit
Anna miklu meira um mig en ég
um hana enda er hún ættfræðingur,
sem ég er ekki. Ég er dyggur
lesandi bloggsins hennar og þó ég
sé að vísu oft ósammála henni, þá
er ég nú oftar sammála henni. Og
sem vélfræðingur er hún mikil
áhugamanneskja um vélvæðingu
og virkjanir og það er kannski
þar sem við byrjum að vera
ósammála.
Þar sem vélfræðingurinn er að
sjálfsögðu með en guðfræðingur-
inn á móti. En hvað er svona frá-
bært við þessi álver Anna og hvað
hefur þú eiginlega á móti þeim
Davíð?
Anna: Fyrir utan það hvað þau gera
fyrir atvinnulífið þá vil ég nefna
eitt sem mér finnst skipta máli og
vert er að benda á. Sem bæði Alcan
og Alcoa gera og mér finnst að ís-
lensk fyrirtæki mættu alveg apa
eftir þeim en það snertir öryggis-
mál starfsmanna. Öryggisvitund
Íslendinga er nefnilega mjög lítil
en þessi fyrirtæki hafa unnið í því
að efla hana. Má nefna sem dæmi
miðvikudaginn þarsíðasta, þegar
húsin brunnu hér í bæ. Innan um
slökkviliðsmenn sem unnu að því
að slökkva eldinn í þar til gerðum
alvörubúnaði, var lögreglustjóri
vappandi. Með einfalt kaskeiti á
höfðinu! Af hverju var hann ekki
allavega með hjálm? Sama kvöld
varð heitavatnsleki á Vitastíg. Þá
þurfti það fólk sem var að vinna
þar að sjálfsögðu að vera í gúmmí-
stígvélum. Var þá ekki sami lög-
reglustjóri að þvælast þar um á
blankskóm.
Davíð: Mín gagnrýni gegn virkj-
unum beinist svo sem ekki að því
að þetta séu svo vondir menn eða
eitthvað þannig lagað. Mér finnst
einfaldlega hættulegt að öll eggin
séu í sömu álkörfunni og að efna-
hagur þjóðarinnar byggi á þeim
iðnaði. Hvað gerum við ef það
verður verðhrun á áli? Við þurf-
um að dreifa undirstöðum efna-
hagsins á fleiri svið.
Anna: Það má kannski segja að
slíkt hafi gerst á Íslandi, þegar
verðið á fiskinum okkar hrundi
á mörkuðunum vestra árið 1967.
Þannig að jú auðvitað á að hafa
þetta sem fjölbreyttast en ég
er hrifin af Austfjörðum og vil
byggðinni þar vel.
Davíð: Þetta er bara af því að þú
ert svo hrifin af stórum vélum!
Enn og aftur að eftirlætisumræðu-
efni þjóðarinnar. Málfari nútím-
ans. Hvað má minnast á sem betur
mætti fara að þeirra mati?
Anna: Það er varla mitt að dæma
tungutak annarra enda sjálf lítt
menntuð í íslensku með einfalt
stúdentspróf. En ég þoli ekki
þegar fullorðið fólk talar um að
eitthvað sé „ógisslega flott“. Ég
get sætt mig við að Silvía Nótt
geri það, en læt það fara í taug-
arnar á mér þegar slíkt er gert í
Kastljósinu.
Davíð: Óásættanlegt og ásættan-
legt eru orð sem fara mikið í taug-
arnar á mér því að fyrir eigum við
orðin viðunandi og óviðunandi.
Sem eru miklu fallegri orð. Mér
finnst algjör óþarfi að búa til orð
yfir eitthvað sem við eigum nú
þegar til. En þetta hefur alltaf
verið svona – að einhver ný orð
koma inn í málið og slá í gegn.
Ég held að það sé meiri ástæða til
þess að hafa áhyggjur af breyting-
um sem eru að verða á setninga-
skipan og þá sérstaklega þessi
nafnháttarsýki sem er að ryðja
sér til rúms núna. Þetta byrjaði
sem einhver tíska, að segja: Ég er
ekki að skilja þetta, ég er ekki að
fatta þetta o.s.frv. í stað þess að
segja: Ég skil þig ekki, ég fatta
þig ekki. Það er mikið áhyggju-
efni þegar maður heyrir viðtal við
menntamálaráðherra þjóðarinnar
og greinilegt er að hún er þjökuð
af þessum tilburðum.
Og áfram á pirruðu nótunum fyrst
við skiptum yfir í þann gírinn.
Hvaða stjórnmálamaður angrar
ykkur mest og hver er í guða tölu
hjá ykkur?
Davíð: Það er nefnilega svo
merkilegt að sá stjórnmálamað-
ur sem angrar mig mest er starf-
andi stjórnmálamaður, en bara
ekki á Alþingi, heldur í Seðla-
bankanum. Varaformaður Frjáls-
lynda flokksins fer líka mikið í
taugarnar á mér. Allt sem hann
stendur fyrir finnst mér vera
slæmt. Svo er reyndar einn sem
ég hef mjög gaman af en það er
Bjarni Harðarson, sem er í öðru
sæti hjá Framsóknarflokknum í
Suðurkjördæmi. Við erum ósam-
mála um ALLT. Og það skiptir
engu máli hvað það er. Hvort sem
það eru andleg málefni eða heil-
brigðismál. Og mér þykir bara
vænt um það, mjög sætt hrein-
lega.
Anna: Davíð nefnir þann sem er
í öðru sæti. Ég get sagt nákvæm-
lega það sama um þann sem er í
fyrsta sæti: Guðna Ágústsson.
Hann er auðvitað bráðskemmti-
legur en einhvern veginn held ég
að hann geri í því að fara í taug-
arnar á fólk og reyni að vekja ein-
hverjar kenndir hjá manni. Að
eftirlætisstjórnmálamönnum. Ja,
Guðrún Ögmundsdóttir er nú eig-
inlega ennþá í eftirlæti.
Davíð: Já, ég tek undir það. Mér
fannst sú útreið sem hún fékk í
prófkjörinu mjög ómakleg.
Hún var ekta stjórnmálamaður
sem barðist fyrir góðum málum.
Annars gekk ég í Þjóðvakann á
sínum tíma og það var einfald-
lega vegna þess að ég hafði og hef
tröllatrú á Jóhönnu Sigurðardótt-
ur. Ég veit hins vegar ekki með
hennar vitjunartíma. Steingrím-
ur J. er svo auðvitað glæsilegasti
stjórnmálamaður samtímans þótt
mér finnist hann stundum svolítið
gamaldags og forhertur. En sem
karakter ber hann höfuð og herð-
ar yfir aðra stjórnmálamenn.
Anna: Það eru líka nokkrir ungir
stjórnmálamenn sem eru náttúru-
lega ekki enn komnir almennilega
inn í baráttuna. Eins og konan þín
fyrrverandi, Katrín Jakobsdóttir.
Davíð: Já, það er kannski of
snemmt að fara að tala um það
hvað Katrín muni gera í pólitík-
inni. Hún er nokkuð væntanlega á
leiðinni inn á þing, hún er varafor-
maður flokksins og það eru mikl-
ar væntingar til hennar. Það verð-
ur gaman að sjá hvað hún gerir.
En ég myndi vilja nefna Guð-
mund Steingrímsson sem dæmi
um spennandi og óskrifað blað í
pólitík. Betri en pabbi sinn? Ja, ég
er nú kannski ekki dómbær á það.
Hann er allavega í skárri flokki.
Að lokum. Hvar er Íslendingurinn
staddur? Nú braust þú Anna blað
í sögu landsins með því að koma
fram og tala um reynslu þína af
því að fæðast með rangt kyn og
fá leiðréttingu á því? Hvað finnst
ykkur um Íslendinginn – er hann
opinn og víðsýnn eða þarf að berj-
ast gegn fordómum hans?
Anna: Það hefur orðið gjörbreyt-
ing þar á. Ef ég hefði komið fram
í dagsljósið fyrir til að mynda 25
árum hefði ég verið lokuð inni í
gúmmíklefa á Kleppi. 1984 talaði
ég fyrst við geðlækni og honum
datt fyrst í hug að setja mig í
rannsóknir og loka mig inni.
Byltingin hvað varðar þessi mál
er mikið til 78-hreyfingunni að
þakka.
Davíð: Það virðist alltaf vera ein-
hver hópur sem er fordómafullur,
hvar sem þú kemur og Ísland er
engin undantekning þar á. Sjálf-
ur hef ég kynnst börnum sem búa
hér og hafa verið ættleidd frá út-
löndum. Og þessi suðuramerísku
og kínversku börn sem alast hér
upp, tala íslensku og eiga ís-
lenska foreldra, þau virðast ekki
þurfa að þola fordóma. Því held
ég að þetta séu ekki kynþáttafor-
dómar sem slíkir heldur er þetta
miklu frekar útlendingahatur.
Ég man eftir því að þegar kvik-
myndin Gullsandur var tekin
upp var þar strákur sem átti
íslenska mömmu en pabbi hans
var bandarískur blökkumað-
ur. Hann var þarna í einhverri
hópsenu uppi í sveit en hann ber
svip af föður sínum. Strákurinn
og einhver bóndi taka tal saman
og eftir að hafa rætt málin í dá-
góða stund segir bóndinn: Svo þú
ert að leika svertingja í þessari
mynd?
Kynntust á bensínstöð við Álfheima
Anna K. Kristjánsdóttir segist ekki eiga orð yfir hjálm- og stígvélalausan lögreglustjóra, vappandi um, hamfara- og brunadaginn
mikla. Davíð Þór Jónsson segir að hann hefði gefið af sér hægri höndina fyrir talsett barnaefni þegar hann var lítill. Júlía Margrét
Alexandersdóttir leiddi vélstýruna og fjölfræðinginn Davíð Þór Jónsson á rökstóla.