Fréttablaðið - 29.04.2007, Page 32
Vegna aukinna verkefna á sviði hönnunar og skipulags
óskar teiknistofan Landmótun eftir að ráða áhugasamt
starfsfólk með eftirfarandi menntun og/eða starfsreynslu
sem fyrst, í fullt starf:
Landslagsarkitekt. Við leitum að hugmyndaríkum
starfsmanni sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt,
sýnir frumkvæði í starfi og hefur mikinn faglegan
metnað.
Tækniteiknari. Óskum eftir samviskusömum
tækniteiknara, með starfsreynslu á því sviði.
Skipulagsfræðingur. Leitum eftir
skipulagsfræðingi með reynslu af skipulagsvinnu og
áætlanagerð sem á auðvelt með að vinna sjálfstætt.
Byggingafræðingur. Óskum eftir áhugasömum
byggingafræðingi. Reynsla af áætlanagerð,
mannvirkjaframkvæmdum og/eða eftirliti er kostur.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af vinnu í
Autocad eða Microstation, en þó ekki krafa.
Umsóknarfrestur er til 14.maí n.k. og skal umsóknum
skilað á pdf formi til framkvæmdastjóra á netfangið
heidur@landmotun.is. Nánari upplýsingar í síma 575-
5305 og á heimasíðu www.landmotun.is.
Öllum umsóknum verður svarað og fyllsta trúnaðar gætt
við meðhöndlun þeirra.
Umsóknir skilist til Fréttablaðsins
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík,
merkt „Bókari 2007“ fyrir 4. maí 2007.
Bókari