Fréttablaðið - 29.04.2007, Síða 37
www.remax.is Allar RE/MAX fasteignasölur eru sjálfstætt reknar og í einkaeign
www.kubbur.is
Verð: 56,9M
Stærð: 207,4fm
Fjöldi herbergja: 5
Byggingarár: 2006
Brunabótamat: 35M
Bílskúr: innbyggður
Fjóluvellir 3
221 Hafnarfirði
Sérlega glæsilegt og fallega hannað hús á einni hæð með innbyggðum bílskúr á góðum stað á völlunum þar
sem örstutt er í skóla og leikskóla. Forstofa rúmgóð með náttúrusteini á gólfi og mikilli lofthæð. Eldhúsið er
sérlega glæsilegt með sérsmíðuðum innréttingum, vönduðum stáltækjum og span helluborði. Stór eyja með
granít er í eldhúsinu. Stofa og borðstofa eru einstaklega skemmtilegar, bjartar með síðum gluggum og arni.
Tveir útgangar úr stofu út á ca 80fm verönd. 4 svefnherbergi eru í húsinu og 2 glæsileg baðherbergi, annað
með stóru nuddbaðkari og hitt með glæsilegum sturtuklefa. Þvottahús er rúmgott með innréttingu. Allar
innréttingar og skápar eru sérsmíði, innihurðar eru yfirfelldar frá Agli Árnasyni og gólfefni og flísar eru
náttúrusteinn frá Parka. Hiti er í gólfi með þráðlausri hitastýringu. Gluggar eru viðhaldsfríir og húsið er klætt
að mestum hluta með harðvið og steinað. Ekki láta þessa eign fram hjá þér fara. Hafdís
Sölustjóri
895 6107
863 0402
hafdis@remax.is
asdis@remax.is
Ásdís Ósk
lögg. fasteignasali
Opið hús í dag kl 15.00-15.30
Verð: 71.500.000
Stærð: 256 fm
Fjöldi herbergja: 6
Byggingarár: 1984
Brunabótamat: 35.200.000
Bílskúr: Já
Tunguvegur 19a
108 Reykjavík
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og fataskápum. Gestasalerni er flísalagt með baðkari,
sturtu og hvítri innréttingu. Gott vinnuhol. Herbergi með parketi á gólfi. Eldhús er með U-laga innréttingu.
Borðplata er úr granít. Öll tæki í eldhúsi eru frá AEG nema uppþvottavélin sem er frá Siemens. Rúm
borðstofa við eldhús og þar innaf er stofa og sólstofa með útgengi út í garð. Arinn er á milli borðstofu og
stofu. Sólstopp er í glerjum í sólskála. Komið er upp á efri hæð inn á stórt sjónvarpshol. Baðherbergi er
rúmgott með granítflísum á gólfi, baðkari, góðu skápaplássi og upphengdu salerni. Barnaherbergi eru tvö,
bæði parketlögð. Hjónaherbergi er mjög rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum á hjólum og
geymslupláss á bak við. Útgengt er á flísalagðar vestursvalir. Innangengt í bílskúr sem er með flísum á gólfi
og bílskúrshurðaopnara. Mjög stórt þvottahús er innaf bílskúr, flísalagt með góðu hilluplássi. Sérinngangur
er í aukaíbúð sem er öll flísalögð. Komið er inn i opið rými með lítilli eldhúsinnréttingu. Innaf er svefnherbergi.
Baðherbergi með sturtu,flísalagt í hólf og gólf.
Opið hús í dag kl. 15.30-16.00
Hafdís
Sölustjóri
895 6107
863 0402
hafdis@remax.is
Ásdís Ósk
lögg. fasteignasali
asdis@remax.is