Fréttablaðið - 29.04.2007, Síða 74
26 27 28 29 30 1 2Fjalakötturinn sýnir þrjár mynd-
ir byggðar á sögum Astridar Lind-
gren nú um helgina, auk þess
sem síðustu sýningar á myndum
franska kvikmyndagerðarmanns-
ins Raymond Depardon fara
fram.
Sögur Astridar Lindgren eru sí-
vinsælar hjá börnum jafnt sem full-
orðnum. Þær hafa allar verið gefn-
ar út á íslensku og sumar hverjar
settar upp sem leiksýningar.
Kvikmyndirnar þrjár hafa auk
þess verið talsettar á íslensku fyrir
myndbandsmarkaðinn og nú gefst
áhorfendum tækifæri til að sjá
þær með upprunalegri talsetningu
í gamaldags bíóstemningu. Þær
eru allar sýndar með sænsku tali
og enskum texta og eru fyrir alla
fjölskylduna. Í kvöld verða sýnd-
ar myndirnar um Ronju ræningja-
dóttur og Börnin í Ólátagarði en á
morgun verður sýnd mynd byggð
á sögunni Bróðir minn Ljónshjarta.
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristj-
ánsson mun kynna myndirnar og
bregða á leik með börnunum.
Frönsk kvikmyndagerð hefur
verið í forgrunni síðustu vikur
vegna fransks vors og nú um helg-
ina verður endapunkturinn settur
með því að sýna sex franskar stutt-
myndir í tveimur hlutum. Sýning
þeirra hefst kl. 19 í kvöld
Annað kvöld verða sýndar þrjár
stuttmyndir til auk tveggja mynda
eftir heimildarmyndagerðar-
manninn Raymond Depardon.
Nánari upplýsingar um dagskrána
og starfsemi klúbbsins er að finna
á heimasíðunni www.filmfest.is.
Ronja og Jónatan
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is
Do you want to study in Denmark?
Do you want to study in Denmark in an international
environment?
Are you looking for a programme which gives you good
job opportunities?
Are you interested in Computer Science or IT?
Are you looking for a short education at university
level?
Do as Hrund Brynjólfsdóttir and other young students.
Every year The Academy of Southern Denmark in Søn-
derborg welcomes students from Iceland. Come and join
us! Sønderborg has an active ”Íslendingafélag”.
Visit our website www.sdes.dk to read more about your
future in Denmark.
Do you want to study
Computer Science or IT?
Grundtvigs Allé 88
DK-6400 Sønderborg
Tlf. +45 7412 4141
www.sdes.dk
Tónleikaröðin 15:15 hefur komið
sér upp aðsetri í Norræna húsinu.
Erindið er enn sem fyrr flutning-
ur á nýrri tónlist og á sunnudag-
inn verða þar frumflutt verk eftir
ung tónskáld. Það er hin marg-
verðlaunaða Caput-sveit sem flyt-
ur. Þar verða flutt verk eftir Haf-
dísi Bjarnadóttur, Jón Rúnar Ara-
son, Guðmund Óla Sigurgeirsson
og Diönu Rotaru.
Verk Hafdísar, Risaeðla, er loka-
verkefni úr tónsmíðadeild Lista-
háskólans. Risaeðla er verk fyrir
fjórtán manna kammersveit, samin
út frá átta takta risaeðlu-rokk-
stefi. Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Hafdís góða reynslu í tónsmíðum
og gítarleik en hennar vettvang-
ur hefur helst verið á sviði djass-
tónlistar. Hafdís blandar saman
ýmsum stílum.
Jón Rúnar Arason syngur tenór-
hlutverk við mörg helstu óperu-
hús Evrópu. Verk hans, Jökultón-
ar, er unnið við ljóð Auðar Gunnars-
dóttur söngkonu og í samstarfi
við hana. Verkið „Við fyrsta han-
ans gal“ eftir Guðmund Óla Sigur-
geirsson er svíta íslenskra sveita-
dansa í útsetningu fyrir lítinn hóp
hljóðfæra. Stemningin er ættuð úr
ballbransanum. Diana Rotaru er
dóttir Doina Rotaru sem var staðar-
tónskáld í Skálholti á síðasta ári.
Verk Diönu, Symplegade, er fyrir
flautu, píanó og slagverk en hug-
myndin er ættuð úr grískum goð-
sögnum.
Efnisskráin er samsett úr verk-
um sem öll eru með fyrstu verkum
tónskáldanna. Stjórnandi Caput
verður Guðni Franzson. 15:15 tón-
leikasyrpan er haldin í samstarfi
við Norræna húsið í Reykjavík.
Tónleikasyrpan hóf göngu sína árið
2002 að frumkvæði Caput.
Risaeðlur og fyrsta hanagal