Fréttablaðið - 29.04.2007, Blaðsíða 88
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
Opið 8-24
alladaga
- Lifið heil
Nú er búið að semja við Norð-menn um að verja landið.
Mér finnst það allt of galið til að
annað sé hægt en að vera í skýj-
unum með það. Það er svo arfavit-
laust að maður getur ekki annað
en borið einhverja ankannalega
og öfugsnúna lotningu fyrir þeim
sem hrinda þvílíku í framkvæmd.
Og sjá ekkert athugavert við það.
eru sem sagt ekki
sætasta stelpan á ballinu heldur
eitthvað sem gerir sama gagn, svo
vitnað sé í pólitíska greiningu for-
sætisráðherra á ástandinu nýlega.
Fyrir þá sem ekki skilja líkinguna
þá er hún sótt í angist kynsveltra
strákpjakka. Forsætisráðherra
lýsti því með öðrum orðum yfir að
hann vildi fá her af sömu örvænt-
ingu og siðferðilegu forsendum og
kynsveltur unglingspiltur á þjóð-
hátíð í Eyjum drátt.
gamans má geta þess að for-
sætisráðherra finnst alveg hræði-
leg kvenfyrirlitning í því fólg-
in að kalla menntamálaráðherra
ljósku og minnast á það hvar hún
starfar.
hernaðar
hefur verið núið því um nasir að
vera andvígir Landhelgisgæsl-
unni, hjálparsveitum og flugbjörg-
unarstarfi, því norskur her muni
aðstoða við þetta allt. Í áróðurs-
skyni mætti bæta við þetta ýmsu
öðru sem ríkisstjórnin hefur van-
rækt til jafns við þetta þrennt, svo
sem aðhlynningu sjúkra og aldr-
aðra. Væri ekki þjóðráð að láta
norska herinn annast hana líka?
Þá værum við hernaðarandstæð-
ingar líka orðnir óvinir fatlaðra,
aldraðra og öryrkja. Af hverju
ætti það frekar að vera í verka-
hring ríkisstjórnar Noregs að ann-
ast landhelgisgæslu Íslendinga en
að hjúkra Íslendingum?
finnst mér þó sú
röksemdafærsla að hernaðarand-
stæðingar eigi að vera ánægðir
með að fá herinn af því að norska
ríkisstjórnin sé svo vinstrisinn-
uð. Þessi málflutningur ber vott
um mun öflugra hugmyndaflug en
maður á að venjast úr þessari átt.
Öll þau ár, sem pólitísk sannfær-
ing mín var þrungin andúð á Davíð
Oddssyni og öllum hans verkum,
datt mér aldrei í hug að þar sem
hann væri sefasjúkur aðdáandi
Margrétar Thatcher væri hann í
hrópandi mótsögn við sjálfan sig
fyrst hann flytti ekki kjarnorku-
úrgang frá Bretlandi til landsins í
stórum stíl.
hafði einfaldlega ekki ímynd-
unarafl til að leggjast það lágt.
Heill her af
ljóskum