Fréttablaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 6
MARKAÐURINN ánudagurinn 30. apríl markaði þáttaskil í sögu íslensks við- skiptalífs. Sama dag og Glitnir greindi frá sjö millj- arða króna hagnaði á fyrsta árs- fjórðungi lét Bjarni Ármanns- son af störfum í kjölfar þess að ný stjórn var kjörinn á hluthafa- fundi bankans og eftirlét Lár- usi Welding, rúmlega þrítugum framkvæmdastjóra hjá Lands- bankanum og fyrrverandi starfs- manni sínum, veldissprotann. BRÓÐERNI OG BLÓÐTAKA Afsögn Bjarna kom ekki á óvart, enda hafði verið þrálátur orð- rómur um brotthvarf hans úr Glitni undanfarnar vikur eftir að Karl Wernersson í Milestone seldi stóran hluta bréfa sinna og Einar Sveinsson, fráfarandi stjórnarformaður og stjórnar- maður til sextán ára, fór alfarið út. Bloggararnir Jón Axel Ólafs- son og Óli Björn Kárason sögðu fyrstir opinberlega frá þeim orðrómi að Bjarni væri á leið- inni út, sem síðar kom á daginn. Visir.is staðfesti svo þær frá- sagnir á mánudaginn og greindi frá því við sama tækifæri að Lárus Welding yrði kynntur sem eftirmaður Bjarna í kjölfar hlut- hafafundar síðar um daginn. Bjarni og Þorsteinn M. Jóns- son, nýr stjórnarformaður Glitnis, leggja mikla áherslu að skilnaðurinn hafi verið gerður í mesta bróðerni og ætlar fyrrver- andi forstjóri að aðstoða eftir- mann sinn á næstu vikum. Sam- kvæmt upplýsingum Markaðar- ins var nær ekkert sem stóð í vegi fyrir því að Bjarni héldi áfram kysi hann svo. Þetta verð- ur því að teljast töluverð blóð- taka fyrir helstu eigendur bank- ans, enda er Bjarni maður með mikla reynslu og þekkingu, vin- sæll af starfsfólki og sterkur málsvari Glitnis út á við. EIGNIR TÍFALDAST FRÁ SAMRUNA „Þetta hefur átt sér skamman að- draganda en auðvitað er svona ferli ekki talið í dögum,“ segir Bjarni, spurður hvernig starfs- lok hans hafi borið að. Bjarni var forstjóri Glitnis og forvera hans frá 1997 og á þeim tíma ríflega tuttugufaldaðist virði bankans. Hann tók við starfi for- stjóra FBA árið 1997, þá yngsti yfirmaður í íslenska fjármála- kerfinu, aðeins 29 ára gamall. Einkavæðingarferlið 1998-1999 er Bjarna minnisstætt. „Maður var að fást til hluti sem maður þekkti lítið til. Allt voru þetta nýjungar hér á landi og FBA braut þar blað.“ Hann kom svo að samruna FBA og Íslandsbanka árið 2000 og stýrði bankanum við hlið Vals Valssonar þar til sá síðarnefndi lét af störfum. Við samruna Íslands- banka og FBA var bankinn verð- mætasta félag Kauphallarinnar frá upphafi – metinn á 67 millj- arða króna. Glitnir er sjö árum síðar næstverðmætasta fyrirtæki Kauphallarinnar með markaðs- virði upp á 400 milljarða króna. Heildareignir hafa vaxið úr 226 milljörðum króna í 2.256, það er tífaldast. Bjarni hefur síðan unnið að uppbyggingu Glitnis úr því að vera alíslenskur banki í það að vera með heimastöðvar í tveimur löndum og ört vaxandi fjárfest- ingarbanki í Norður-Evrópu með sérstöðu í sjávarútvegi og orku- geira. Hann hefur þurft að glíma við margvíslegar væringar í hlut- hafahópi bankans í gegnum tíðina og hugsanlegar yfirtökutilraunir. Kostnaður vegna starfsloka forstjórans mun ekki liggja fyrir fyrr en uppgjör ársins 2007 ligg- ur fyrir. Bjarni hafði 144 millj- ónir króna í laun og hlunnindi á síðasta ári. Miðað við nýlega starfslokasamninga má ætla að starfslok hlaupi á tugum millj- óna króna. Bjarni selur eignar- hlut sinn í Glitni til bankans en sá hlutur er metinn á 6,5 millj- arða króna. ENGAR STÓRAR BREYTINGAR Ýmsar sögusagnir hafa verið í gangi um breytingar á starf- semi Glitnis á þessu ári. Samruni við annan banka eða jafnvel við FL Group, stærsta hluthafann í Glitni, gæti verið inni í framtíðar- myndinni. FL hefur með nýleg- um kaupum á þriggja prósenta hlut í Commerzbank, fyrir rúma 63 milljarða króna, boðað þátt- töku sína í væntanlegu samruna- ferli á evrópskum bankamark- aði. Þá hefur verið orðrómur, sem er staðlaus, um sölu útibúa- nets Glitnis til Byrs sparisjóðs en sömu fjárfestar koma að Glitni og Byr. Núverandi staða býður upp á marga möguleika. Þorsteinn boðar engar breyt- ingar á starfsemi Glitnis að svo stöddu, enda hafi FL Group, sem kjölfestuhluthafi í bankanum um nokkurt skeið, tekið þátt í að móta stefnu bankans. „Við erum full- komlega sáttir við þá stefnu. Við viljum kannski reyna að gera gott betur.“ Síðustu uppjör bankans sýna að stöðugur vöxtur hefur legið í gegnum þóknunartekjur. Þorsteinn segir að það sé óhætt að álykta svo að bankinn muni herða róðurinn í fjárfestingarbanka- starfseminni. Þar kemur Bret- land sterklega til greina. Lárus Welding hefur unnið að mörg- um verkefnum við hlið Baugs Group, eins stærsta hluthafans í FL Group, og tengdra fjárfesta og stýrði hann aðkomu Lands- bankans að yfirtöku Baugs og fleiri aðila að Big Food Group og vel heppnaðri endurfjármögnun Iceland-verslanakeðjunnar. Þor- steinn segir að Lárus hafi mikla reynslu af breska markaðnum og góð sambönd þar. „Mér finnst stefna bankans vera vel úthugsuð. Það er búið að gera skynsamlegar breyting- ar á skipuritinu og bæta við ein- ingum á réttum stöðum. Mín sýn passar mjög vel við þá stefnu sem hefur verið mörkuð,“ segir Lárus Welding, sem stýrði upp- byggingu Landsbankans í Lund- únum frá 2003. FME TAKMARKAR ATKVÆÐISRÉTT Fyrir hluthafafundi í bankanum á mánudaginn tilkynnti FME um að sameiginlegur atkvæðisréttur FL Group, sem ræður um 32 prósenta hlut í Glitni, og Ell- iðahamars, Jötuns Holding og Sunds og aðila þeim tengdra í Glitni hefði verið takmarkaður við 32,99 prósenta eignarhlut. Í kjölfar viðskipta sem urðu hinn 5. apríl kannaði FME hvort sam- starf hefði myndast um meðferð virks eignarhlutar í Glitni á milli FL Group og þessara fjárfesta og komst að þeirri niðurstöðu að svo væri. Þar sem stofnunin hafði ekki veitt samþykki fyrir meðferð á hinum virka eignar- hlut ákvað hún að takmarka sam- eiginlegan atkvæðisrétt við fyrr- greind mörk. Samkvæmt upplýsingum Markaðarins tóku forsvarsmenn FL Group heldur fálega í þessa niðurstöðu FME en ekki reyndi á takmörkunina á hluthafafund- inum á mánudaginn, enda var ný stjórn sjálfkjörin. Fulltrúar FL Group leiða hina nýju stjórn: Þorsteinn er formaður stjórnar Glitnis, en Jón Sigurðsson, að- stoðarforstjóri FL, verður vara- formaður hennar. Skarphéðinn Berg Steinarsson situr svo sem þriðji maður FL, en auk þeirra voru þau Björn Ingi Sveinsson, Haukur Guðjónsson, Katrín Pét- ursdóttir og Pétur Guðmundar- son hrl. sjálfkjörin í stjórnina Stjórnarformaður Glitnis á ekki von á því að niðurstaða FME hafi áhrif á stjórnun bankans. „Ég held að við munum reyna að ráða fram úr þessu í sam- starfi við FME þannig að allir séu sáttir.“ 2. MAÍ 2007 MIÐVIKUDAGUR6 F R É T T A S K Ý R I N G G ra fik a Brautryðjandi hverfur á braut Brotthvarf Bjarna Ármannssonar kom ekki eins og þruma úr heiðskíru lofti en verður að teljast áfall fyrir Glitni. Nýir stjórnendur boða engar breytingar á starfsemi bankans þótt ætla megi að róðurinn verði hertur í Bretlandi. FME hefur takmarkað atkvæðisrétt stærstu eiganda í Glitni. Eggert Þór Aðalsteinsson fer yfir nýliðna atburði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.