Fréttablaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 32
636 20,3 70B A N K A H Ó L F I Ð *Nafnávöxtun á ársgrundvelli frá 01.09. 2006 til 01.04.2007.Rekstrarfélag fjárfestingarsjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Verðbréfa www.spronverdbref.is. SPRON Verðbréf Peningamarkaðssjóður SPRON 15,3% ávöxtun*Fljúgum hærra H im in n o g h a f / S ÍA -9 0 7 0 4 0 2 Eins og allir vita eru lang- hlaup talin til mestu dyggða hjá starfsmönnum Glitnis og bankinn verið meðal styrktar- aðila Reykjavíkurmaraþons auk maraþonhlaupa í stórborgunum Osló í Noregi og Lundúnum í Bretlandi. Bjarni Ármannsson er þekkt- ur hlaupagarpur og lagt mikið af mörkum til að hvetja starfsmenn og almenning til að hlaupa. Nýr forstjóri bankans, Lárus Welding, verður örugglega beittur félags- legum þrýstingi á nýjum vinnu- stað að hlaupa maraþon á þessu ári en fyrir þá sem ekki vita er hann með svarta beltið í karate. Nema náttúrlega að bankinn slái í gegn með stuðningi við alþjóð- leg karatemót. Karatekempa í sigurliðið Nú velta menn því fyrir sér hver næsti áningarstaður Bjarna Ármannssonar kunni að vera, enda býst enginn við því að hann setjist í helgan stein, aðeins 39 ára gamall. Það er ljóst að Bjarni, sem einn af forgöngumönn- um íslenska fjármálakerfisins, ætti ekki að eiga í erfiðleikum með að finna sér starf en fast- lega er búist við að hann snúi aftur inn á brautir bankakerf- isins þegar lengra líður á árið. Meðal þess sem heyrist er að Karl Wernersson í Milestone og fjárfestingarbankanum Askar Capital hafi borið víurnar í Bjarna. Karl og Bjarni þekkjast auðvitað vel frá Glitnisárunum, enda var Karl lengi vel einn af stærstu hluthöfum bankans. Hvernig er það, kemur ekki að því að nýjan forstjóra vanti yfir Innvik? Bjarni til liðs við Kalla? Forsætisráðherratíð Tonys Blair í Bretlandi hefur verið sann- kölluð blómatíð fyrir moldríka þar í landi. Skoska dagblaðið Scotsman greinir frá könnun sem sýnir að í Bretlandi hafi fjöldi milljarðamæringa (í pund- um talið) þrefaldast á síðustu fjórum árum. Auður þúsund þeirra efnuðustu hefur á tíma- bilinu aukist um fimmtung, segir blaðið og telur 68 milljarðamær- inga í Bretlandi. Þar á meðal er ríkasti maður Skotlands, Sir Tom Hunter, viðskiptafélagi Baugs, en blaðið hampar honum sem fyrsta sjálfssprottna milljarða- mæringi Skota. Hann rétt nær inn á listann, er metinn á 1,05 milljarða sterlingspunda. Breskir millar aldrei fleiri

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.