Fréttablaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 72
Það er viðtekin venja að hreyta ónotum í krakka og skamma
þá undir drep, en sem fullorðinn
fær maður sjaldan að heyra’ða. Ég
gæti til dæmis gengið inn í hvaða
garð sem er og þóst vera að leita
að einhverju og yrði ekki rekinn
í burtu með óbótaskömmum eins
og ef ég væri krakki. Það er helst
eftir að maður gifti sig að maður
fór að heyra’ða á ný.
og til dæmis þegar ég sagði
Lufsunni að ég væri að hugsa um
að mæta bara ekkert á kjörstað í
ár. Sýna þar með kirfilega fram
á að mér er drullusama um þess-
ar kosningar og neiti að taka þátt
í þessari vitleysu. Að ég sé enginn
maur í maurabúi sem þrammar
eins og fífl í sturtuhengi lýð-
ræðisins til þess að velja á milli
rottueiturs og blásýru.
vildi ekki heyra á þetta
minnst. Ef þú kýst ekki ertu bara
eins og einhver vankaður strípu-
hnakki, sagði hún. Eða eins og am-
erískt hvítrusl sem er of stjarft af
heimsku til að nýta sér sinn lýð-
ræðislega rétt!
ef ég væri Kani þá myndi ég
kjósa Obama, mér líst vel á hann,
svaraði ég. En mér líst ekki vel á
neitt í þessari kæfandi lognmollu
hér. Þetta lið hugsar ekki um annað
en völdin og djúsí eftirlaunin sem
það skammtaði sjálfu sér.
átti sér stað á meðan
við horfðum á frambjóðendaþátt á
RÚV. Þegar Ásta Ragnheiður sagð-
ist ætla að redda öllu á 18 mán-
uðum og Brynja Þorgeirs spurði
hvað það myndi kosta, þá fattaði
ég hvað þetta minnti mig á: Vöru-
torgið. Hér var líka verið að reyna
að selja mér eitthvað sem mig
langaði ekkert í.
er bara orðinn leiður á að
sætta mig alltaf við illskásta kost-
inn, hélt ég áfram. Ég tek ekki þátt
í þessu aftur fyrr en ég verð virki-
lega spenntur fyrir einhverju. Og
ég er líka leiður á því að skila auðu
til þess eins að vera talinn upp með
þeim sem voru of vitlausir til að
gera bara einn kross á bleðilinn.
ekki bara fara að grenja?
spurði Lufsan. Hún getur trútt
um talað, sannfærð um að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn og er þar með
endalaust í sigurliðinu.
Atkvæði
F
ít
o
n
/
S
ÍA
-
S
v
e
n
n
i
S
p
e
ig
h
t
*
S
k
v
.
k
ö
n
n
u
n
IM
G
G
a
ll
u
p
f
e
b
-
m
a
r
s
2
0
0
6
Allt er gott
sem endar vel
Gott viðmót skiptir miklu máli. Af þeim sem hringdu í
þjónustuver Vodafone voru 96,4% ánægðir með
móttökurnar.* Við leggjum allan okkar metnað í að
aðstoða þig eins vel og kostur er þannig að öll mál fái
farsælan endi.
Vod
afone
ÁNÆ
GÐUSTU VIÐSKIPT
AV
IN
IR
NI
R
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is