Fréttablaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 30
Skarphéðinn G. Þórisson, líffræðingur Fortíð og framtíð hreindýra á Íslandi Íslensku hreindýrin –veiðistjórnun Fundur um nýtingu íslenska hreindýrastofnsins fimmtudaginn 3. maí á Grand Hótel kl. 20:00 www.skotvis.is Áki Ármann Jónsson, forstöðumaður veiðistjórnunarsviðs UST Stjórnun hreindýraveiða Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra Ávarp Vinsældir hreindýraveiða hafa aukist ár frá ári, skiptar skoðanir eru um stjórnun veiðanna og ýmislegt annað er þeim við kemur. Af því tilefni efnir Skotveiðifélag Íslands til fundar um íslensku hreindýrin fimmtudaginn 3. maí kl. 20. Fundurinn er öllum opinn og fundarstjóri verður Rúnar Backmann. Landssamtök um skynsamlega skotveiði h Vegna þeirra gífurlegu eignatilfærslna sem orðið hafa undir ráðstjórn D og B listans hér á landi undanfarið rifja ég upp ævagamla sögu af gæsinni og gulleggjunum sem er að finna í Dæmisögum Esóps: Maður nokkur átti gæs, sem verpti einu gulleggi á dag. En hann var ekki ánægður með það. Honum fannst það ganga allt of seint. Til þess að auðgast fyrr, tók hann það ráð að drepa gæsina og rista hana á kviðinn. En þar greip hann í tómt. Gæsin var eins og hver önnur gæs. Mikið vill alltaf meira, missir að síðustu allt. Í skólalok gangast nemendur undir próf. Í lok kjörtímabils gangast þingmenn einnig undir próf – eins konar frammistöðumat. Kjósenda er að nota það tækifæri og meta vandlega hvernig þeir hafa staðið sig, hverjir eru „á vetur setjandi” og hverjir ekki. Nú ríður á að vera gagnrýnin en réttlát, sýna enga miskunn, hampa kjarnafólki og því sem það hefur vel gert en losa sig við hryggleysingja og hismi. Mín skoðun er að vart megi á milli sjá hvor flokkur núverandi ríkisstjórnar Framsóknar-íhalds og Sjálfstæðis-íhalds hefur reynst verri öllum þorra almennings í landinu. Þeim efnuðu hafa þeir hampað en níðst á peningasnauð- um, fótfúnum og þeim sem hafa orðið undir í lífsbaráttunni. Allt er þeirra æði fallvalt eins og dæmi- sagan sýnir. Á undanförnum árum hefur græðgin verið æst markvisst upp í fólki með aukinni skuldasöfnun, skrumi og viðeigandi kaupæði. Lít- ilmagninn hefur á sama tíma dreg- ist aftur úr og gleymst. Áð- urnefndir ríkisstjórnar- flokkar hafa gleymt hinu gullna boðorði um náunga- kærleikann og hvað jöfn- uður merkir. Í Samfylkingu undir forystu Ingibjargar Sólrúnar er jöfnuður aðal- markmið. Sólrún hét því að berjast með kjafti og klóm fyrir velferðarmálum fengi hún umboð í vor. Hún og hennar stuðn- ingsfólk talar ekki tungum tveim í jafnaðar- og velferðarmálum. Þar er talað um jöfnuð og jafnrétti í reynd. Þetta eru stór orð og því er nú reynt að rugga báti Samfylk- ingarinnar og Ingibjargar Sólrún- ar, í þeirri von að það verði henni að falli. Undirliggjandi er hræðsla við að þessi sterka kona og hennar fólk muni í reynd snúa óheillaþróuninni við, ríkisstjórninni og plotti hennar gegn þjóðinni verði fleygt út í hafs- auga – lítilmagninn fái loks áheyrn. Í litlum eineltisþjóðfélögum, eins og okkar virðist vera um þess- ar mundir, er stöðug uppnefning og stagl um að viðkomandi sé fýld eða reið og því ekta „lúser“ ótrúlega beitt, niðrandi og niðurdrepandi vopn. Ef „lúser“ eða „tapari“ er notað um slíka hörkupólitíkusa og femínista eins og hana Ingibjörgu Sólrúnu, er það hreint öfugmæli og vindhögg sem fólk sér vonandi í gegnum. Efinn nægir hins vegar oft til að grafa undan tiltrú fólks. Einelti af hvaða toga sem er hefur niðurrífandi áhrif og getur skemmt fyrir framúrskarandi manneskj- um. Vonandi sér fólk litlu sálirn- ar á bak við róginn og hefur hann að engu. Ég hvet fólk til að kjósa hana Ingibjörgu Sólrúnu og Sam- fylkinguna, það er lag nú í vor að færa til betri vegar á ýmsum svið- um það sem ríkisstjórnin hefur úr lagi fært. Með baráttukveðjum. Höfundur er fyrrverandi borgar- fulltrúi. Lítilmagninn fái áheyrn Íaðdraganda þessara kosninga hef ég fylgst sérstaklega með mál- flutningi frambjóðenda Samfylk- ingarinnar um menntamál. Sjálf- ur hef ég fengið fjölmörg tækifæri til að ræða menntamál við Sam- fylkingarfólk á framboðsfundum, en einnig hef ég lesið skrif þeirra í blöðum og á netmiðlum. Framlag frambjóðenda Sam- fylkingarinnar í þeirri umræðu hefur ekki verið uppbyggilegt. Því miður virðist markmið þeirra sem skrifa og tala af mestum móð vera það að reyna að draga upp þá mynd af menntakerfinu okkar að þar sé allt í kalda koli og að mikið ófremdarástand ríki í menntamál- um. Fremstir í flokki þeirra sem þannig tala eru Ágúst Ólafur Ág- ústsson, varaformaður Samfylk- ingarinnar, og Katrín Júlíusdóttir alþingismaður, talsmenn Samfylk- ingarinnar í menntamálum. Þau Katrín og Ágúst Ólafur hafa á síðustu dögum skrifað blaða- greinar þar sem slegið er fram fullyrðingum sem eiga að sanna að ríkisstjórnin eigi skilda „fall-ein- kunn í menntamálum“. Máli sínu til stuðnings vitna þau bæði í OECD- ritið Education at a Glance, en láta hjá líða að tölurnar sem þau vitna til séu gamlar eða frá árinu 2003. Þær segja því enga sögu um það sem gerst hefur á kjörtímabilinu enda veit Samfylkingin að aukið hefur verið við framlög til framhaldsskóla, háskóla og rannsókna um sem nemur á annan tug millj- arða á ári frá þeim tíma. Í ljósi þessa er full ástæða til þess að gera alvarlegar athugasemdir við talna- meðferð Samfylkingarinnar og túlkun á stöðu menntamála á Ís- landi því hún stenst ekki skoðun. Fyrsta fullyrðing Samfylking- arinnar: Hlutfall Íslendinga á ald- ursbilinu 25-34 ára sem hafa lokið framhaldsskólanámi er 68% en á hinum Norðurlöndunum er þetta hlutfall 86-96% samkvæmt nýj- ustu skýrslu OECD um mennta- mál. Meðaltalið í OECD ríkjum er 77% og í ESB ríkjum 78%. Ísland í 23. sæti af 30 OECD þjóðum og eru því borgarar flestra iðnríkja heims menntaðri en Íslendingar. Önnur fullyrðing Samfylking- arinnar: 40% þeirra sem eru á ís- lenskum vinnumarkaði eru með grunnskólapróf eða minna. Á hinum Norðurlöndunum er þetta hlutfall 12-19%. Þetta er gífurlega villandi fram- setning á staðreyndum. Í fyrri full- yrðingunni er miðað við þá sem luku framhaldsskólanámi á ára- bilinu 1989-1999, en það segir litla sögu um hvernig staðan er í dag. Staðreyndirnar eru þessar: Um 97% þeirra sem ljúka grunnskóla hefja nám í framhalds- skóla. Brautskráningarhlut- fallið úr framhaldsskóla árið 2004 var 84% sam- kvæmt tölum OECD. Á sama ári var braut- skráningarhlutfall á há- skólastigi 50% en var 38,7% árið 2000. Þetta er hæsta hlutfall innan OECD ríkja en með- altal þeirra er 34,8%. Hvernig Sam- fylkingin getur haldið því fram að í ljósi þessara talna séu Íslendingar eftirbátar annarra þjóða í mennta- málum er mér hulin ráðgáta. Þriðja fullyrðing Samfylking- arinnar: Hlutfall Íslendinga á ald- ursbilinu 25-34 ára sem hafa lokið háskólanámi er 31% en á hinum Norðurlöndunum er þetta 35-42%. Meðaltalið í OECD er 31%. Við erum hér í 17. sæti af 30 þjóðum. Þessi fullyrðing er sett fram líkt og á Íslandi ríki ófremdarástand. Rétt er að taka fram að tölurnar miðast við þá sem lokið höfðu námi árið 2004. Þá var fjöldinn að meðal- tali sá sami og í OECD ríkjunum og nokkru yfir meðaltali ESB-ríkjann- na sem var 28%. En hvað er það sem hefur gerst á þessum árum? Íslendingar hafa siglt fram úr Norðmönnum, Svíum og Dönum þegar kemur að fjölda í háskólanámi. Í nýjasta hefti Norrænna hag- talna kemur fram að árið 2000 hafi 10,5% Íslendinga á aldrinum 20- 40 ára stundað háskólanám. Árið 2004, einungis fjórum árum síðar, var þetta hlutfall komið upp í 15%. Háskólanemum hefur svo haldið áfram að fjölga verulega á þeim árum sem síðan eru liðin. Af hverju fagnar Samfylking- in ekki því að við séum að komast í fyrsta sæti í stað þess að gefa í skyn að við séum aftarlega á mer- inni? Það er ekki uppbyggilegt að gera lítið úr íslenska menntakerf- inu með þessum hætti. Hvorki fyrir menntakerfið, né fyrir Sam- fylkinguna. Fjórða fullyrðing Samfylkingar- innar: Þegar kemur að opinberum útgjöldum í háskólana er Ísland í 21. sæti af 30 þjóðum. Þessi staðhæfing er óskiljan- leg. Í tölum OECD fyrir árið 2003, bls. 288, kemur fram að Íslending- ar vörðu 1,4% af þjóðarframleiðslu til háskólastigsins sem er bæði yfir meðaltali OECD- og ESB-ríkjanna og vermir Ísland tíunda sætið af þeim 30 þjóðum sem eru mældar. En þar með er ekki öll sagan sögð. Á síðasta ári uppfærði og birti Hagstofa Íslands tölur um útgjöld hins opinbera til fræðslumála. Auk þess að birta nýjar tölur fyrir árin 2004 og 2005 þá var í fyrsta skipti stuðst við endurskoðaðan staðal við flokkun útgjalda og áður birt- ar tölur fyrir árin 1998 til 2003 eru endurskoðaðar með hliðsjón af honum. Þarna er því í fyrsta skipti birtar tölur samkvæmt sama staðli og önnur OECD-ríki hafa notað. Þá kemur í ljóst að útgjöld til há- skólamála á Íslandi voru 1,62% og Ísland komið í fimmta sæti OECD- ríkjanna. Árið 2005 er hlutfallið 1,59%. Enn og aftur kýs Samfylking- in að horfa fram hjá staðreyndum, heldur á lofti gömlum og/eða vill- andi tölum og lætur eins og eins sú gífurlega sókn sem allir hafa orðið vitni að á sviði háskólamála hafi aldrei átt sér stað. Það er dapurlegt að sjá hvernig Samfylkingin reynir að gera lítið úr þeim stórmerkilega árangri sem hér hefur náðst í menntamálum á síðustu árum með villandi talna- brellum og hreinum rangfærsl- um. Staðreyndirnar tala hins vegar sínu máli. Þær segja okkur svart á hvítu að við erum í fremstu röð í menntamálum. Hér hefur orðið bylting og hún blasir við öllum. Það færi Samfylkingunni betur að viðurkenna að svo sé, frekar en að grípa til þeirra áróðursaðferða sem hér hefur verið lýst. Þær eru hvorki Samfylkingunni né mennta- kerfinu til framdráttar. Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík og formað- ur menntamálanefndar Alþingis. Við erum í fremstu röð í menntamálum FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.