Tíminn - 27.03.1980, Page 6

Tíminn - 27.03.1980, Page 6
6 Fimmtudagur 27. mars 1980 V. tltgefandi Framsóknarfloltkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur Ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gfslason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Slðu^ múla 15. Simi 86300. — Kvöldsímar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasöiu kr. 230.- Áskriftargjald kr. 4.500 á mánuöi. Blaöaprent.; Kjðlfestan Það hefur sist vantað á nokkrum siðustu árum að ýmislegt óvænt hefur átt sér stað i islenskum stjórnmálum. Ef litið er um öxl til umliðinna fimm ára verður liklega að telja að þau séu einhver um- brotamesti timi i stjórnmálasögu lýðveldisins, og bendir fátt til þess að þeim umbrotum sé að fullu lokið enn. Á þessum árum hafa úfar risið óvenjulega hátt i pólitiskum deilum og skærum. Gengi stjórnmála- flokka og leiðtoga hefur breytst stórlega á stuttum tima, einum hossað nú og hann lægður þá, sveiflan gengið i þessa átt nú og hina þá. Seint verður sagt að ólguna hafi lægt á siðustu mánuðum, en enn sem komið er fer þvi fjarri að menn geti áttað sig á þvi hvert stefnir um flokka- skiptingu og valdahlutföll á sviði stjórnmálanna. Þessari óvissu, sem upp hefur komið siðan sl. haust, lýkur tæplega alveg á næstunni. Hún ein- kennist af þvi annars vegar, að hraðri fylgisaukn- ingu og vinsældum Alþýðuflokksins er lokið. Al- þýðuflokkurinn stendur frammi fyrir þeirri stað- reynd að hafa sjálfur fyrirgert með öllu þeim miklu tækifærum sem kjósendur höfðu gefið honum. Flokkurinn virðist staddur i miklum innri vanda, og er svo að sjá sem hver höndin sé uppi á móti annarri innan flokksins. Sem stendur er ókleift að ráða i það hvert Alþýðu- flokksmenn kunna að stefna, — ef þeir þá hafa nokkra minnstu hugmynd um það sjálfir. Þessu til viðbótar kemur sá vandi flokksins, að kjósendur taka ekki lengur mark á honum, eftir það sem á undan er gengið. Hins vegar einkennist óvissanútaf þvi sem er að gerast og gerjast innan Sjálfstæðisflokksins. A- lengdar verður þeirri spurningu ekki svarað á þessu stigi hvort Sjálfstæðisflokkurinn er einn flokkur nú eða tveir, eða einhver nýstárleg blanda af hvoru tveggja, — sem ómögulegt er að ráða fyllilega i. Svo mikið er vist, að óvild og fjandskap i islenskum stjórnmálum er um þessar mundir um fram allt að finna inni i röðum Sjálfstæðismanna. Þeir sem muna átökin innan Alþýðubandalagsins fyrir rúmum áratug eru á einu máli um að fjand- skapurinn i Sjálfstæðisflokknum nú sé miklu illvig- ari, persónulegari og hatrammari. Meðan á þessu gengur bendir sumt til þess að Al- þýðubandalagið standi á þeim timamótum að for- ystumenn þess, sumir a.m.k., hafi fullan hug á þvi að taka á sig ábyrgð á raunhæfri efnahagsmála- stefnu og aðhaldssamri, — ef ekki ihaldssamri —, fjármálapólitik. Arangurinn af starfi núverandi rikisstjórnar veltur algerlega á þvi hvernig til tekst um þennan nýja og vissulega timabæra ásetning Al- þýðubandalagsmanna. En þvi miður fylgir náttúrlega sá böggull skammrifi, að friðarhorfumar innan Alþýðubanda- lagsins glæðast ekki að sama skapi nema siður sé. í landinu er nú aðeins einn umbótasinnaður og þjóðlegur stjómmálaflokkur sem er samstæður og starfshæfur. Aðeins einn stjórnmálaflokkur lands- manna starfar ekki við neina óvissu um starfsháttu eða stefnu. Aðeins einn flokkur vekur ekki óvissu eða efasemdir i hugum almennings. Þessi flokkur er Framsóknarflokkurinn, kjölfest- an i islenskum þjóðmálum. JS gímitm Kjartan Jónasson: Erlent yfirlit Leiötogaskiptl í vændum í Kína Deng er með stórgóða Jléttu” i smlðum Nýlega var hér greint frá nokkurri stefnubreytingu hjá hinum valdamikla leiötoga Kin-. verja Deng Xiaoping, er hann á aðalfundi miðstjórnar Kommúnistaflokksins stóð að brottvikningu nokkurra Maó- sinna, auk þess sem herferð var hafin gegn þeim annars vegar' og andófsmönnum hins vegar úti I þjóðfélaginu til að ryðja brautina iðnbyltingarfyrir-' ætlunum Deng og hans fylgis- manna i Kina. Og Deng kemur enn á óvart og má segja aö ýmislegt það hafi orðið uppvist siðústu daga sem skýrir enn frekar hvaö fyrir honum vakir og að hvað sem umj hann megi segja sé hann þó' heilsteyptur I kenningum sinum: og framkvæmd þeirra. Náinn samstarfsmaður hans, Hu Yao- bang, aðalritara kommúnista flokksins I kina, en þá stööu fékk hann er losnaðium kunnan Maóista á áöurnefndum fundi miðstjórnarinnar, hefur látið hafa eftir sér að Deng hyggist i sumar segja af sér stöðu að- stoðarforsætisráðherra i Kina. Ekki eru nema nokkrar vikur siöan Deng sagöi af sér hárri stöðu I stjórn kínverska hersins. Hins vegar hefur ekkert^verið sagt um að hann muni láta af stöðu aðstoðarformanns kin- verska kommúnistaflokksins. Deng er nú 76 ára gamall og það þætti hár aldur þjóðarleið- toga á Vesturlöndum. I kommúnistarikjum þykir það aftur á móti sögulegra að menn láti af forráðum fyrir aldurs sakir og það sjálfviljugir. En þessi yfirlýsing skjólstæðings Deng kemur þó vel heim viö mörg ummæli Deng á siðustu mánuðum um að hann væri að verða gamall og tlmi til kominn að draga sig I hlé. Enginn skyldi þó ætla að Deng sé orðinn leiður á lífinu eða völdunum. Enginn vafi leikur á þvi að hann er að tefla með klók indum til vinnings. Það sem vakir fyrir honum er aö nota áhrif sin og völd I dag til þess að tryggja að þeir sem við taki verði menn að hans skapi. Full- vlst má og telja, að hann getur I skjóli einnar stöðu I stað þriggja ráðið því sem hann vill ráða og til þess er leikurinn og vafalaust gerður að koma Hua Guofeng forsætisráðherra og formanni kommúnistaflokksins frá völd- um með góðu. Með þvi einfald- lega að gefa honum gott for- dæmi til að fylgja. Um leið og Deng lætur af stööu varaforsætisráðherra er þjóðþing landsins kemur saman í ágúst eða september, má fast- lega búast viö fleiri breytingum á yfirsátaröðinni i Kina. Tveir jafnaldrar Deng, báðir að- Zhao forsætisráðherra? Hu að tveir aðrir aðstoöarfor- sætisráðherrar sem fallið hafa i ónáö hjá Deng muni láta af störfum við sama tækifæri, en þeir duttu út úr æðstu stjórn flokksins á miðstjórnarfundin- Deng að hætta? stoðarforsætisráðherrar munu láta af völdum. Þá er haft eftir um tittnefnda I siðasta mánuði. Nýlega hefur og borist til Vesturlanda afrit af nýársræðu Deng, þar sem hann fjallar um markmið og framkvæmdir i framtiöinni. Er þar margt i þeim anda sem hér hefur áður verið greint frá, svo sem um aukinn flokksaga og aðgeröir gegn andófsmönnum, þ.e. nýja kórrétta linu eins og það var nefnt. En það sem áérstaklega vekur athygli I þessari ræðu er sú Hu formaður komm únista flokksins? áhersla sem Deng leggur á að yngri mönnum verði falin meírí völd og þeir verði unnir til fylgis við sósfalismann i stað þess að þeir firrist valdakerfið sem of mikið beri á. Ennig ræðst hann gegn eldri valdamönnum sem skorti alla nauðsynlega þekk- ingu og hafi jafnvel gengið til liðs við flokkinn á sinum tfma til þess eins aö verða fremstir og njóta forréttinda. Niðurstaða hans var nauðsyn á hreinsun I flokknum til að aga flokksmenn og losna við spill- ingaráhrif. Ennfremur að fjölga ungum mönnum i röðum hans og treysta þeim fyrir verkum að vinna. „Sumir gamlir flokks- félagar telja alltaf að hinir yngri séu síðri okkur hinum eldri”, sagði Deng meðal ann- ars og bætti við: „...en ég spyr, hversu gamlir vorum viö þegar viö unnum okkar bestu verk?” Þegar brotunum er raöað saman fer varla á milli mála, að Deng sem stöðugt talar um árið 2000 og umbylt Kina um það leyti, er það vel ljóst að hann verður ekki i tölu lifenda til þess að sjá vel fyrir málum fram að þeim tima. Honum er umhugað um að áform hans um uppbygg- ingu Kina nái fram að ganga. Hann vill ekki að sagan endur- taki sig er gamlaður leiðtogi missti nær ósjálfrátt völdin I hendur valdakliku sér nærri eða að fráfall leiðtoga þýði fullkom- in umskipti fyrir þjóðfélagið i heild, umbrot og óáran. Það sem Dan ætlar sér er að nota völdin til að tryggja að á eftir sér komi ungir menn og frfskir og hollir hugsjónum hans. Aö , þessu vinnur hann nú af fullum krafti og skyldi engan undra þó mikið verði um „mannfall” i haust.Mjög lfklegt ert.d, aö Hua Guofeng veröi að minnsta kosti að fórna annarri af tveimur stöðum sfnum, formennskunni eða forsætisráðherraembætt- inu. Þó ekkert verði um það fullyrt má og þó telja nokkuð vist hverjir eftirmenn þeirra Deng og Guofeng i mestu valda- stöðunum verða, nefnilega hinir sömu og kosnir voru aö tilstuðl- an Deng í Politóbúróið fyrir skömmu, Hu Yaobang og Zhao Ziyang. Ollu liklegri er Zhao, sem getið hefur sér mjög gott orð sem flokksleiðtogi i Sichuan f seinni tiö, en hann hefur staðið þar að mikilli uppbyggingu. Hann er i miklu áliti hjá Deng, en báðir féllu þeir i fullkomna ónáð I menningarbyltingunni. Sfðustu fréttir frá Kina herma og aö Zhao hafi verið kallaður tii Peking og annar maður gegni nú störfum hans í Sichuan. Er fátt jafnliklegt og að hann búi sig nú undir að taka við starfi varaforsætisráðherra ef ekki embætti forsætisráðherra af Hua Guofeng. Allavega verður athyglisvert að fylgjast meö þróun mála i Kina á þessu ári.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.