Fréttablaðið - 14.05.2007, Page 8

Fréttablaðið - 14.05.2007, Page 8
Tollskýrslugerð Hagnýtt og ítarlegt námskeið í gerð tollskýrslna. Kynntar eru helstu reglur er varða innflutning, innflutnings- takmarkanir og undanþágur. Farið er yfir fylgiskjöl með vörusendingum og hvaða tilgangi þau þjóna við innflutning og gerð tollskýrslna. Farið er m.a. yfir myndun tollverðs og útreikning aðflutningsgjalda. Kynntir eru fríverslunar- samningar og notkun tollskrárinnar. Lengd: 21 std. og er boðið uppá morgun- og kvöldnámskeið. Verð: 28.000.- Sérútbúin kennslubók og ítarefni innifalið. Morgunhópur. Kennsla hefst 18. maí og lýkur 25. maí. Kennt er mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 8.30 - 12. Kvöld og helgarhópur: Kennsla hefst 19. maí og lýkur 26. maí. Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl. 18 - 19.30 og laugardaga kl. 9 - 12.30. FAXAFEN 10 108 REYKJAVÍK GLERÁRGATA 36 600 AKUREYRI WWW.TSK.IS SKOLI@TSK.IS SÍMI: 544 2210 www.lyfja.is - Lifið heil ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 3 75 59 0 5/ 07 Acidophilus Bifidus + FOS Mjólkursýrugerlar, góðir fyrir meltinguna. Champignon DETOX + FOS og Spirulina Hreinsaðu líkamann að innan - minnkar óæskilega lykt. Milk Thistle DETOX Hreinsaðu líkamann að innan. Psyllium Husk Fibre Rúmmálsaukandi, gott fyrir meltinguna. 30% afsláttur af Vega vítamínum Ekki eru fordæmi þess að ríkis- stjórn starfi með eins manns meirihluta á Alþingi. Í tvígang á síðari árum hafa stjórnarflokkar fengið eins manns meirihluta í kosningum en ekki orðið framhald á samstarfi þeirra. Á þetta bendir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. „Stjórnin sem fór frá eftir kosningarnar 1991, seinni rík- isstjórn Stein- gríms Her- mannssonar, hafði eins manns meirihluta en einn flokkur; Alþýðuflokkur Jóns Baldvins Hannibalssonar, taldi það ekki nógu traust og vildi ekki halda áfram,“ segir Guðni. Ríkisstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks; Viðeyjarstjórn- in, var þá mynduð undir forsæti Davíðs Oddssonar. „Eftir kosningarnar 1995 hafði stórnin eins þingsætis meirihluta en Davíð treysti sér ekki í slíkt stjórnarsamstarf áfram þannig að hún hætti líka þrátt fyrir meiri- hlutann,“ segir Guðni. „Hefðin er því sú – ef hefð skyldi kalla út frá þessum tveimur dæmum – að eins sætis meirihluti þykir ekki duga.“ Guðni bendir þó á að þessi regla sé ekki einhlít, fjögurra manna meirihluti Viðreisnarstjórnarinn- ar tvö kjörtímabil hafi verið hlið- stæður eins manns meirihluta nú, því þá starfaði þingið í tveimur deildum. Kosningaúrslitin nú verða skráð í sögubækur því aldrei fyrr hefur ríkisstjórn haldið þingmeirihluta í kosningum eftir jafn langt sam- starf. „Viðreisnarstjórnin féll 1971 eftir tólf ára samstarf. Ákveði menn því að halda áfram nú slá þeir met.“ Eins sætis meirihluti ekki þótt traustur „Þetta er ekki ein af bestu kosning- um Sjálfstæðisflokksins líkt og for- maður hans hefur haldið fram. Hins vegar er þetta mjög góð kosning og í raun og veru stórmerkileg eftir þessa löngu stjórnarsetu,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófess- or í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, um fylgi Sjálfstæðisflokks- ins. Hann segir forystuskipti í flokknum lykilatriði úrslitanna. „Flokkurinn fór upp um tíu pró- sent við forystuskiptin og þau eru algjör forsenda fyrir þessari góðu stöðu hans núna.“ Að mati Gunnars Helga skiptir miklu máli fyrir Framsóknar- flokkinn að Siv Friðleifsdóttir hafi náð kjöri en það var ekki í spilun- um fyrr en langt var liði á taln- ingu. „Kjör Sivjar er táknrænt og það skiptir miklu máli að ná einum af sterkustu leiðtogum flokksins í þéttbýlinu á þing en þurrkast ekki alveg út. Það er mjög mikilvægt upp á framtíðina fyrir Framsókn og ljósi punkturinn í niðurstöðun- um – ef það er einhver ljós punkt- ur.“ Eftir fyrstu tölur stóð fylgi Sam- fylkingarinnar í um 30 prósentum en lækkaði eftir því sem leið á nóttina og stóð að lokum í tæpum 27 prósentum. „Þetta bara rétt sleppur fyrir horn,“ segir Gunnar Helgi. Frjálslyndir geti unað ágæt- lega við sitt, í raun sé sigur fyrir flokk af hans stærðargráðu að svo gott sem halda fylgi sínu. Staða Vinstri grænna sé mjög góð þó flokksmenn hefðu mátt vonast eftir betri kosningu. „Þetta kemur samt mjög vel út fyrir þá miðað við fyrri kosningar. Þetta er mjög sannfærandi fylgisaukning.“ Um framhaldið segir Gunnar Helgi erfitt að spá. Búið sé að gefa spilin og nú sé að spila úr þeim. „Geir Haarde hefur frumkvæðið en hann hlýtur að óttast að missa það. Hættan er að Framsókn vilji ljúka stjórnarsamstarfinu og taki þátt í viðræðum um vinstri stjórn. Helsta áhyggjuefni Jóns Sigurðs- sonar hlýtur að vera að þetta sé bara „pro forma“ hjá sjálfstæðis- mönnum; þeir ætli í raun og veru að vinna með Samfylkingunni en noti Framsókn til að halda frum- kvæðinu.“ Vantraust geti því bæði leitt til þess að stjórnin haldi áfram eða annar formannanna verði fyrri til og rjúfi griðin. Um stjórnarandstöðuflokkana segir Gunnar Helgi þörf samfylkingar- fólks á að komast í stjórn hrein- lega ljóma af flokksmönnum. Sú þörf sé einnig rík meðal Vinstri grænna, þó ekki jafn ofboðslega og hjá Samfylkingunni. Ný forysta jók fylgi Sjálfstæðisflokksins Kosningarnar sluppu fyrir horn hjá Samfylkingunni, kjör Sivjar er ljós punktur Fram- sóknar og frjálslyndir geta vel við unað, að mati stjórnmálafræðiprófessors. Fylgis- aukning VG er sannfærandi og ný forysta Sjálfstæðisflokks lykill að góðri stöðu hans. Tæplega tuttugu og tvö prósent kjósenda Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi strik- uðu yfir nafn Árna Johnsen í alþingiskosningunum á laugardag. Minna en þrjú prósent strikuðu yfir nafn Árna M. Mathiesen. Karl Gauti Hjaltason, oddviti yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi, segir talningu á yfirstrikunum hafa lokið í gær. „Um 24 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokks strik- uðu yfir einhvern eða breyttu röð- inni á framboðslistanum, og þar af voru tæplega 22 prósent sem strik- uðu yfir nafn Árna Johnsen.“ Að hans sögn voru útstrikanir ann- arra flokka óverulegar. Hann segist ekki geta svarað því hvaða afleiðingar þessar útstrikanir muni hafa, þeir útreikningar séu í höndum lands- kjörstjórnar sem skili niðurstöð- um á næstu dögum. Þorkell Helgason, einn þeirra sem samdi núverandi kosninga- kerfi, segir reglur um útstrikanir þannig að sé maður í öðru sæti lista í kjördæmi þar sem flokkurinn fær fjóra menn kjörna, falli hann um eitt sæti ef tólf og hálft prósent kjósenda strika yfir nafn hans. Í Reykjavíkurkjördæmi suður, þar sem Björn Bjarnason dóms- málaráðherra er á lista, verða útstrikanir taldar í dag. Rúmur fimmtungur vildi ekki Árna inn Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, krefst þess að Jón Sigurðsson, formaður Framsóknar- flokksins, biðji sig afsökunar vegna persónu- legra árása í sinn garð í kosningabaráttu flokksins. Þetta kom fram í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi. Í þættinum fullyrti Jón að ekki hefði verið á neinn hátt vegið viljandi að Steingrími í kosningabaráttu flokksins. Þó ætlaði hann að kynna sér málið á grundvelli þess sem Steingrímur hélt fram. Steingrímur sagði heiðvirða menn innan Framsóknarflokksins hafa leyft ungum áróðursmeistur- um að taka völdin í kosningabar- áttunni. Að sínu mati hefði það reynst flokknum mjög dýrkeypt í kosningunum á laugardag. Krefur Jón um afsökunarbeiðni

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.