Fréttablaðið - 14.05.2007, Side 10

Fréttablaðið - 14.05.2007, Side 10
Þrír þingmenn og einn ráðherra duttu út af þingi í kosningunum á sunnudag; Magnús Þór Hafsteinsson, Mörður Árnason, Sigurjón Þórðarson og Jónína Bjartmarz. „Það er líf fyrir og eftir Alþingi og allir möguleikar í stöðunni,“ segir Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra og lögmaður, „bæði skemmtileg störf og að rækta garðinn sinn. Ég er ekki hætt í pólitík. Pólitískur áhugi hverfur ekki þótt maður nái ekki endurkjöri.“ Magnús Þór Hafsteinsson er ekki hættur í pólitík þó að hann viti ekki alveg hvað hann fer að gera. „Ég ætla að halda áfram að starfa fyrir Frjálslynda flokkinn af fullum krafti. Það er enginn bilbugur á mér. Það er allt í lagi þó að ég detti út af þingi í smátíma. Ég kem aftur,“ segir hann. Sigurjón Þórðarson á von á því að flytja aftur á Krókinn og taka við sínu gamla starfi sem fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra á Sauðárkróki í haust. Hann býst við halda sig til hlés í pólitíkinni þegar hann er kominn aftur í stjórnsýsl- una. „Það hefur ekki verið mikill undirbúningur að þessari staðreynd. Það eina sem ég hef ákveðið er að ákveða ekkert í fljótheitum. Í fornsögum segir að bráðar séu blóðnætur sem þýðir á nútímamáli að maður á að telja upp að tíu,“ segir Mörður Árnason. „Úrslitin varpa ljósi á það hversu kosningakerfið er gallað,“ segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, en hann telur löngu orðið tímabært að jafna vægi atkvæða með breytingum á kjördæmaskip- an. „Þegar mjótt er á munum þá kemur í ljós hversu kosningakerf- ið er meingallað og ólýðræðislegt á margan hátt. Það þarf að jafna vægið, helst með því að hafa allt landið eitt kjördæmi, og síðan þyrfti að fjölga jöfnunarmönnum til þess að rétta hlutföllin sem liggja að baki hverjum þing- manni.“ Í Reykjavíkurkjördæmi norður komust fimm samfylkingarmenn á þing en flokkurinn fékk samtals 29,2 prósent atkvæða í kjördæm- inu. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 36,4 prósent atkvæða en samt ekki nema fjóra þingmenn. Baldur segir þessar tölur sýna að breytinga sé þörf. „Það er ekki lýðræðislegt að atkvæði sumra kjósenda vegi næstum eða rúm- lega tvöfalt meira en annarra. Til dæmis í Reykjavíkurkjördæmun- um þá fær Framsóknarflokkurinn 4.266 atkvæði en nær ekki inn neinum þingmanni, á meðan flokk- urinn fær 5.726 í Norðausturkjör- dæmi og þrjá þingmenn. Á þessu sést galli á kerfinu sem í raun felur í sér lýðræðishalla.“ Þorkell Helgason, sem samdi kosningakerfið, segir það aldrei geta verið alveg fullkomið. „Ég er ekki tilbúinn til þess að svara því hvort nauðsynlegt sé að breyta kerfinu á einhvern hátt, enda er það stórpólitískt mál sem ég er ekki tilbúinn til þess að blanda mér í. Hugsanlega þarf að skoða þessi mál betur með tilliti til búsetuflutninga fólks á síðustu árum.“ Stjórnarandstöðuflokkarnir, Samfylkingin, Vinstri græn og Frjálslyndi flokkurinn, fengu 48,4 prósent atkvæða en Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkur- inn 48,3 prósent. Stjórnin hélt því velli á minnihluta atkvæða, fékk 88.098 atkvæði á móti 88.111 atkvæðum stjórnarandstöðuflokk- anna. Meingallað kerfi sem þarf að breyta Baldur Þórhallsson segir kosningakerfið gallað og nauðsynlegt sé að breyta því. Best væri að breyta landinu öllu í eitt kjördæmi en nauðsynlegt er að fjölga jöfn- unarmönnum, segir Baldur. Lögin verða aldrei fullkomin, segir Þorkell Helgason. „Vissulega hefðum við viljað bæta við okkur og ná fimmta manni inn,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. „En miðað við allt og allt held ég að við getum sagt að við höfum staðið okkar plikt og tryggt að Frjálslyndi flokkurinn er kominn til að vera í íslenskri pólitík.“ Guðjón segir ekki einsýnt um ríkisstjórnarþátttöku frjáls- lyndra fyrr en það liggi fyrir að ríkisstjórnin sitji út kjörtímabil- ið. „Kaffibandalagið felldi ekki ríkisstjórnina, þannig að það eru sjálfagt allir stjórnarandstöðu- flokkarnir eins settir að því leytinu. Það þarf eitthvað meira að koma til en þeir til að mynda ríkisstjórn. Það er engu hægt að spá um það, en ef það gengur eftir að Framsóknarflokkurinn vilji ekki vera áfram í ríkis- stjórn, þá þarf náttúrulega einhver annar að fara í ríkis- stjórn.“ Frjálslyndir stóðu sína plikt „Það er beiskur veruleiki að við sitjum með meiri- hlutaríkisstjórn með minnihluta atkvæða á bak við sig,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, eftir þingflokksfund í gær. „Þjóðin hafnaði þessari stjórn og þá sérstaklega Framsóknarflokknum.“ Steingrímur segir ríkisstjórn- inni bera lýðræðislega og siðferðislega skyldu til að segja af sér. „Ég held að þeir fái harða dóma í samfélaginu ef þeir ætla að reyna að hanga á þessu.“ Varðandi aðra stjórnarmöguleika segist hann ekki útiloka neitt, ekki einu sinni samstarf Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknar. „Vissulega horfum við upp á að það sé möguleiki, og við útilokum ekki heldur samstarf með Sjálfstæðisflokki.“ Hann segir engar viðræður þó í gangi, enda sé boltinn hjá ríkisstjórn- inni. Þjóðin hafnaði ríkisstjórninni „Það er dapurlegt að ríkisstjórnin hélt velli. Það er augljóst,“ sagði Ómar Ragnars- son, formaður Íslandshreyfing- arinnar, að úrslit- um kunnum. „Það sem kom í veg fyrir að hún félli var ranglát kosningalöggjöf. Við vorum með fylgi fyrir tveimur þingmönnum en okkur var meinað um það vegna fimm prósenta reglunnar. Vegna hennar var rekinn mikill hræðsluáróður. Ég er sannfærður um að við hefðum komist yfir markið ef ekki hefði verið þessi hræðsla hjá kjósendum,“ segir hann og ítrekar að fylgi hreyfing- arinnar hafi helst verið tekið frá Sjálfstæðisflokki, samkvæmt skoðanakönnun. „Við komum í veg fyrir að sjálfstæðismenn ynnu enn meiri sigur.“ Íslandshreyfingin er ekki af baki dottin, segir Ómar. „Við erum með jafnmarga fulltrúa í borgar- stjórn og Framsóknarflokkurinn,“ segir hann og hlær. Kosningakerfið hélt stjórninni „Miðað við stöðuna eins og hún var lengst af eftir áramót þá er ég nokkuð sátt við okkar útkomu, en það eru vonbrigði að ríkisstjórnin skyldi halda með einum manni,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, eftir þingflokksfund í gær. „Stjórnin er strangt til tekið fallin þar sem hún hefur ekki meirihluta kjósenda á bak við sig, og ég tel að hún sé ekki starfhæf við þessar aðstæður.“ Ingibjörg segist vilja öfluga ríkisstjórn með góðan þingmeiri- hluta, og að Samfylking verði hluti af henni. „Annars vegar er möguleiki á R-lista samstarfi, en það veltur á því hvort Vinstri græn og framsóknarmenn geti grafið stríðsöxina. Hins vegar er samstarf okkar og Sjálfstæðis- flokks sem ég tel að geti fyllilega verið valkostur. Þetta er samt allt í höndunum á Geir H. Haarde og Jóni Sigurðssyni eins og er.“ Ríkisstjórnin ekki starfhæf

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.