Fréttablaðið - 14.05.2007, Page 19
Viðhaldsbókin mín er gagnagrunnur á netinu
þar sem hægt er að skrá allar framkvæmdir
fasteigna. Upplýsingarnar fylgja síðan eigninni
um ókomna tíð.
„Hugmyndin vaknaði síðastliðið sumar þegar sonur
minn ætlaði að kaupa íbúð. Sums staðar höfðu eig-
endur húsanna ekki hugmynd um ástandið á mikil-
vægum hlutum eins og þaki og skólpi. Þá datt mér í
hug að hanna gagnagrunn þar sem húseigendur geta
skráð allar framkvæmdir og halda utan um þessar
upplýsingar,“ segir Þóra Jónsdóttir sem hannaði og
rekur vefinn Viðhaldsbókin mín.
Vefurinn er gagnagrunnur þar er hægt að skrá inn
upplýsingar um framkvæmdir á fasteign notendum
að kostnaðarlausu. Upplýsingarnar fylgja síðan eign-
inni um ókomna tíð. Þóra segir að vefurinn henti jafn
fyrir húseigendur, húsfélög og fagmenn.
Eftir að hugmyndin fæddist tók Þóra þátt í Braut-
argengis-námskeiði, sem er frumkvöðlanámskeið
fyrir konur hjá Impru nýsköpunarmiðstöð. Á nám-
skeiðinu þróaði hún hugmyndina og vann viðskipta-
áætlun.
Hugmyndin þótti gífurlega góð og að námskeiði
loknu hlaut Þóra nýsköpunarstyrk fyrir Viðhaldsbók-
ina.
Þóra er sjálf eðlis- og tölvufræðingur og hefur
unnið gagnagrunninn og síðuna að mestu sjálf.
Nýlega fékk hún til liðs við sig Þórdísi B. Sigurþórs-
dóttur sem mun aðstoða Þóru við markaðsmál. Fram-
undan er frekari þróun á vefnum. Til stendur að not-
endur geti hrósað þeim fagmönnum sem vinna verkið
vel og einnig að fagmenn geti leitað að húseigendum
sem ætla í framkvæmdir.
Viðhaldsbókin mín er notendum að kostnaðarlausu
en Þóra stefnir á samstarf við styrktaraðila til að
geta þróað vefinn frekar.
Viðhaldsbókin mín er á vefnum: www.v3.is
Viðhaldið fært til bókar
Fullkomnasti farsími í heimi
Nokia N95
5 megapixla myndavél
mp3 spilari
3 Kynslóð
WLAN
GPS
100 fríar stafrænar framkallanir
frá Hans Petersen fylgja
Stæsta bloggsamfélagið á Íslandi
Tjáðu þig!
Viltu sýn’eikkað?
Ný útlit · Myndaalbúm · Símablogg
Stæsta
bloggsamfélagið!
Yfir 150.000
notendur!