Fréttablaðið - 14.05.2007, Qupperneq 20
Nýleg rannsókn leiðir í ljós að
iPod-spilarar geta haft trufl-
andi áhrif á gangráða.
Hundrað einstaklingar með
gangráða og meðalaldurinn 77 ár
tóku þátt í tilraun á áhrifum iPod-
spilara á gangráða sem fram fór í
Stofnun hjarta- og æðasjúkdóma í
Michigan-ríki í Bandaríkjunum.
Niðurstöður rannsóknarinnar
sýndu að í um helmingi tilfella
varð vart við raftruflanir í starf-
semi gangráðsins þegar iPod var
haldið um fimm sentimetrum frá
brjósti einstaklings með gangráð í
um fimm til tíu sekúndur. Í sumum
tilfellum olli iPod truflunum í allt
að 45 sm fjarlægð og í einu til-
felli hætti gangráðurinn alveg að
virka.
Tilraun sem þessi hefur ekki
verið gerð áður, aðallega þar sem
ekki hefur þótt þörf á því að fæst-
ir einstaklingar með gangráð eiga
iPod. Hins vegar var árið 1997
gerð slík tilraun með GSM-síma.
Þar kom í ljós að farsímar geta
valdið tímabundnum truflunum á
gangráðum og jafnvel ollið óreglu-
legum hjartslætti.
Með bættri tækni í gangráð-
um er notendum þeirra þó tjáð af
farsímaframleiðendum að GSM-
símar séu hættulausir en varast
eigi að geyma símann í skyrtuvasa
eða beint yfir gangráðnum. Hvort
það sama eigi við um iPod-spilara
verður tíminn og fleiri rannsóknir
að leiða í ljós.
Eldri iPod notendur
missa úr slag
Openhand gerir notendum
kleift að ná í tölvupóst í hvaða
forritanlega síma sem er.
Viðskiptahópurinn stækkar
stöðugt.
Openhand er hugbúnaðar-
fyrirtæki sem sérhæfir sig
í samskiptalausnum fyrir
farsíma. „Við gerum við-
skiptavinum okkar kleift
að nálgast allar upplýsing-
ar úr póstkerfum gegnum
símann sinn líkt og þeir
sætu við tölvuna sína,“
segir Davíð Stefán Guð-
mundsson, markaðsstjóri
Openhand.
Einn helsti kostur
Openhand-póstkerfis-
ins er að hægt er að nota
það í hvaða símtæki sem
er svo lengi sem það er
forritanlegt. „Það er
orðin mjög breið lína í
dag, sérstaklega hjá Nokia,“ segir
Davíð. „Menn velja sér líka fyrst
símtæki, svo viðbótarhugbúnað og
því er nauðsynlegt að hægt sé að
nýta hugbúnaðinn á sem flestum
símtækjum.“
Póstforrit í símum vilja oft vera
þung í vöfum og einungis bjóða
aðgang að þeim upplýsingum sem
í símtækinu eru. Davíð segir að
svo sé ekki með Openhand. „Með
Openhand færðu fullan aðgang
að öllum gögnum á léttan hátt,“
segir Davíð. „Allt snýst þetta um
að lækka rekstrarkostnaðinn og
að bjóða lausn sem er
þægileg viðbót við far-
símann án þess að kosta
of mikið.“
Openhand er einnig
hægt að setja á fartölv-
una og komast í tölvu-
póstinn með aðstoð sím-
ans hvar sem símasam-
band er. „Þú þarft ekki
að tengjast gegnum há-
hraðanet sem er bæði
dýrara og erfiðara,“
segir Davíð. „Þetta er því
mjög nett leið ef maður þarf
að nálgast póstinn sinn í bústaðn-
um eða á hótelherbergi.“
Openhand er með starfstöðvar á
Íslandi, Bretlandi, Ungverjalandi
og Þýskalandi og samstarfsaðila
í Skandinavíu og Suður-Afríku.
„Það liggur 17 ára starfsreynsla
að baki fyrirtækinu og viðskipta-
hópurinn stækkar stöðugt,“ segir
Davíð að lokum.
Fullur aðgangur að
tölvupósti í símanum
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið
MARKAÐURINN
Hafliði Helgason
í hádegisfréttum
Stöðvar 2 kl. 12:
alla virka daga