Fréttablaðið - 14.05.2007, Page 40

Fréttablaðið - 14.05.2007, Page 40
Ömurlegt að skilja strákana eftir í skítnum Nýliðar HK fengu sitt fyrsta stig í efstu deild Íslands- mótsins í knattspyrnu í gær eftir litlaust jafntefli við Víkinga á úti- velli. Gestirnir voru sprækari í fyrri hálfleik en Víkingar voru lík- legri til að ná sigurmarkinu undir lok síðari hálfleiks. Leikurinn byrjaði þokkalega og voru það gestirnir sem voru sprækari. Þeir fengu tvö ágæt færi snemma leiks en Bjarni Þórð- ur Halldórsson var vel á verði. Besta færið í fyrri hálfleik kom þó á 21. mínútu er Oliver Jäger átti skalla í slá eftir frábæra fyrirgjöf Kristjáns Ara Halldórssonar. Leikaðferð HK gekk út á að verjast aftarlega á vellinum en beita svo skyndisóknum. Svo sem skynsamleg aðferð á útivelli sem gekk ágætlega upp. HK-ingar voru fljótir að refsa fyrir mistök í sóknarleik Víkinga sem máttu þakka fyrir að hafa haldið hreinu í fyrri hálfleik. Frammistaða liðanna í síðari hálfleik voru gríðarleg vonbrigði. Það var ekki fyrr en undir lok leiksins að varamaðurinn Björn Viðar Ásbjörnsson fékk gullið tækifæri til að skora sigurmark- ið. Hann fékk boltann á fjærstöng- inni, einn og óvaldaður, en hitti boltann illa og Gunnleifur greip inn í. Björn Viðar náði öðru skoti að marki skömmu síðar en boltinn fór framhjá. Ólafur Júlíusson, varamaður HK, hafði besta færi sinna manna undir lokin er hann átti skalla að marki eftir hornspyrnu. Ásgrímur Albertsson, varnar- maður HK, átti engar skýringar á því af hverju hans menn voru svo daufir í síðari hálfleik. „Nei, leikurinn þróaðist bara þannig. Ég var ánægður með okkar leik, skipulagið á okkar leik var gott og við vörðumst vel. Við gáfum kannski eftir undir lokin en í heildina fannst mér við hættu- legri.“ Hann var þó ánægður með stig- ið í frumraun HK. „Við hefðum viljað vinna en sættum okkur við þetta.“ Af frammistöðu liðanna að dæma er ljóst að þau munu eiga í vandræðum í sumar. Liðin skorti allt frumkvæði og leikmönnum tókst afar sjaldan að gera sér mat úr sóknum sínum. Engin skrautsýning í Víkinni Nýliðinn Lewis Hamilt- on er kominn með tveggja stiga forustu í keppni ökumanna í For- múlu eitt eftir spænska kapp- aksturinn í gær. Felipe Massa hjá Ferrari vann öruggan sigur í Katalóníukappakstrinum en Lewis Hamilton náði öðru sætinu á undan félaga sínum hjá McLar- en, heimsmeistaranum Fern- ando Alonso. Hamilton er nú með tveggja stiga forustu á Alonso en Massa er síðan þriðji aðeins stigi á eftir. Massa hefur nú unnið tvær keppnir í röð. Massa vann en Lewis er efstur Árbæingar voru brosmild- ir á Kópavogsvelli í gærkvöld. Það ekki að ástæðulausu þar sem þeir nældu í þrjú mikilvæg stig gegn Blikum þrátt fyrir að geta lítið í leiknum og skapa sér sama og ekki neitt. Blikar voru manni færri lungann úr leiknum en voru samt betri en Fylkismenn sem vörðust vel. Fyrri hálfleikur var tilþrifalít- ill en þó var hart tekist á og ekki gefin tomma eftir. Blikar byrjuðu leikinn mikið mun betur og náðu yfirráðum á miðjunni þar sem miðjupar Fylkis Valur Fannar og Mads – voru arfaslakir. Vörn Fylkis var ekki mikið betri en mikill vandræðagangur var á varnarlínu Fylkis og til að bæta gráu ofan á svart var Fjalar í tómu tjóni fyrir aftan og hélt varla einum bolta. Það átti eftir að lag- ast mikið. Blikum tókst ekki að nýta sér yfirburði sína og gátu sjálfum sér um kennt að leiða ekki í hálfleik. Blikar voru meira að segja betri eftir að þeir misstu Prince af velli fyrir atvik sem gerðist fjarri bolta og undirritaður sá ekki. Hann er talinn hafa gefið olnbogaskot. Blikar voru áfram betri í upp- hafi síðari hálfleiks. Þeir sóttu hart að marki Fylkis á 55.mín- útu, voru nærri því að skora en þá brunuðu Fylkismenn upp í hraða- upphlaup. Christiansen hristi af sér varnarmann, hljóp framhjá Hjörvari markverði og skoraði í tómt markið. 0-1 fyrir Fylki. Blikar héldu áfram að stýra umferðinni eftir markið en gekk bölvanlegaa að skapa sér opin marktækifæri. Það var ekki fyrr en Gunnar Örn Jónsson kom af bekknum um miðjan hálfleik sem eitthvað púður kom í sóknirnar. Fylkismenn fögnuðu að vonum vel í lokin en þeir verða að bæta leik sinn mikið ætli þeir sér að gera einhverja hluti. Þeir fá tæp- lega fleiri gefins stig. Blikar geta borið höfuðið hátt, voru fínir í vörn, þéttir á miðju en vantaði kraft á seinasta þriðjungi vallar- ins og ekki nema von þar sem þeir voru manni færri. „Ég er drullusvekktur með úr- slitin en ánægður með spila- mennskuna. Við vorum manni færri lengi í leiknum og það sást ekki. Þetta var meira en meðalgóð- ur leikur hjá okkur,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks. „Við sköpuðum ekkert minna en Fylkir og áttum að klára okkar færi betur. Það var meira að gera hjá Fjalari en Hjörvari. Við áttum meira skilið í þessum leik en svona er þetta stundum.“ Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, var himinlifandi. „Við komum hér í fyrra, yfirspiluðum Breiðablik en fengum núll stig. Þess vegna er ég himinlifandi með úrslitin hér í dag. Þetta var svona „play ugly and win“,“ sagði Leif- ur léttur. „Mér fannst við ekki rétt stemmdir í byrjun og menn eitt- hvað stressaðir. Við vorum í vand- ræðum með að spila boltanum í þessum leik og þetta gekk erfiðar en við ætluðum okkur. Við tökum samt stigin fegins hendi.“ Fylkir fór með þrjú stig úr Kópavoginum eftir 0-1 sigur á Blikum í gær. Blikar voru mun betri en Fylkir gerði það eina sem Blikum tókst ekki – að skora. Lokeren, lið Rúnars Kristinssonar, tryggði sér áfram- haldandi veru í belgísku úrvals- deildinni í knattspyrnu með því að ná 1-1 jafntefli við Zulte-War- egem á útivelli um helgina. Rúnar var í leikbanni í leiknum en leikur kveðjuleik sinn á heima- velli um næstu helgi þegar Lo- keren tekur á móti botnliði Lier- se SK. Rúnar gaf það út á dögunum að ef Lokeren slippi við umspilið þá myndi hann kom heim strax eftir lokaleikinn og byrja að æfa og spila með KR í Landsbankadeild- inni. Lokeren öruggt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.