Tíminn - 13.04.1980, Síða 19
Sunnudagur 13. aprfl 1980
27
FRÍMERKJASAFNARINN
Arangur að
koma í ljós
Ég hefi hreint ekki verið svo
litið stoltur fyrir íslands hönd aö
undanförnu, miðað við þær
fréttir, sem hér hafa birst.
Þar er fyrst aö nefna árang-
urinn á INDIA-80 i Nýju Dehli.
Um þátttöku íslands segir I
einni frétt: „Aftur á móti var
þátttaka i bókmenntadeild góð
og i raun yfirgnæfði Islenska
þátttakan”. Ekki slæmt það, en
þarna var verið að lýsa nor-
rænni þátttöku I sýningunni. Og
norrænn árangur var svo sem
hér segir:
Stórt gull með heiðursverð-
launum: Christian Andersen frá
Danmörku.
Gyllt silfur: Hasse Brocken-
hausvon Löwenhjelm fyrir Ind-
versk rfki, en hann er sænskur.
Christian Andersen, fyrir
Færeyjar.
Agnar Presterud fyrir Rúss-
land.
Silfur: K.V. Fullow (D) fyrir
Finnland, Börje Walberg (S)
fyrir Kambodia-Laos, Eivind
Evensen (N) Noregur +
heiðursverðl., Frímerkjaklúbb-
ur Kaupmannahafnar, bók-
menntadeild.
Silfraö brons: Torben Brink
(D) Æskulýðsdeild, Henrik
Ælkjer Rassmussen, Æskul.d.,
Sigurður H. Þorsteinsson, bók-
menntadeild, Landssamband
Danskra Frimerkjasafnara,
bókm.d.
Brons: Peter Olsen (D) æsku-
lýðsdeild, Sigurður H. Þor-
steinsson, bókmenntadeild,
Landssamband Islenskra fri-
merkjasafnara, bóm.d.
Þá er næst aö taka fyrir hina
ágætu þátttöku íslendinga á
Nordia-80, sem er haldin i
Mlamö, 22-30. mars. Þetta er
með afbrigðum góð þátttaka og
eiga íslendingar þarna 12. sýn-
ingarefni en sýnendur eru 9.
Þetta er stórkostlegur árangur
hjá Sigurði R. Péturssyni um-
boðsmanni sýningarinnar. Ég
mun hér telja upp sýnendur og i
hvaða deildum þeir sýna.
Jón Aöalsteinn Jónsson: Hann
sýnir i Danmerkur-deild, safn
frá 1851-1870, en auk þess I
ramma 86 eitthvert efni, sem
ekki er getið um i sýningarskrá.
Þetta kemur I ljós þegar ég hefi
skoðað sýninguna og mun ég þá
flytja nánari fréttir af þvi.
Frank C. Mooney: sýnir I ís-
lands-deild númerastimplasafn
sitt, sem að minu mati er orðið
þaö heilasta, sem nú er þekkt.
SiguröurH. Þorsteinsson: sýnir
I Islands-deild, Forfrimerkja-
bréf og skildinga og i bók-
menntadeild, „tslensk frimerki
1980”.
Jóhaiin F. Guðmundsson: sýnir
I íslands-deild rikisstjómaraf-
mæli Chr. X. frá 14. og 15. mai
1937.
Helgi Gunnlaugsson: sýnir i ís-
lands-deild hluta af Lýöveldis-
safni.
ólafur Ellasson: sýnir hvers-
konar ógildingar á 20 aurar
Gullfoss.
Frlmerkjaklúbburinn ASKJA:
sýnir stimpla og merki úr Þing-
eyjarsýslu.
Hálfdan Helgason: sýnir notuð
póstbréfsefni I íslands-deild.
Jón Halldórsson: sýnir ónotuö
póstbréfsefni I Islands-deild.
Landssamband Islenskra frf-
merkjasafnara: sýnir Grúsk I
bókmenntadeild.
Þetta var ekki svo lítiö af ts-
lendingum að vera. 1 tslands-
deildinni eru 9 tslendingar af 12
þátttakendum eöa 66,6%.
Eitthvert slys virðist hafa
oröið I sambandi viö INDIA-80,
en þar hafði Jón Aðalsteinn
Jónsson, tilkynnt þátttöku með
bóksinni,sem þóhvergiergetiö
Ifréttum frá sýningunni. Mér er
hins vegar kunnugt um að bókin
var send, sbr. þætti Jóns, en
viröisthafaglatast ipósti. Hér á
Norwex er bókin þegar komin,
og hafa henni verið dæmd sln
verölaun, en dómnefnd I bók-
menntadeild lauk störfum um
helgina 6-9. mars. Þá eru auk
þessarar bókar hér á sýning-
unni, „Grúsk” frá Landssam-
bandinu og tslensk frlmerki frá
undirrituðum ásamt póstsögu-
bæklingunum, sem eru gefnir lít
i Kaupmannahöfn, er þriðja
heftið að koma út um þessar
mundir. tdómnefndinni sátu að
þessu sinni 4 menn. Það voru:
Charles Peterson (USA) for-
maður bókmenntanefndar FIP.
Emil M. Mewes (BFD). Ib
Eichner-Larsen (D) og Tryggve
Sommerfeldt (N). Þurftu þeir
að dæma á þriðja hundraö bæk-
ur, timarit og verðlista. Hinar
endanlegu niðurstöður dóma
þeirra verða þó ekki kunngjörð-
ar, fyrr en á lokahófi sýningar-
innar, Palmarés á Hotel
Skandinavia, hinn 20. júnl 1
sumar.
Það er glæsilegt að sjá alla
þessa islensku þátttöku. Það er
jafnsorglegt að sjá, að við för-
um á mis við verðlaun vegna
mistaka, hjá pósti, sýningar-
nefnd eða hver þaö nú er Þar vil
ég nefna 3. dæmi. Áður er nefnt
aðbók Jóns Aöalsteins Jónsson-
ar hefir ekki komið fram á
India. Þá hefir Isafoldarprents-
miðja ekki sent eintök af verð-
lista minum, þrátt fyrir Itrekað-
ar beiðnir, til aö senda á sýning-
arnar. Varö ég að kaupa I Dan-
mörku eintök frá 1979 til að geta
sent inn nógu tímanlega á Nor-
wex. Frimerkjamiöstöðin sendi
mér svo nokkur eintök til aö
senda á INDIA og LONDON. Nú
i gær barst mér svo bréf um aö
listinnværi ekki kominn fram i
London. Til allrar hamingju átti
ég kvittun fyrir sendingunni,
sem var I ábyrgöarbréfi, ásamt
uppgjöri fyrir þátttöku íslend-
inga 1 sýningunni, svo að póstur-
inn, eða sýningarnefnd standa
ábyrg fyrir innihaldi bréfsins
þótt verðlaun séu glötuö. Þá
stend ég uppi eins og þvara
frammi frir Nordia 1980, með
engan verðlista til að senda, þvl
enn kemur ekkert frá tsafold.
Viö skulum vona að úr rætist.
Að Noediu lokinni mun ég svo
senda heim þátt um hana og
árangurinn þar, ennúerþessað
gæta, að hér ætti aö vera um að
ræöa ótvlræða dóma, sem skera
alveg úr um hvort efni sýnt
þarna er tækt á alþjóðlegar sýn-
ingar. Þeir sem fá silfur eöa
meira, komast áfram. Sá sem
fær silfur á svona sýningu, á rétt
á 5 römmum á alþjóölegri sýn-
mgu en hvað sem er meira geft-
ur rétt til 10 ramma. Við sjáum
hvað setur.
Asker 14.3 1980.
Sigurður H. Þorsteinsson.
Vísna-
gátur
Enn koma nýjar vlsnagátur
handa fólki til að spreyta sig á.
Þær eru að þessu sinni:
t þeim sátu svannar tltt
— sundur Egill hjó.
Enn I sumum eyjum nýtt,
einnig hrannajó.
Hana er slæmt aö hljóta á egg.
Hún er til að festa.
Fyrir taugar, nám og negg
nauðsyn allra mesta.
Lausnarorö tveggja siðustu
gátna var: Fall — Lán.
Morgunhani með LM, MB og FM.
Gengur alveg hljóðlaust.
Verð kr. 37.780,-
heimilistæki
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655
Útvarpstæki LB MB og FM.
Bæði fyrir rafhlöður og rafmagn.
Verð kr. 36.336.-
Hárburstasett með 4 fylgihlutum. 800 W.
Verð kr. 33.596.-
Rakvél meö 2,
12 blaða hnífum.
Verö kr. 48.231.-
Segulband fyrir bæði rafhlöður og rafmagn.
Innbyggður hljóðnemi.
kr. 62.240.-
Plötuspilari með innbyggðum magnara.
Hátalarar fylgja. Verð kr. 120.215-
Segulband fyrir rafhlöður.
Innbyggður hljóðnemi.
Verð kr. 54.560.-
Sambyggt útvarp og segulband, fyrir rafhlöðu
og rafmagn. LB, MB og FM.
Innbyggður hljóðnemi. Verö kr. 134.704,-
Utvarpstæki LB og MB.
Aðeins fyrir rafhlöður.
Verð kr. 14.217,-