Tíminn - 18.05.1980, Síða 2

Tíminn - 18.05.1980, Síða 2
2 Sunnudagur 18. mai 1980 Fáeinar laglegar vísur úr gmsum áttum: „Lítinn kvóta kvenna sinna karlar hljóta í lokrekkjunni” Ær og kvr og merar meta......möppudýr á Hólastað. Nd er mjög til umræðu hiö svo- kaliaöa kvótakerfi, sem visir menn hafa timbraö saman og i uppsiglingu er til takmörkunar á framleiöslu búvöru, sem torselj- anleg er á viðunandi veröi. Skrif- finnska mikil og útreikningar er undanfari þessa nýja kerfis, og hafa þar ýmsir veriö til kallaöir. Eins og kunnugt er hefur Hóla- skóli oröiö hart Uti, i vetur lá bændaskólinn á þessu höfuöbóli feöra vorra niöri. Tveir fyrr- verandi kennarar þessa afrækta bændaskóla voru þess vegna fengnir til þess aö reikna fram- leiöslukvóta bænda i Noröur- landsumdæmi vestra. Voru þaö þeir Matthias Eggertsson og Sig- tryggur J. Björnsson og hlutu þeir skrifstofu i húsi bændaskólans. Fyrstu vikuna, sem þeir kennararnir voru viö þetta starf, sendi granni þeirra, Rósberg G. Snædal, þeim eina visu á dag til hugnunar og hughreystingar í gllmunni viö tölustafina. Sunnu- daginn 13. aprll fengu þeir vlsu I veganesti: Skakkar eru skýrslur allar skuldum vaföir bændur spóla en möppudýr og kerfiskallar kúra inni I bændaskóla. Síöan hlotnaöist þeim ný vlsa meö hverjum nýjum deg'i vikuna út. Upp i móti æviveg allir hljóta aö svamia. Eftir kvótakerfi ég keyri Skódann gamla. Nú mun þrjóta næturvinna, nú má hrjóta opnum munni. Litinn kvóta kvenna sinna karlar hljóta f lok- rekkjunni. Reisa löppum riöa á rollan siöpp og kýrin. Bændum kröppu kjörin ljá kvóta-möppudýrin. Viö kerfiskörlum bölvum og kveðum svo fast aö oröum: Nú totta þeir bændur meö tölvum sem tilberi og snakkur foröum. Lukkufýrar letrað geta lögin sííýr á eyöublaö. Ær og kýr og merar meta möppudýr á HÓlastaö. Loks rann upp laugardagurinn 19. aprll og vikan senn úti. Þá kom kveöjuskeytið: Alltaf verö ég minni og minni, máttvana i lifsins brasi. Ég er ekki einu sinni ærgiidi hjá Matthiasi Núna I mánuöinum birtist dálít- il frásögn I VIsi, og fylgdu myndir meö Norölenzk kona hafði sent blaöinu pils, vesti og tösku, er hún haföi prjónaö úr Islenzkri ull, og beöiö það aö færa Vigdísi Finn- bogadóttur þessar flíkur. Fylgdu meö þau orö gefandans, aö grein eftir Þorstein Sæmundsson I Morgunblaöinu heföi oröið sér hvöt til þess aö votta Vigdisi virö- ingu slna á þennan hátt. En þess ber þá jafnframtað geta, aö grein Þorsteins var ekki af allra hlýleg- asta og vinsamlegasta tagi I garö Vigdlsar. Vigdls klæddist fllkunum þeg- ar, er henni voru færöar þær, og hafði blaöamaöur Visis eftir henni, að henni liði strax vel I þeim. ,,Ef ég þarf aö bera eitt- hvað serstaklega glæsilegt, þá fer ég i þetta”, sagöi hún — ,,viö skulum geyma að nefna daginn”. Nú hefur önnur kona, sem ekki vill láta sln getið fremur en_ sú norölenzka, sem prjónaði stáss- fllkurnar til þess aö gefa Vigdlsi, sett saman um þetta vísu. Hefur höfundur gert sér svo dælt viö Vigdisi aö yrkja vlsuna i oröastaö hennar og snúa þakklætinu upp á Þorstein enda orö hans kveikjan aö gjöfinni. Visan er á þessa leiö: Engan ég á aö sem þig, efstan vina á blaöi, þér fórst vel að fata mig til ferðar i Bessastaði. Þjóöskjalasafniö fékk hér á ár- unum nýjan starfsmann, sem nefndur var æviskrárritari, og var séra Jón Skagan ráðinn I það starf. Séra Helgi Sveinsson I Hverageröi var þá tiöur gestur I safninu, og bar ósjaldan við, aö hann geröi vlsur um eitt og ann- aö, sem þar var á seyöi. Um ævi- skrárnar kvaö hann þetta: Menn koma f heiminn og falia frá. og fjöldanum gleymir sagan en eftir cr svolitil æviskrá, innfærö af Jóni Skagan. A biaöinu nafn og æviár og afkvæmin neöan viö strikið en iniöinn er pen og pinusmár, þvi pappirinn kostar svo mikið Efst á blaöinu er örlitii kré meö einhverju sögukorni. Ætli ekki Brynleifi þætti þó þröngt um sig I þvi horni? Til skýringar er þess að geta, aö Brynjólfur Tobiasson mennta- skólakennari hafði, alllöngu áöur en hér komið, safnað til bóka, sem nefndust Hver er maöurinn? og var þar tiltölulega rækilega lýst ævi sumra þeirra, sem hann tók I rit sln. Fólki er I minni fjaðrafokiö, þegar Davlö keypti öliö og margir virðast einnig hafa sperrt eyrun, þegar birt var skýrsla um áfeng- iö, sem stjórnmálamenn og embættismenn sumir fá á niöur- greiðsluveröi. I Hnappadalssýslu er ekki svo lltið um, aö menn kasti fram vls- um, og þá Iþrótt þreytir fólk þar iöulega á samkomum. Mest er þetta um dægurmál, og eru um tvö hundruö- vísur I syrpunni, sem orðið hefur til á siðustu skemmtunum bremur. Margrét Guöjónsdóttir I Dals- mynni I Eyjahreppi á þar sinn hlut. Henni þótti kynlegt aö frétta, að rikiö lætur sumum mönnum I té áfengi og tóbak á litlu verði, nóg er launamisréttiö samt, segir hún, og að henni læddist sá grunur, aö kannski væri ekki með felldu, hvernig sumir þingmenn vaða uppi meö raus og læti I þingsölunum. Vísurnar eru svona: Afkoman væri eflaust fin á okkar feöraláöi, ef þeir fengju ekkert vin uppi I stjórnarráði. A þingiö missir þjóöin trú. Þegnana grunar stundum, að ýmsir séu ekki nú alls gáöir á fundum. Oft er margur endi laus, I ýmsum þó að syngi, og dæmalaust er drykkjuraus dapurlegt á þingi. t framhaldi af þessu hvarflar hugur hennar aö þeim kvótum, sem bændum og sjómönnum eru settir: A þvi sé ég engan ljóma, þeir ættu bara aö skamm- ast sln. Þingmenn ættu aö sjá sinn sóma. aö setja kvóta á brennivín. Margréjt á það til aö senda Reykjavíkurblöðum visur og bréf. Eitt sinn, þegar Friörik Sófuss. fjölyrti mest um bákniö sem hann vildi burt, baö hún Morgunblaðið fyrir þessa orö- sendingu til ungra Sjalfstæðis- manna, og var þaö rétt fyrir borgarstjórnarkosningarnar I Reykjavik: t einlægni er um þaö spurt, hvort ekki er vel til fundiö aö reka ihaidsbákniö burt úr borginni viö sundiö. Þessari spurningu vildi Morgunblaðið ekki koma á fram- færi, svo nákomiö sem hún var þvl, og Margrét var sett á svartan lista fyrir vikið og fær ekki lengur birt lesendabréf hjá þvi, þótt und- ir fullu nafni séu. I þetta skipti látum við svo koma I lokin tvær gamlar vísur, sem Halldór Gunnlaugsson lækn- ir orti: Ung mey er sem fley úti fyrir landi. Fer á sker, ef ekki er áttaviti I standi. Freistingum ferlegum fram hjá þarf aö slaga. Hjónaband, boði, strand — búin meyjar saga. Og þau verða sögulokin þennan sunnudaginn, þótt snubbótt kunni aö þykja. JH Útboð Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð- um i byggingu aðveitustöðvar á Vopna- firði. (Jtboðið nær til byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e. jarðvinnu, stöðvarhúss og undirstaða fyrir spenna og girðingu. Útboðsgögn fást keypt á skrifstofum okk- ar i Reykjavik og á Egilsstöðum og kosta 10.000 kr. hvert eintak. Tilboðin, sem skulu merkt RARIK 80024, verða opnuð á skrifstofu okkar að Laugavegi 118, þriðju- daginn 3. júni 1980 kl. 1100, og þurfa þvi að hafa borist fyrir þann tima. RAFMAGNSVEITUR RÍKISiNS Innkaupadeild. Aug/ýsið í Tímanum 15 ára drengur óskar eftir sveita- plássi. Er vanur. Upplýsingar i síma 43148. ZAGA hjólmúgavélar fyrirliggjandi Vinnslubreidd 2,0 m og 2,5 m. Hagstætt verð. g ÁRMClLAn

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.