Tíminn - 18.05.1980, Blaðsíða 23

Tíminn - 18.05.1980, Blaðsíða 23
Sunnudagur 18. mai 1980 UiíMííL 31 Nær á mvndinni er Llkastapi, en Skarfastapi fjær. Úr Fífustaðadal í Amarfirði Fifustabadalur hefur einnig vériö nefndur ööru nafni, sem er Kolmáladalur. Þetta nafn hefur litiö veriö notaö manna á milli I daglegu tali. Til vesturs fram I Fifustaöadal er hnúkur, fjalls- horn, sem nefnt er Elrfkshorn og af sumum kallaö Kolmúli. Skoö- anir eru uppi um, aö hér sé um aö ræöa tvo staöi, er hvor beri sitt nafn. Sögn er um það, aö fyrr á öldum hafi veriö þar mikill skógur, sem brunnið hafi allur, hafi múlinn þá hlotið nafniö Kol- múli, en aalurinn viö hann kenndur. (Arbók Ferðafélags fslands, 1959, bls 149). Býlið Fifustaðir er við mynni dalsins til vesturs. Þetta er mikil og góö jörö, og þar var lengi búið stóru búi og góðu. Þarna er og hefur verið þing- staöur hreppsins frá fyrstu tiö, að best er vitað. Allra fyrst var skipting Ketildalahrepps á annan veg en nú er . Þá voru tveir þing- staðir I sveitinni. Var vorþing háð aö Fifustöðum, en haustþing var I Hvestu. 1 þessu sambandi er rétt að geta þess, að I Hvestu er örnefnið Gálgasteinar. Frá Flfustöðum var á sinum tima mikið útræði i tugi ára. Lendingin þar var nefnd Stöðin. Þá var sótt á fiskimið I firöinum. Við ytri landamerki Flfustaða gengur klettur úr urðardrögum I sjó fram. Sagt er, að við klettinn hafi fundist mannslík sjórekiö. Þvl heiti stapinn eöa þessi klettur Likastapi. Þaö mun oft hafa komiö fyrir áöur á tlmum aö bera varð llk, eða draga á sleða, er greftrun fór fram frá Selárdalskirkju að vetri til og ekki gaf sjóleiöina I Selárda*. Heyrst hefur, aö I sliku tilfelli hafi það verið venja, að llk- burðarmenn hvlldu sig á þessum stapa, aöur en farið var upp sneiöinginn, sem var afar brattur og erfiður. Nafnið Llkastapi getur eins hafa oröiö til meö þessum hætti, að sumir ætla. Nokkuö innar en Llkastapi eru klettar I sjó fram. Einn þeirra er kallaður Skarfastapi. A kletti þessum situr oft fugl, einn eöa fleiri. Það er skarfur og hefur hann frammi vængjablak mikið, ef vel viðrar. Skarfastapi viröist hallast lltiö eitt. Og þjóösagan segir, að stapinn eigi að falla, þegar sjö bræöur á báti róa undir hann. Lárus Jón Guðmundsson frá Bakka. SKÁK Umsjón: Jón Þ. Þór Ungir og efnilegir Sovétmenn Fyrir nokkrum vikum var hér I þættinum fjallaö um 47. skák- þing Sovétrikjanna, og hinn ó- vænta sigur Efims Geller. En þótt Geller væri hinn óumdeilanlegi sigurvegari mótsins má þó meö fullum rétti kalla það mót ungu mannanna. I 2. sæti varö ungur og lltt þekktur meistari, A. Jussupow og I 3.-4. sæti þeir Harri Karparow og Juri Bala- schow. Þeir Jussupow og Karparow eru báöir kornungir, Jussupow 19 ára, Karparow 17, og þótt Balaschow veröi ekki talinn jafnaldri þeirra, hlýtur hann þó að teljast ungur skák- maöur, rétt liölega þrltugur. Og ef við höldum áfram með töfl- una kemur i ljós, að ungir menn skipuðu sé einnig I næstu sæti. 1 5.-7. sæti urðu þeir T. Geogradse, W.-Kupreitschik og S. Makarytschew, og I 8. sæti kom svo Rafael Waganjan. Ef marka má úrslit þessa móts þurfa Sovétmenn siður en svo að kvlöa framtlðinni á sviði skáklistarinnar. Þeir viröast vera eö eignast öflugri sveit ungra meistara en nokkru sinni fyrr. Og nú skulum við llta á eina skák frá hendi A. Jussu- pows, en hún er gott sýnishorn af taflmennsku hans I mótinu. Hvitt: A. Jussupow Svart: R. Waganjan. Drottningarpeðsbyrjun 1. d4 Rf6 2. Rf3 C5 3. d5 b5 4. Bg5 d6 5. Bxf6 exf6 6. e4 a6 7. a4 b4 (Hvltur hefur teflt byrjunina ó- reglulega forðast aö fylgja „ó- teóriunni”. Staöan, sem nú er komin upp er honum þó ó- neitanlega hagstæð. Hann hefur rýmri stöðu á miðborðinu og full völd yfir reitnum c4, sem á eftir að koma sér vel). 8. Bd3 g6 9. Rbd2 Bg7 10. Rc4 a5 11. 0-0 Dc7 12. Rfd2 0-0 13. f4 Rd7 14. Khl He8 15. Df3 Ba6 16. Hael He7 17. g4 Hae8 18. Hgl Hb8 19. He2 Bxc4(?) (Það er vel skiljanlegt að svart- ur vilji losna við riddarann á c4. Gallinn er bara sá, að nú hefur svartur enga von um mótspil og verður að biða á meöan hvitur byggir I rólegheitum upp sterka sókn á kóngsvæng). 20. Bxc4 Kh8 21. b3 Hg8 22. Hg3 g5 23. Hh3 Rf8 24. f5 Rd7 25. Hh5 Bf8 26. h4 Hg6?! (Leikiö 1 þeirri von að hvltur missi þolinmæðina og leiki 27. fxg6, en eftir 27. — fxg6 ynni svartur hrókinn aftur. Hvltur fellur ekki I þessa einföldu gildru og nú veröur svarta peða- staðan enn veikari en áöur). 27. hxg5! Hxg5 28. Hh4 Re5 29. Dh3 KgS 30. Hxh7 Bg7 31. Hh2 (Hótar Hh8+ og máti I næsta leik.) 31. .... Kf8 32. Rf3 Rxf3 33. Dxf3 He5 34. Df4 Dd8 35. Bb5 Kg8 36. H2h4 Kf8? 37. Kg2? (Lengir baráttuna óþarflega mikið. Með 37. Hh8+ - — Bxh8, 38. Hxh8+ — Hg8, 39. Dh6+ — Ke7, 40. g5 gat hvltur neytt and- stæöing sinn til uppgjafar). 37 Ke7 38. Kf3 Df8 39. Dh2 Kd8 40. Bc6 Ke7 41. De2 Dd8 42. Dfl (Biöleikurinn). 42 Kf8 43. Dhl Ke7 (Hvítur hótaöi 44. Hg7) 44. H4h5 Df8 45. Dfl Dc8?! (Svartur gat bjargað liði sinu með 45. — Hxh5, 46. gxh5 — Dg8, en eftir 47. Da6! hefðu máthót- anir hvits oröið honum ofviöa). 46. Hxg5 fxg5 47. Hxg7 Dh8 48. Hxg5 Dh2 49. Hg8 f6 50. He8+ Kf7 51. HxeSog svartur gafst upp. Jón Þ. Þór. GERÐ TH 460 ■ Þetta er nýja tæknin frá Fella. Heyþyrlan er mjög sterklega byggð og viðhaldskostnaður því sára lítill. Vinnslubreidd 4,60 m og breidd í flutningsstöðu 2,75 m. Vélin hefur fjórar snúningsstjörnur og sex arma á hverri stjörnu. Dreifir því mjög vel úr múgunum og tætir heyið. Vinnur alveg út að skurðköntum og fylgir vel eftir á ójöfnum. Vinnuafköst eru mikil og hentar þessi vél öllum stærri búum. Sjörnumúgavél GERÐ TS 300 Vinnslubreidd 2,80 m. Hentar mjög vel til að raka saman í garða fyrir heybindivélar. Fljótvirk og skilar múgunum jöfnum sem gefur betri bindingu. Hafið samband við sölumenn okkar sem gefa allar nánari upplýsingar. LÁGMÚLI 5, SlMI 81555

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.