Tíminn - 18.05.1980, Blaðsíða 6

Tíminn - 18.05.1980, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 18. mai 1980 raiy.ití Ctgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur Ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisiason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar SIÖu- múla 15. Simi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 230.- Áskriftargjald kr.; 4.500 á mánuöi. V. Blaöaprent. Tímabært innlegg Geðverndarmál eru eitt mikilvægasta svið heil- brigðismálanna. Fyrir nokkru var lögð fram á Alþingi þingsályktunartillaga um heildarendur- skoðun þessara mála með það fyrir augum að bæta úr þvi sem á sæmilegt skipulag hefur skort til þessa. Það er brýnt að vel sé staðið að þessum málum, m.a. vegna þess hversu viðkvæm þau eru og mikið i húfi ef út af ber. Davið Aðalsteinsson alþingismaður, sem er einn flutningsmanna þingsályktunartillögunnar, fjallaði um þessi mál við umræðu um tillöguna á Alþingi. Hann sagði m.a. i ræðu sinni: ,,Ég hygg að það sé ekki ofmælt að engin grein innan heilbrigðiskerfisins eigi við að etja jafnhat- ramma fordóma og einmitt geðheilbrigðismál. Ég gæti trúað að margir þeirra sem heilbrigðir teljast kveinki sér jafnvel við að tala um geðsjúkdóma nema þá kannski i hálfum hljóðum. Þeir fordómar sem ég nefndi eiga fyrst og fremst rætur i vanþekk- ingu og skilningsleysi þeirra sem heilbrigðir telj- ast. Þvi miður kemur það fyrir að sá sem leitar meðferðar vegna andlegrar vanheilsu er litilsvirtur og jafnvel um langan tima brennimerktur i þvi um- hverfi sem hann lifir og starfar i. Einmitt þess vegna veigra margir sér við þvi að leita sér hjálpar fyrr en i óefni er komið og lækning öll verður mun erfiðari. Það er mjög mikilvægt að berjast gegn þeim for- dómum sem ég áður nefndi, m.a. með stóraukinni fræðslu. Og það þarf að vera hægt að ná til sjúkra á byrjunarstigi. Þess vegna er opnun neyðarþjónustu á göngudeild mjög brýn, þar sem sérhæft starfsfólk væri til taks allan sólarhringinn; helga daga sem virka, og fólki veittist eins auðvelt að nálgast þessa hjálp og mögulegt væri.” í ræðu sinni vakti Davið Aðalsteinsson athygli á þvi að andlega vanheilsu má m.a. rekja til þeirrar þjóðfélagsgerðar sem þjóðin býr við. Um þetta sagði Davið m.a.: ,,í sjálfu sér þarf það ekki að vera neinum undr- unarefni þótt ýmsir láti bugast i öllum þeim hraða, i allri þeirri spennu og allri þeirri kröfuhörku sem leiðir svo af sér þetta streituþjóðfélag okkar. Við þurfum að koma i veg fyrir það að vanheilir á geði verði fyrir aukaálagi fordóma að meðferð lok- inni þegar þeir reyna að taka sér sess i fjölskyldu, | atvinnu og i samfélagi. Ég held að það væri ástæða til að leggja meiri á- herslu á hina almennu stjórnun innan heilbrigðis- kerfisins ásamt þvi að einfalda allt skipulag og starfshætti og stuðla að meira samstarfi hinna ýmsu heilbrigðisstétta. ’ ’ Heilbrigðismálin eru eitt mikilvægasta verkefna- svið velferðarþjóðfélagsins og af öllum ástæðum nauðsynlegt að staðið sé að þeim af myndarskap. Þingsályktunartillagan um geðheilbrigðismál er timabært innlegg i þær umræður sem eiga sér stað um þessi mikilvægu mál. JS Erlent yfirlit Þórarinn Þórarinsson: Hún nær frá Eystrasalti til Alpafjalla Forsetinn rsöir viö blaöamenn, en öryggisveröir fylgja á eftir. ÞAÐ var á ýmsan hátt erfitt fyrir Karl Carstens aö taka við forsetaembættinu i Vest- ur-Þýzkalandi, en hann var kjörinn til þess starfs á siðastl. sumri. A stæðan var ekki sízt sú, að fráfarandi forseti, Walter Scheel, haföi unnið sér miklar persónulegar vinsældir vegna framkomu sinnar. Skoðanakannanir höfðu leitt i ljós, aö mikill meirihluti kjós- enda óskaði eftir að Scheel yrði forseti áfram. Scheel mun lika hafa haft áhuga á að vera það. Kristilegir demókratar neituðu hins vegar harðlega að kjósa hann, en þeir höfðu einir meiri- hluta á þeirri kjörmannaráð- stefnu, sem velur forsetann. Scheel hafði á sinum tima verið kjörinn af sósialdemó- krötum og frjálslyndum demó- krötum, sem þá höfðu meiri- hluta á ráðstefnunni. Það var eins konar viöurkenning fyrir það, að hann hafði átt manna mestan þátt I þvi að koma á stjórnarsamstarfi þessara flokka, en áður höfðu frjálslynd- ir og kristilegir unnið saman. Af sömu ástæðu töldu töldu kristi- legir, að Scheel verðskuldaöi ekki, aö þeir ættu þátt i endur- kjöri hans sem forseta. Gaumgæfilega var athugaö, hvort einhver af fulltrúum kristilegra væri fáanlegur til að kjósa Scheel, en litlu munaði. Það gerðu leiðtogar kristilegra sér einnig ljóst, og gerðu sitt bezta til aö halda hjörðinni sam- an. Það tókst. Að þessari athug- un lokinni, tilkynnti Scheel að hann gæfi ekki kost á sér. I stað hans völdu kristilegir Karl Carstens sem forseta. Á vissan hátt var hann eins ólikur Scheel I framgöngu og hugsazt gat. Scheel er glaðvær og bros- mildur og á auðvelt með að ræða við hvern sem var. Car- stens er þurr og hátiölegur i við- móti og ekki við alþýðuskap. Ef til vill stafar þetta af þvi aö einhverju leyti, að Scheel haföi starfað sem sölumaður og þurfti þá á þægilegu viðmóti aö halda. Carstens haföi lengstum verið embættismaöur og tamið sér heföbundna framkomu þýzkra embættismanna. ÞAÐ bættist svo við þetta, aö Carstens var talinn hafa staöiö nálægt nazistum i valdatið þeirra. Þaö var honum til máls- bóta, að fleiri höfðu oröið aö vera i samtökum þeirra i upp- vextinum. Bæði Scheel og Hel- mut Schmidt höfðu verið skráð- ir i æskulýössamtök nazista. Carstens gerði sér ljóst af framangreindum ástæðum, að hann yrði að gripa til sérstakra ráða eöa ráös, ef hann átti að vinna sér hug og velvild al- mennings I likingu við Scheel. Forsetinn hressir sig á súpu Sitthvað var tekið til athugunar. Að lokum fannst ráðiö. For- setinn skyldi fara i mikla gönguferð eða alla leiö frá Eystrasalti til Alpafjalla. Leið- in, sem hann gengi, skyldi eng- an veginn vera sú stytzta, held- ur talsvert krókótt, svo að hann gæti fariö um sem flest þorp og .borgir, þótt frekar yrði sneitt hjá stórborgum af umferðar- ástæðum. Forsetinn skyldi ekki stefna að þvi að ljúka þessari göngu- ferö I einum áfanga, enda leyfði ekki embætti hans svo langa fjarveru i einu. Hann skyldi i staðinn fara i tveggja eða þriggja daga gönguferð mánaðarlega og ljúka göngu- feröinni á tveimur árum. Miðað yrði við það, að hann gengi 20-25 km á dag eftir þvi, hvernig vegirnir væru og viökomurnar margar. Á góðum vegi var gert ráð fyrir, að forsetinn gengi sjö km á klukkustund. Forsetinn skyldi ekki láta veðráttu breyta áætlun sinni. Stormur, regn eöa snjókoma skyldu ekki hafa áhrif á hana. FRAM að þessu hefur forset- inn fylgt áætlun sinni og ekki látiö veöurguðina breyta henni. Stundum hefur rignt og snjóað á hann, en hann haldiö göngunni áfram, eins og ekkert hafi I skorizt. í rauninni er ekki hægt að tala um vont veöur, segir hann aö fenginni reynslu, ef menn klæða sig rétt. Gangan sé þó erfiðust, þegar mjög heitt er i veðri. Blaðamenn, sem jafnan eru allmargir I göngunni með for- setanum, telja hana hafa heppnazt mjög vel til þessa. Embættissvipurinn fer af íor- setanum, þegar hann byrjar að ganga, og framkoma hans verður blátt áfram og alþýðleg, þegar hann ræðir viö fólk i sveitaþorpum og bæjum. Jafn- an slást allmargir i för með hon- um, auk blaðamanna og öryggisvarða. Oft eru um 400 manns i göngunni. um 50 ellilif- eyrisþegar hafa fylgt honum hingað til og er einn þeirra 82 ára. Hann hefur haft þann sið að ganga öllu hraðar en forsetinn og orsakað þannig, að móttöku- athafnir á vissum stöðum hafa byrjað fyrr en ástæða var til. Þar sem forsetinn kemur viö i sveitum og bæjum, er honum vel fagnað og honum sýndur margvislegur virðingarvottur. Hann afhjúpar minnismerki og heimsækirsögustaði, sem þykja sérlega merkir. Lúörasveitir og fólk búið hátlðabúningi viökom- andi byggöarlags tekur á móti honum og fylgir honum úr hlaöi. Flestir þeirra, sem vettlingi geta valið, koma til að sjá hann á göngunni. Yfirleitt er stefnt að þvi að viökoma sé stutt og for- setinn geti haldið áætlun sinni. Annað væri óþýzkt. Carstens forseti mun nú vera búinn að ljúka um 400 km af hinni ráögerðu göngu sinni. Hingaö til hefur þetta virzt hon- um létt, þótt hann sé orðinn 65 ára, og flest þykir benda til, aö hann hafi ánægju af henni. Sjálfur segir hann, að I rauninni sé þetta I fyrsta sinn, sem hann hafi kynnzt almenningi. Sumir fréttaskýrendur spá þvi, að hann verði oröinn nýr maður og litinn öðrum augum af þjóöinni að göngunni lokinni. Söguleg gönguferð þýzka forsetans

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.