Tíminn - 18.05.1980, Page 27

Tíminn - 18.05.1980, Page 27
Sunnudagur 18. mal 1980 35 Tékknesk vika í gær hófst í Háskólabló tékknesk kvikmyndavika og mun hiin standa fram á fimmtu- dag. Þessa daga gefst kvik- myndahUsagestum tækifæri til að sjá sex tékkneskar myndir en þar af hafa 5 ekki verið sýndar hér áður. Tékkar eiga sér að baki mikla hefð við gerö kvikmynda sem hefst skömmu fyrir aldamót. Þó nokkrir af kunnum listamönn- um I greininni sem nU starfa á Vesturlöndum hafa alist upp I tékkneskri kvikmyndagerð og er þar ugglaust fremstur í flokki Molos Forman(Gaukshreiörið). A þessu ári er áætlað að um 50 myndir i fullri lengd verði fram- leiddar I Tékkóslóvaklu en árleg framleiðsla á stuttum myndum er um 1800. Þó nokkrar kvik- myndahátíðir eru haldnar I Tékkóslovakíu árlega og má þar nefna Barnakvikmyndahátlöina — í Háskólabíói dagana 17. til 22. maí I Gottwaldov og alþjóðlegu hátiðina I Karlovy Vary. Þetta mun vera I fyrsta sinn sem tékknesk kvikmyndavika er haldin hérlendis en að henni standa auk Háskólablós, Tékknesk-lslenska Menningar- félagið og Tékkneska Sendiráö- ið. Þessi vika er kvikmynda- þyrstum Islendingum kærkom- in tilbreyting frá bandarísku og bresku myndunum sem hér næstum einoka markaðinn og mættu fleiri kvikmyndahús bjóða upp á svipað efni I fram- tlðinni. Ég er þó ekki aö lasta einn eða neinn þvl að á undan- förnum árum hefur það frekar færst I vöxt heldur en hitt að tslendingum er boðið upp á eitt- hvað annað en lélegar og miðlungsgóðar afþreyingar- myndir frá stærstu neysiumörk- uöum heimsins. Friörik Indriðason. % Bandariski spæjarinn Nick Carter (Docolomanský) I myndinni Adela er svöng hér I skemmtilegum félagsskap,en myndin er létt gamanmynd um glæpamann sem elur jurt i þeim tilgangi að ná sér niður á háskólakennara. Jurtin á að éta kennarann. Himnahurðin breið? Ruglings- leg ádeila Regnboginn Himnahurðin breiö? Leikstjóri Kristberg Óskarsson Aðalhlutverk Ari Harðarson, Ingibjörg Ingadóttir, Kjartan Ólafsson (samdi tónlistina), Valdimar örn Flygenring, Einar Jón Briem, Bogi Þór Siguroddsson og Erna Ingvars- dóttir. Kvikmyndin ,,Himnahuröin breið?” var upphaflega rokk- ópera frumflutt við Menntaskól- ann við Hamrahlið en þaðan koma allir sem aö óperunni og kvikmyndinni standa. Hún ber merki þessa þvi efni hennar og ádeila eru viöhorf menntaskóla- nema. Þema myndarinnar er bar- áttan milli góðs og ills en viðar er komið við og deilt á neyslu- þjóöfélagið, lögregluna og kirkjuna. Hinsvegar er aðeins lauslega tekið á hverju efni og útkoman verður nokkuð ruglingsleg ádeila sem skilur á- horfendann eftir ringlaðan I lok sýningar. Þetta er þó sér- staklega vegna þess aö handrit er mjög lélegt og söguþráður þvi óljós. Það fer ekki framhjá neinum sem myndina sjá aö ekki liggja miklir peningar að baki fram- leiðslu hennar en miðað við all- ar aðstæður þá hafa þau sem aö henni stóðu færst of mikiö i fang við gerð hennar. Þrátt fyrir þessa vankanta hefur myndin til aö bera marga góöa punkta. Tónlistin var góö og sömuleiöis textarnir við hana en slæmur hljóðburður gerði þaö að verkum aö hið fyrra naut sin ekki sem skyldi. Þá má einn- ig nefna mikla hugmyndaauðgi viö umfjöllun efnisins og má þar taka sem dæmi er djöfsi saltar fórnarlömb sin niöur I sildar- tunnur I helviti. 1 heild verður hér að taka vilj- annfram yfir verkið þarsem hér er um byrjendaverk að ræöa en kvikmyndahornið hefur grun um að aðstandendur þessarar myndar eigi eftir aö þroskast til stærri og betri verka. Friðrik Indriðason. 0 Skuggar Sumarsins. Tveir af bófunum sem hafa tekið býli fjárbóndans Baran til eigin nota. Tékknesku mynd- irnar kynntar FRI - Skuggar sumarsins: Leik- stjdri Frantisek Vlacil, aðal- hlutverk Juraj Kukura og Marta Vancurova. Myndin ger- ist I striðslok en þá voru sam- göngurviða strjálar og Banda- raitar (leyfar pólskra og úkra- inskra SS-manna) reyndu aö koma sér til Austurrlkis. Hópur þeirra tekur hús á Bar- an og hótar að myrða konu hans og böm ef hann segir yfirvöld- unum frá þvi hvar þeir séu. Baran ráðfærir sig við lækninn og þeir verða sammála um þaö að utanaökomandi hjálp mun kosta fjölskyidu Barans lifið. Hann reynir þvi að leysa þetta vandamál á eigin spýtur. Stefnumót I Júll: Leikstjóri Karel Kachyna aðalhlutverk Daniela Koiarova og Oldrich Kaiser. Jakub kemst að raun um það að kennari hans á sum- arnámskeiöi þvi i ensku sem hann er á er sú sama Klara og felldi hann á enskuprófinu. Hon- um likar þó vel viö son Klöru, Daviö, og vinátta þeirra færir hann og kennarann hættulega nærri hvort öðru. Haltu honum hræddum: Leik- stjóri Ladislav Rychman aðal- hlutverk Ludek Sobota og Hel- ena Vondrackova. Ales Brabek kennir tónlist og fæst viö laga- smiðar I tómstundum. Hann vinnur til verðlauna fyrir eitt lag sitt og er ráðinn til aö semja lög fyrir nýja leiksýningu. Tim- inn liður og Ales semur ekkert. Kona leikstjórans finnur út að Ales þarfnast óvenjulegrar upp- örvunar áöur en hann getur samið og hún tekur til sinna ráða. Adela er svöng: Leikstjóri Oldrich Lopský aðalhlutverk Miachal Docolomanský og Rud- off Hrusinský. Nick Carter, söguhetja þessarar skopstæl- ingar kemur til Prag til að rann- saka hvarf greifaynju. Lög- reglustjóri staðarins segir hon- um að greifaynjan Gert sé raun- ar hundur. Nick kemst fljótt á sporið er hann sér jurt (Adeiu) eta pulsu og brátt fer leikurinn að æsast. Litla hafmcyjan: Leikstjóri Karel Kachyna aöalhlutverk Miroslava Safrankova og Pad- ovan Lukavsky. Myndin er byggð á einu ævintýra H.C. Andersen þar sem konungur hafsins ætlar að gifta yngstu dóttur sina. Hún verður ást- fangin af jarðárprinsi er hún bjargar honum frá drukknun og skiptir á rödd sinni og töframeð- ali sem gerir henni kleift að lifá ofa nsjdvar. Krabat: Þessa mynd ætti aö vera óþarfi að kynna þvi hún var sýnd ekki alls fyrir löngu á kvikmyndahátið Listahátiðar. Stuttir punktar FRI - Heyrst hefur að kvik- myndin The Last Waltz hafi verið sýnd um nótt i einum kvik- myndahúsanna hér i bænum. Myndin sem fjallar um hljóm- leika The Band og er gerð af Martin Scorsese mun eftir öll- um sólarmerkjum að dæma verða tekin til sýninga i Tóna- bió á þessu ári. Ogtalandi um Tónabió þá hef- ur það nú byrjaö aö sýna úr myndunum Coming Hom'e (eftir Hal Ashby með Jane Fonda, John Voigt og Bruce Dern) og Apocalypse Now (eftir F.F. Coppola meö Martin Sheen, Ro- bert Duvall og Marlon Brando). Kvikmy ndaunnendur biða spenntir eftir þessum tveimur myndum sem alls staðar hafa fengið frábæra dóma. Hal Needam er nú aö gera myndina Smokey and the Band- it have a baby með Reynolds i aðaihlutverkien þetta mun vera framhald á myndinni Smokey and the Bandit sem vakti mikla hrifningu hér á landi. Kvikmyndahornið Umsjón Örn Þórisson og Friðrik Indriðason

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.