Tíminn - 26.09.1980, Síða 3
Föstudagur 26. september 1980
3
Starfsaldur ekki viðtekinn hjá flugfreyjum
Blaðinu hefur borist eftirfar-
andi athugasemd frá Flugleiðum,
sem að öðru leyti skýrir sig sjálf:
„Vegna forsiðuviðtals við Jó-
friði Björnsdóttur formann Flug-
freyjufélags Islands i Þjóðviljan-
um fimmtudaginn 25. september
óskast eftirfarandi birt i blaðinu.
Óskað er eftir birtingu á svipuð-
um stað.
Þegar fyrir lá að fækka yrði
flugfreyjum eins og reyndar fólki
úr öðrum starfshópum innan
Flugleiða var fjórum eftirlits-
flugfreyjum falið að útfylla lista
þar sem ráða mætti af starfs-
hæfni og þjónustu flugfreyjanna
við farþega. Listarnir voru af-
hentir eftirlitsflugfreyjum, sem
siðan fylltu inn á þá einkunnir
eftir ákveðnu kerfi. Listarnir
voru ómerktir. Starfsmannahald,
farþegaþjónustudeild og flug-
rekstrardeild unnu siöan sam-
eiginlega úr listunum. Þar að
auki var farið yfir starfsferil við-
komandi flugfreyja, farið var yfir
upplýsingar frá farþegum sem
félaginu hefur borist á undan-
förnum árum o.s.frv. Við gerð
lista með 68 flugfreyjum sem fé-
lagið vill ráða að nýju réði starfs-
aldur mestu.
Þegar svo stendur á sem nú hjá
Flugleiðum er ekki mögulegt aö
fara eingöngu eftir starfsaldri.
Fólki fækkar verulega hjá fyrir-
tækinu. Störf sem áður voru unnin
af tveim eða þrem lenda nú hjá
einum starfsmanni. Þetta á sér
stað bæði i skrifstofum félagsins
og öðrum vinnustöðum. Starfs-
aldurslistar eru hvergi viðteknir
nema i sambandi við flugmenn.
Þar eru þeir samningsatriöi. Hjá
flugfreyjum eru hins vegar ekki
gildandi starfsaldurslistar frem-
ur en hjá öðru starfsfólki félags-
ins að flugmönnum undanskild-
um sem að framan getur.
Erling Aspelund,
Már Gunnarsson,
Hans Indriöason.
Þarf að grípa til hertra aðgerða gegn selnum, til að
minnka hringormamyndun í þorski?
Þetta er spurning sem fiskifræðingar og sjávarlif-
fræðingar velta fyrir sér þessa dagana
AB— „Rannsókn okkarer enn i
fullum gangi, svo ekki er hægt
að tala um neinar niöurstöður
enn”, sagði Erlingur Hauksson
sjávarliffræðingur, en hann er
starfsmaöur nefndar þeirrar
sem vinnur að rannsókn hring-
ormavandamálsins.
Erlingur sagði, að rannsóknir
þeirra beindust einkum að sel-
um og hringormasýkingu
þeirra, vegna þess, að selurinn
er lokahýsill fyrir hringorminn,
og i honum verður hringormur-
innkynþroska. Þvi má segja, aö
selurinn sjái um framleiðslu og
dreifingu á hringormi fyrir
ströndina.
Nefndin vinnur nú að rann-
sóknum á þvi hvort rekja megi
aukningu hringormamyndunar
þá i þorski sem orðið hefur að
undanfömu, beinlinis til fjölg-
unar sela umhverfis ísland.
Rannsókn þessi er þö þeim
erfiðleikum bundin, aö saman-
burðartölur um fjölda sela á sið-
ustu árum eru ekki fyrir hendi.
Talning hefur ekki farið fram á
sel þaö oft, og það torveldar þvi
allan samanburð.
Þó er það mál manna, aö selir
hér við land hafi fjölgað sér
verulega á undanförnum árum,
þannig að það verður að teljast
likleg skýring, að selurinn sé
skaðvaldurinn sem sér þorskin-
um fyrir hringormasýkingunni.
Þrátt fyrir ofur sakleysislegan svip er selurinn sú skepna, sem sér
uin framleiðslu og dreifingu hringorms hér við land. — Timamynd
Gunnar.
Erlendur heiðurs-
gestur Fram
— á leik Fram og Hvidovre í
Evrópukeppni bikarmeistara
Erlendur Einarsson, forstjóri
Sambands islenskra sam-
vinnufélaga, verður heiðurs-
gestur Framara á lcik þeirra í
Evröpukeppni bikarmeistara.
Fram mætir danska liðinu
Hvidovre á Laugardalsvellin-
um á sunnudaginn kl. 2 og má
búast viö fjörugum og
skemmtilegum leik, en Fram-
arar eiga göða möguleika á að
komast áfram i keppninni.
Söngflokkurinn Þú og ég
koma fram fyrir leikinn —
skemmta áhorfendum frá kl.
13.00. Þá mun Þorgeir Ast-
valdsson kynna vinsæl dægur-
lög fyrir leikinn og I leikhléi.
Erlendur Einarsson.
Pílagríma-
flugið komið
I fullan gang
AM— Pilagrimaflug Flugleiða er
nú hafið og i gær spurðum við
blaðafulltrúa Flugleiða, Svein
Sæmundsson, um tilhögun þess.
Sveinn sagði, að nú væri flogið
frá Nigeriu til Saudi-Arabiu og
frá tveimur stööum Maiduguiri
og Lagos.
Frá Maiduguiri byrjaði flugið á
áætlun þann 24. sd. og er sú vél
nú i þriöju ferðinni, en frests var
óskað varðandi hitt flugið og beið
vél og áhöfn þvii Luxemburg, þar
til hún lagði af stað I gær. Var á-
ætlað að lent yrði i Lagos kl. 22 i
gærkvöldi og að flugiö hæfist nú i
morgun. I þessu flugi eru nú átta
áhafnir, samtals 68 flugliöar og 19
manns i störfum á jörðu niðri,
samtals 87 manns.
ÍÞRÓTTAFÉLÖG - SKÓLAR- FYRIRTÆKI
Jakkinn með tveimur
vösum. Buxurnar
með vasa og beinum
skálmum með
saumuðu broti.
Litir: Rauöir með 2 hvitum
röndum
Rauðir með 2 svörtum röndum
Svartir með 2 hvitum röndum
Bláir með J. hvltum röndum.
Verð: Aðeins
kr. 17.960,-
Plimn ' peysur og buxur
Allar stærðir.
Mikið iitaúrva/.
ATHUGIÐ VEL:
Ódýr og góð
KYNNIIMG.
Þiö getið fengið hvaða
merki sem er á alla
þessa búninga.
Leitið upplýsinga og
tilboða.
Bómullar-
æfingagallar
renniiás,
iitir:
□V\
pumn 'Velour peysur
Allar stærðir.
Margir litir.
Verð kr.: 9.200. -
Dökkblátt
og grátt.
Verð
til 13.500.-
Póstsendum
Sportvöruvers/un
T-bolir
Verð aðeins
kr. 3.500.—
pumn
kr,-19.300,- Ingólfs Öskarssonar
Klapparstíg 44 — Sími: 11783