Tíminn - 26.09.1980, Side 6
6
Föstudagur 26. september 1980
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jon SigurOsson. Ristjórnarfuil-
trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri Kristinn Hailgrimsson. Aug-
lýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar SiOumúIa 15. Simi 86300. —
Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20: 86387. Verö I
lausasölu kr. 280. Askriftargjald kr. 5500 á mánuöi. Prentun:
Blaöaprent.
Þórarinn Þórarinsson:
Erlent yfirlit
Lokast Homuzsundið
fyrir olíuflutninga?
Það myndi valda vandræðum víða um heim
Liggur við
hneisu
Mál franska hrakningsmannsins Gervasoni, sem
hingað rak i leit að véum, verður sifellt undarlegra.
Þeim fjölgar nú stöðugt sem berja sér á brjóst og
segjast reiðubúnir til að reyta hár sitt þessa manns
vegna, og má angist hans vera mikil og kviðinn sár
yfir þeim sem hafa skipað sjálfa sig vini hans.
Þessir sjálfskipuðu ,,vinir” Gervasonis eiga
mikla sök á vandræðum hans hérlendis. Þeir hafa
linnulaust alið á fordómum gegn honum með
sýndarsamúð sinni og buslugangi.
Og nú hafa þessir „vinir” að þvi er virðist alveg
gleymt þessum umkomulausa manni, sem ekki
hefur hlotið sjálfsagðar móttökur flóttamanns
heldur er meðhöndlaður sem ótindur glæpamaður
af islenskum yfirvöldum.
Þetta er orðið hræðilegt mistakamál og getur
orðið að þjóðarhneisu ef fram fer sem horfir. Af
pólitiskri léttúð birtir Morgunblaðið heilan leiðara i
gær um þetta mál. En Morgunblaðið hefur litinn á-
huga á vegalausum flóttamanni við hliðina á ástrið-
unni til þess að koma höggi á Gunnar Thoroddsen
og Friðjón Þórðarson. Með þessu er verið að koma
málinu i þann hnút sem aðeins verður leystur á
kostnað útlendings sem hingað hefur leitað hælis,
Af ótilgreindum hvötum birtir Þjóðviljinn leiðara
i gær þar sem hótað er götubardögum ef vilji rit-
stjórans i málinu nær ekki fram að ganga. Með
þessu er verið að herða á hnútnum sem reyrður er
að hálsi manns sem hefur leyft sér að treysta á
drengskap íslendinga.
Alþingismaðurinn Guðrún Helgadóttir gerir sér
litið fyrir og hótar að fella rikisstjórnina ef hún fær
ekki að sýna ást sina á mannréttindum. Halda
menn að slik viðbrögð bæti úr i þessu máli?
Þvi miður verður ekki annað séð en allir þessir
sjálfskipuðu ,,vinir” Gervasonis hafi það sameigin-
lega áhugamál að koma manninum úr landi og i
hendur franskra fangelsisyfirvalda. Og svei.
íslendingar vilja að land þeirra sé griðland fyrir
þá sem hingað rekur af samviskuástæðum, og það
eru engin rök að flóttamaður fylgi ekki reglum sem
gilda um útlendinga. Maður á flótta á þess aldrei
kost að fylgja lagareglum.
1 griðlandi er flóttamaður ekki landrækur gerr
nema til komi alveg yfirgnæfandi rök gegn land-
vist. Og enginnerþar dæmdur á skóg nema eftir
mjög gaumgæfilega skoðun málsins.
í griðlandi er enginn rekinn úr landi i járnum i
hendur fangelsisyfirvalda nema alveg sérstakar og
ótviræðar sakir séu fyrir hendi.
Dómsmálaráðherra Friðjón Þórðarson er velvilj-
aður maður og ann mannréttindum og mannúð.
Honum verður treyst til þess að þetta mál hljóti
eðlilega meðferð. Það verður ekki séð að hagsmun-
ir íslands krefjist brottvisunar þessa flóttamanns,
og það verður ekki séð að yfirvöld i heimalandi
hans hafi gert gangskör að þvi að sækjast eftir hon-
um. Hvers vegna fær vesalings maðurinn ekki að
vera hér i friði?
JS
EINHVER mikilvægasta
siglingaleið i heimi er um Hor-
muzsund, sem tengir Indlands-
haf og Persaflóa.Um þetta sund
fara fram nær allir oliuflutn-
ingar frá rikjum við Persaflóa.
Ef sundiö lokaöist, myndi það
fljótt valda gifurlegum vand-
ræðum viða um heim.
Siðan styrjaldarátökin hófust
milli Iraka og trana um Shatt al
Arab, hefur athygli mjög beinzt
að þvi, hvort þau muni hafa
lokun Hormuz-sundsins i för
með sér.
Spákaupmenn á sviði olíu-
verzlunar hafa oröið fljótir til að
dreifa sögum um þaö, þar sem
afleiðing þess gæti orðiö mikil
veröhækkun á oliu, einkum á
hinum svonefnda frjálsa mark-
aði, sem Rotterdamverðiö mið-
ast viö.
Spár ábyrgari aðila eru yfir-
leitt þær, aö óliklegt sé að
Hormuzsundið lokist fyrst um
sinn, nema fyrir oliuflutninga
frá tran og trak.
Eins og sakir standa, er lran
eina rikiö, sem getur stöövað
oliuflutninga um Hormuz-sund.
lran er enn mesta flotaveldið
viö Persaflóa, þvi að sjóherinn
hefur nokkurn veginn sloppiö
viö hreinsanir Khomeinis.
Hreinsanirnar hafa aöallega
náö til flughers og landhers.
Þaö er óliklegt, að íranir
reyni að sinni aö stöðva oliu-
flutninga frá Kuwait, Saudi-
Arabiu og furstadæmunum við
Persaflóa, því að þá fengu þeir
öll þessi riki á móti sér.
Hins vegar munu tranir
stöðva oliuflutninga frá trak,
enda eru Irakar hættir þeim i
bili. t hefndarskyni, hafa trakar
gert loftárasir á helztu oliu-
hafnir i Iran og hafa tranir þvi
stöövað oliuflutninga frá þeim.
ÞOTT oliuflutningar stöðvist
frá tran og trak um stundar-
sakir, þarf það ekki að hafa
áhrif á olluveröiö I heiminum,
þvi oliubirgðir I flestum löndum
eru nú með mesta móti.
Þetta gæti hins vegar breyzt
ef styrjaldarátökin drægjust á
langinn. Þó gætu tranir lika
gripiö til þess örþrifaráös aö
loka Hormuzsundi i þeim til-
gangi, að fleiri aöilar kæmu þá
til og hjálpuðu til þess aö knýja
fram úrslit, sem Iranar gætu
sætt sig við. Erfitt er hins vegar
aö sjá, hvernig það ætti að ger-
ast.
Af hálfu Sameinuöu þjóöanna
er nú allt gert til aö fá striðs-
aöila til aö hætta vopnavið-
skiptum. Fjölmörg riki hafa
skorað á þá að leggja niður vopn
ogsemja.Þá hefur Yasser Ara-
fat, leiðtogi Frelsishreyfingar
Palestinu-araba, boðizt til aö
beita sér fyrir málamiðlun.
Málamiðlun mun hins vegar
ekki reynast auðveld. Saddam
Hussein mun ekki sætta sig viö
minna en að fá yfirráðin yfir
Shatt al-Arab-siglingaleiðinni,
ásamt þvi landi, sem trak lét
tran fá samkvæmt samningum
frá 1975. Flest bendir til, aö
Hussein myndi velta úr sessi, ef
hann fengi þetta ekki fram.
Raunar vill Saddam meira.
Hann vill aö Iranir sleppi
nokkrum eyjum, sem eru við
Hormuzsund og þeir hertóku
1971. Aöur haföi þaö verið
deiluma'l, hvort þessar eyjar til-
heyröu tran eöa Arabisku
furstadæmunum, United Arab
Emirates.
Arabisku rikin við Persaflóa
styðja kröfur Arabisku fursta-
dæmanna og hafa veriö andvig
yfirráðum trana á Persaflóa. A
arabisku heitir flóinn ekki
Persaflói, heldur Arabaflói. Sá
hluti Indlandshafs, sem liggur
að Hormuzsundi er líka nefndur
Arabiska hafiö af Aröbum.
SaddamHussein hefur beinan
og óbeinan stuðning Arabarlkj-
anna viö Persaflóa i þeirri viö-
leitni sinni aö brjóta yfirdrottn-
un trana eöa Persa þar á bak
aftur.
EN ÞÓTT erfitt væri fyrir
Saddam Hussein aö semja um
óbreytt landamæri væri það
ekki siöur örðugt fyrir
Khomeini að afsala bæði
landsvæðum og yfirráðum á
siglingaleiöum um Shatt al
Arab, sem keisarinn tryggöi
tran meö samningum frá 1975.
Það myndi gefa hinum mörgu
andstæöingum hans byr i seglin.
Hann gæti orðiö valtur I sessi
eftir það.
Samt gæti fariö svo, aö hann
neyddist til aö semja, ef styrj-
aldarátökin yrðu til þess aö
auka upplausn og flokkadrætti i
landinu.
Helzta von Khomeinis er sú,
að innrás traka verði til aö
fylkja þjóöinni að baki honum
gegn sameiginlegum erlendum
óvini. Ef SaddamHussein mis-
tækist að vinna skjótan sigur, er
það ekki útilokaö aö shiatar,
trúbræður Khomeinis i lrak,
snúist gegn honum, en þeir eru I
miklum meirihluta i landinu.
Hussein og flestir núverandi
valdamenn traks eru sunnitar.
Arafat vill reyna að miðla málum.