Tíminn - 26.09.1980, Side 9
Föstudagur 26. september 1980
9
var samt byrjað að afvopna
bændur, sem hætt höföu sér af
torginu á næstu götur, og hand-
taka þá. Þegar riddaralið, sem
skipað var Vestgautum, reið inn
á torgið, hleypti einn bændanna
skoti úr byssu, sem hann hafði
að vopni. Hann hæfði engan, en
riddaraliðsforingi reið þegar
fram og skaut bóndann. Þannig
hófst bardaginn. Þá var klukk-
an fjögur.
Ringulreið var mikil i upp-
hafi. Hersveitirnar, sem rikis-
stjórnin hafði á að skipa, voru
sumar tregar til þess að skjóta á
Dalakarlana. Hermenn frá
Vestmannalandi neituðu með
öllu að skjóta á „feður sina,
bræður og ættingja”. Hermenn
frá Upplandi og Suðurmanna-
landi studdust einnig fram á
byssur sinar og höfðust ekki að.
Þegar foringjar úr li'fverði
konungs fyrirskipuðu árás, riðu
margir úr riddaraliðinu út af
torginuyfir Norðurbrú og námu
staðar ekki fyrr en þeir komu að
vindubrú,sem dregin hafði ver-
ið upp.
Jafnvel sumir leiguliðanna i
hersveitunum voru tregir til
þess að beita byssum sinum,
enda ýmsir þeirra ættaðir úr
Dölum.
Seinna voru sumir þessara
manna dregnir fyrir herrétt og
dæmdir til dauða, en sýnd sú
likn, ef likn skal kalla, að i stað-
inn mættu koma þrjátiu vandar-
högg og ævilöng hegningar-
vinna i verkinu við Marstrand.
Það voru hersveitir úr Suður
Sviþjóð, sem ekki hikuðu við að
ráðast á Dalakarlana, eftir
stutta og snarpa skothrið, lögðu
Dalakarlar á flótta, en eftir lá á
torginu fjöldi dauðra manna og
lemstraðra. Flóttamennirnir
hlupu i átt aö Brunkeberg og
Drottningargötu og reyndu að
fela sig i húsum og görðum.
Margir voru höggnir niður af
riddaraliðiá flóttanum, en aðrir
hröktust i Strauminn og
drukknuðu. Flestir aðrir voru
teknir höndum.
Þrjú þúsund Dalakarlar,
þeirra á meðal sex hundruð her-
hermenn, voru gripnir. Þeir
voru ýmist settir i fangelsi eða
hafðir i vörzlu innan múra
kirkjugarðsins á Riddarahólmi.
Þeir voru siöan valdir úr, er
töldust hafa mest hvatt til upp-
reisnarinnar. Smám saman
voru þeir dæmdir til dauða, og
ýmist, að dómum væri þegar
fullnægt eða náðun veitt gegn
strangri likamsrefsingu. Her-
menn voru settir á vörð um alla
borgina og skip með fallbyssur
voru látin hafast við á Straumn-
um og hafði foringjum þeirra
verið skipað að skjóta á borg-
ina, ef tilraun yrði gerð til þess
að frelsa fangana.
17. ágúst voru þeir Dala-
karlar, er ekki sættu þyngri
kárinum, reknir út úr borginni
til heimkynna sinna. Þegar hér
var komið, hafði herlið frá
Suður-Sviþjóð verið sent i héruð
i Dölunum til þess að bæla niður
allan mótþróa.
Yfirvöldin létu svo heita, að
fimmtiu Dalarkarlar hefðu fall-
ið og áttatiu særst. Sjúkrahús-
skrár sýna, að þessum tölum
hefur verið stórlega hagrætt.
Þeir, sem hlutu mikil sár og
örkuml, skiptu mörgum
hundruðum, og af þeim, sem
farið var með i eitt og sama
hjúkrahúsiö, létust aö minnsta
kosti hundrað. En aðrir voru
þeir, sem enga umönnun fengu,
og fóru að sjálfsögðu einnig
margir úr hópi þeirra.
í þeim sjúkraskrám, sem enn
eru til, má sjá, að meðal hinna
særðu hafa menn úr nálega öll-
um byggðalögum Dala.
Nokkurra byggðarlaga er þó
ekki getið, og orsökin er sú, að
menn þar urðu siðbúnari en
aðrir til herfararinnar til Stokk-
hólms og komust ekki á
leiðarenda áður en uppreisnin
var bæld niður.
Eitt er enn óupplýst: Hvað
var gert við þá, sem féllu eða
dóu? Likin hafa ekki verið flutt
heim I Dali. Þeir hafa þess
vegna sennilega verið grafnir i
Stokkhólmi. Þeirra er þó að
engu getið i kirkjubókum, og
getgátur eru um, að það stafi af
þvi, að yfirvöld hafi af fremsta
megni reyntaðbreiða yfir, hvað
raunverulega gerðist þessa
sumardaga og hversu mikið
mannfallið var.
[956*2Æo*iq8o«
Dansskóli Heiðars Astvaldssonar
Kbmdu í hópinn hjá Hdöari
-fað erdvegóhœtt. ViderumMinMundkímokkurí^ár
Danskennsla okkar er við allra hæfi. Létt spor
fyrir minna fólkið, gamlir og nýir dansar fyrir
unglinga og fullorðna. Sérstakir hópar eru
fyrir hjón og einstaklinga og auk þess bjóðum
við uppá hið stórvinsæla ,,konubeat“.
Innritunarsímar: 24959 - 39551 - 38126 - 74444 -
20345
Góö hreyfing í skenmitileguw fe/ugsskup
** Síðasti innritunardagur **