Tíminn - 26.09.1980, Side 11
Föstudagur 26. september 1980
11
Innanlandsflug Arnarflugs nú eins árs:
Magnús Gunnarsson: ,,Vi6 höfum orðið aö takmarka vai okkar á
flugvélum við flugvellina.”
vetraraæltun, sem taka mun
gildi þann 20. september, verður
að verulegu leyti byggð á þeim
könnunum. Þær munum við
kynna nánar siðar. Við höfum
einnig haldið úti blaði, til þess
að auka tengslin við okkar far-
þega og það hefur haft sitt gildi,
þótt útkoma þess hafi ekki verið
regluleg.
Sá gagnkvæmi skilningur og
vilji til þess að bæta samgöng-
urnar hefur til dæmis verið
grundvöllur þess að við höfum
nú hafið flug til Grundarfjarðar
en þar var flugvöllur mjög
slæmur. En sé nægur vilji á
stöðunum sjálfum til úrbóta
mun ekki standa á Arnarflugi að
fljúga.
Þótt þetta viðtal sé i tilefni af
ársafmæli innanlandsflugs er
freistandi að spyrja um flug
þeirra véla sem eru erlendis og i
millilandaflugi?
Félagið á tvær þotur, aðra af
gerðinni Boeing 707 og hina af
Boeing 720. Önnur helur verið i
flugi hér heima með sólarlanda-
farþega, en hin hefur verið i
flugi fyrir jórdanska félagið
Alia. Þótt þessar vélar séu báð-
ar tæknilega mjög fullkomnar
og til dæmis með sömu hreyfl-
um og DC-8 þotur Flugleiða, eru
nýrri vélar þó miklu sparneytn-
ari á eldsneyti og þvi höfum við
fyrir löngu kunngert að við höf-
um i huga að endurnýja þot-
urnar, fáist nauðsynlegum skil-
yrðum fullnægt. En á hitt er að
lita að á móti eldsneytisverðinu
kemur það hve nýju vélarnar
eru dýr tæki og að þær þurfa að
fljúga óhemju mikið, til þess að
greiða þær niður. Þessu má ekki
gleyma.
1 heilt ár höfum við verið með
i bigerð að komast yfir Boeing
737, annað hvort að kaupa álika
vél eða leigja hana. Þau skilvrði
sem þarf að fullnægja, áður en i
svo stórar skuldbindingar er
ráðist eru hins vegar þau að við
þurfum að hafa örugg verkefni
og fjármögnun. Við eigum rað-
númer hjá Boeing smiðjunum á
slikri vél, en þrátt fyrir það er
engu slegið föstu enn i þessu
efni.
Sumir hafa talið að Boeing 737
sé ekki heppileg til úthafsflugs
þa r sem hún er tveggja hreyfla?
,,Já, þá gagnrýni hef ég heyrt.
Við höfum ráðfært okkur við Bo-
eing verksmiðjurnar um þetta
og niðurstðan er sú að ég held
að slikar vélar séu ekki óörugg-
ari en aðrar og að menn taki
ekki tillit til þeirrar tækniþró-
unar, sem orðið hefur frá þvi er
menn voru að fljúga yfir hafið á
tveggja hreyfla þristum. Við
mundum ekki hugleiða 737, ef
við teldum einhverjum öryggis-
atriðum fórnað með þvi. Fjöldi
flugfélaga flýgur þessum vélum
á hverju ári til tslands og ég
held að það sé gömul þjóðsaga
að tveggja hreyíla vél þurfi að
vera óöruggari.
Þessi mál eru enn i athugun
og við erum að svipast um eftir
tækifærum, sem verða til á hin-
um erlenda markaði og við vilj-
um ekki binda okkur við eitt né
neitt. Misjafnt er um hvaða
flugvélartegund getur verið að
ræða i hverju tilfelli, þegar
tækifærið býðst. Þegar viðseld-
um aðra 720 vélina okkar, var
það vegna þess að hún var ekki
orðin eftirsóknarverð á hinum
almenna markaði og þá náðum
við þessum samningi við Alia.
Hann byggðist á þvi að við not-
uðum 707 vél og við útveguðum
okkur 707 og fljúgum henni.
Þannig kunnum við að hafa
aðra vél i athugun á morgun.
Við útilokum enga möguleika.
Hver er aðstaöa islensks flug-
félags. sent er að leita fyrir sér
á þessunt stóru mörkuðum er-
lendis?
Þegar staðið er i svona
rekstri, sem vissulega er mjög
alþjóðlegur. verðum við mjög á-
þreifanlega varir við það hve
smáir og fámennir við erum og
hve vanmegnugir. þegar fylgst
er með þessum miklu átökum.
Satt að segja er sá árangur sem
Islendingar hafa náð í flugmál-
um einstæður og það hve langt
við höfum náð. Þá er ég ekki að-
eins að tala um flugfélögin hér
innanlands, heldur á ég einnig
við Cargolux, sem er mannað af
tslendingum. Sé litið á stærð
þjóðarinnar, er sá hluti hennar,
sem flugmálunum tengist
alveg óhemju stór. Þvi hljótum
við að spyrja hvernig okkur
megi takast að halda þessum
atvinnuvegi gangandi.
Hvað um þ á kreppu sent rikt
hefur i flugmálum hér að
undanlörnu?
,,Já, um þetta hefur svo
margt verið rætt og margt sagt
að erfitt er að bæta nokkru við.
Ég tel að það mundi verða
mikill ávinningur fyrir okkur
Islendinga, ef unnt yrði að halda
islenskum umsvifum á Atlants-
hafsleiðinni við, eftir sem áður.
Þegar illa gengur er manni
tamt að halda i þá von að birti
upp um siðir, en það hef ég áður
sagt og get endurtekið hér, að ef
menn hyggjast auka umfang
islenskra flugmála að marki, er
ekki um annað að ræða en flytja
þá þekkingu i flugmálum, sem
við höfum yfir að ráða að ein-
hverju leyti úr landi. Við höfum
hér mikinn fjölda fólks með ó-
metanlega þekkingu og mörg
afkastamikil tæki og við þurfum
að sækja á ný mið. Hér tel ég um
útflutningsgrein að ræða og það
hefur vakið mér furðu að menn
hafa margir látið sér fátt um
þessar yfirlýsingar minar finn-
ast. Menn hafa sagt að þeir hafi
ekki áhuga á að fara að fljúga
erlendis og þeir um það. Hér
hefur verið reynt að ná i þessar
erlendu leigur, til þess að skapa
atvinnu, og við hverju má búast
ef ekki er tekið þvi sem þannig
er iyrir hendi?
Mikiö hefur verið rætt um að
stofna hér nýtt flugfélag. Hins
vegar hefur ekki verið rætt um
Arnarflug i þvi sambandi?'
Mér er engin launung á þvi að
við gætum hér tekið að okkur
hvaða verkefni sem vera skyldi.
Grundvöllurinn er fyrir hendi
mannskapur, vélar og þekking,
séu rekstrarlegar forsendur til
staðar. Við höfum verið i sam-
starfi við Flugleiðir i tvö ár og
nokkuð hefur verið umdeilt
hvernig þvi samstarfi hefur
verið fyrir komið, og i framtið-
inni er knýjandi að á ýmsu verði
fundin betri lausn, þótt ég ræði
það ekki nánar að sinni.
I þeim umræðum sem verið
hafa um nýtt félag höfum við
hins vegar ekki verið nefndir og
við höfum ekki sett okkur i
neinar stellingar til þess að
hlaupa þar inn i.
Gagnrýnisraddir hafa heyrst
i þá veru aö Ania.flug flýgur
sólarlandaferðirnar i stað þess
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun
Kornagarði 5 — simi 85677.
1/7
tw.
FINLAVH
SNJO-
BLÁSARI
Festur á þrítengi dráttarvélar
Vinnslubreidd: 215 cm
Frákast: 10-30 m
Aldraðir þurfa líka
að ferðast — sýnum
þeim tillitssemi.
ilæ
FERÐAR
í verslun okkar er tvímælalaust
mesta úrval landsins af hjóna-
rúmum og sófasettum
oghúsgögnum i unglingaherbergi, einkum
skrifborð og svefnbekkir.
Lág útborgun og
léttar mánaðarlegar
greiðslur.
Rildshöfða 20 - S (91/81410-81199
Sýnwi’ahöllinni - Ártúnshöfða