Tíminn - 26.09.1980, Side 13

Tíminn - 26.09.1980, Side 13
Föstudagur 26. september 1980 l 'l '1 'l { l{ * 13 Minning Jón Helgason Mágur minn Jón Helgason, bifreiðasmiöur, Tryggvagötu 2, Selfossi, varð bráðkvaddur á heimili sinu að morgni laugar- dagsins 13. þ.m., sjötiu og fjög- urra ára að aldri. Hann hafði kennthjartasjUkdóms um skeið, en eigi að siöur var hann svo lánsamur að geta stundað vinnu sina til siðasta dags. Útför hans verður gerð frá Selfoss- kirkju á morgun, laugardag. Jón var fæddur i Súluholtshjá- leigu i Villingaholtshreppi 13. júni 1906. Foreldrar hans voru Helgi Jónsson bondi þar og kona hans Kristin Jónsdóttir. Höföu móðurforeldrar Jóns, Jón og Ingibjörg, áður búiö i Súluholts- hjáleigu. Fööuríoreldrar hans Jón borsteinsson og Asdis kona hans voru hins vegar búendur I Hútstaða-Norðurkoti i Gaul- verjabæjarhreppi. Eftir skamman búskap á fæðingarbæ Jóns fluttu for- eldrar hans úr sveitinni og niður á Stokkseyri.Þar stundaöi faðir hans sjóróðra. Ekki naut Jón þó lengi föður sins, þvi hann drukknaöi 2. april 1908, þegar skipið, sem hann var á, fórst I brimgarðinum á Stokkseyri. Af áhöfn skipsins bjargaðist aðeins einn maður. Móðir Jóns stóö þá uppi meö tvö ung börn, Jón á öðru ári og Þuriði, alsystur hans, sem var tveimur árum eldri. Amundi bóndi i Kambi i Villingaholtshreppi bauð ekkj- unni og börnunum þá að koma til sín, og dvöldu þau hjá honum i fjögur ár. Rómaði Jón þá góð- vild, sem Amundi sýndi fjöl- skyldunni á þessum erfiðu tim- um. Móðir Jóns giftist aftur Guðmundi Magnussyni frá Unaðsdal á Snæfjallaströnd. Fluttust þau út á Eyrarbakka árið 1914 og bjuggu þau siðast i Brennu, en við þann bæ var JÓn oft kenndur siðan. Ekki eignuð- ust þau Kristin og Guðmundur börn saman, en Guðmundur reyndist börnum Kristinar hinn besti faðir og nutu þau mikils á- strikis stjúpföður sins. Fimmtán ára að aldri byrjaði Jón sjósókn á vetrarvertið. Réri hann fyrst á árabátum frá Eyrarbakka og Þorlákshöfn. Við þetta máttu unglingar á þeim tima búa og þótti gott, ef þeir fengu pláss á skipi. Siðasta árið sem Jón stundaði sj<} frá Þorlákshöfn var hann á velbáti og urðu það mikil umskipti. Hann var siöan sjómaður á vél- bátum bæði sunnanlands og „suður meö sjó”, en aö sumrinu varhann i vegavinnu viðs vegar um landið I vegavinnuflokki frá Eyrarbakka. Þann 10. desem- ber 1936urðu þáttaskil i lifi Jóns en þá hóf hann störf hjá Kaup- félagi Arnesinga á Selfossi. Hjá þvi félagi vann hann siðan til dauðadags og þegar hann féll frá haföi enginn starfsmaður félagsins unnið þar jafn lengi og hann, en starfstiminn var þá orðinn nærri 44 ár. Jón byrjaði sem bilstjóri hjá kaupfélaginu. Ók hann ýmist mjólk frá bænd- um til mjólkurbússins á Selfossi eða vörum frá Reykjavik til kaupfélagsins. Vegir voru á þeim tima oft slæmir, bæði vegna aurbleytu og snjóa og úr ýmsum vandamálum varð að greiða, en allt leystist farsæl- lega I höndum Jóns. Siðan vann hann i bifreiöavarahlutaverslun kaupfélagsins, en Jón var hag- leiksmaður og hafði yndi af smiðum. Varö þaö til þess að hann breytti til og hóf smiðar i bilasmiðju kaupfélagsins. Vann hann eftir þaö við bifreiða- smiðar þar og öðlaðist réttindi sem bifreiðasmiður. Jón var velvirkur og trúr I starfi. Vildi hann jafnan gæta hags kaup- félagsins i hvivetna. Þann 31. mai 1941 gekk Jón að eiga eftirlifandi konu sina Hall- dóru Bjarnadóttur frá Ond- verðarnesi. Var hjónaband þeirra einstaklega gott og studdu þau hvort annað I allri sinni sambúð. Þau eignuðust þrjúbörn, Kristinu, sem andað- ist á fyrsta ári, Ernu, sem er búsett i Reykjavik og er gift Bjarnfinni Hjaltasyni húsa- smið, eiga þau þrjá syni, og Bjarna, sem er viðskiptafræö- ingur og löggiltur endurskoð- andi, búsettur á Selfossi, kvæntur Guðrúnu Jóhanns- dóttur og eiga þau einnig þrjá syni. Jón var hlédrægur og hann flikaði ekki tilfinningum sinum, en var hlýr í viðmóti. Hann vann störf sin i kyrrþey en af alúð. Hann var með afbrigðum góður heimilisfaöir og naut eiginkona hans, börnin, tengdabörn og barnabörn umhyggju hans si og æ. Við hjónin kveðjum með sökn- uði látinn vin og biðjum fjöl- skyldu hans allrar blessunar á sorgarstund. Bjarni K. Bjarnason. ALLAR STÆRÐIR af PHILIPSog PHILCO kæliskApum heimilistæki sf HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚN 8 - 15655 ÆZjTfjölnotavagninn ER MEIRI EN HANN SÝNIST! Með aukabúnaði má nota hann sem almennan f/utningavagn, sem votheysvagn, sem baggavagn og sem mykjudreifara. Sá bóndi, sem hugleiðir kaup á tækjum til ofangreindra nota, þarf því ekki annað en kaupa JF-vagninn til að leysa sínar þarfir.Vagnarnir eru á belgmiklum dekkjum og með drifbúnaði og færibandi í botni. Globuse LÁGMÚLl 5, SlMI 81555

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.