Tíminn - 26.09.1980, Qupperneq 19
Föstudagur 26. september 1980
19
Listsýning á
„ári trésins”
AB — A s.l. vori skipaði stjórn
Iðnaðarmannafélagsins i Reykja-
vik nefnd er vinna skyldi að
undirbúningi sýningar á nytja- og
listmunum i tilefni af „Ári trésins
1980”.
Nefndin hefur siðan skrifað öll-
um iönaðarmannafélögum á
landinu, en undirtektir hafa þvi
miður verið frekar dræmar. Það
er leitt til þess að vita, þvi vitað er
um iönaðarmenn og aðra, i
Reykjavik og viðsvegar um land-
ið sem gert hafa fagra og listræna
muni úr tré.
Ráðgerter að sýningin geti orð-
ið i byrjun nóvember, og mun hún
verða sett upp i kjallara Iðnaðar-
mannahússins. Sýnt verður
hvernig má nýta trjávið til gagns
og yndis, einkum i tréskurði. Þvi
er þvi beint til fólks sem á muni,
nýja eða gamla, er hæfa myndu
slikri sýningu, og vildu lána þá að
hafa samband viö einhvern i
framkvæmdanefnd sýningarinar,
en formaöur hennar er Helgi
Hallgrimsson, Goðalandi 21,
Reykjavik, simi 33594/26240.
Nýjar bækur
AB — Mál og menning hyggur
sem fyrrá mikla útgáfustarfsemi
nú i ár.
„Ritsafn Jóhanns Sigurjóns-
sonar” mun verða gefið út, og
verður það i þremur bindum. Atli
Rafn Kristinsson sá um útgáfuna
en i safni þessu eru mörg ljóð og
bréf sem ekki hafa áður birst á
prenti.
Út verður gefið 1. bindi af
áformuðu þriggja binda safni
með greinum er varða íslands-
sögu og nefnist það „Sverrir
Kristjánsson: Rit I.”
Islenskarskáldsögursem koma
út hjá fyrirtækinu eru „Pela-
stikk” eftir Guðlaug Arason,
„Sagan af Ara Fróðasyni og Hug-
borgu konu hans” eftir Guðberg
Bergsson og „Galeiðan” eftir
Ölaf Hauk Simonarson.
Á meðal þýddra verka verða
bækur eins og „Hverjum klukkan
glymur”, eftir Ernest
Hemingway i þýðingu Stefáns
Bjarman. „Það á að dansa”, nýtt
smásagnasafn eftir William
Heinesen þýtt af Þorgeiri Þor-
geirssyni. „Heygðu mitt hjarta
við Undaö Hné” eftir Dee Brown,
i þýðingu Magnúsar Rafnssonar
en þetta er saga ameriska
vestursins frá sjónarhóli indiána.
Nútima raunsæissaga frá Pól-
landi, „Áttundi dagur vikunnar”
eftir Marek Hlasko i þýðingu Þor-
geirs Þorgeirssonar kemur út nú i
ár og tvær nýjar bækur i bóka-
flokknum „Skáldsaga um glæp
eftir þau Maj Sjöwall og Per
Wahlöö koma nú út og nefnast
þær „Brunabillinn sem týndist”
og „Pólis, Pólis...”
Meðal annarra bóka hjá Máli
og menningu eru „ísland i skugga
heimsvaldastefnunnar” eftir
Einar Olgeirsson, Jón Guðnason
skráði, „Mannkynssaga
1492-1648” eftir Jón Thór Har-
aldsson, „Þrymskviða” og
„Draumur Baldurs” og eru
Edduteikningar eftir Harald Guð-
bergsson, heimspekibók eftir
Brynjólf Bjarnason og „Ævisaga
Björns Eysteinssonar”, 2. útg. og
sá Björn Þorsteinsson um út-
gáfuna.
Af barna- og unglingabókum
má nefna bækur eins og „Veröld-
in er alltaf ný” eftir Jóhönnu Alf-
heiöi Steingrimsdóttur, mynd-
skreytingar eftir Harald Guð-
bergsson, „Vera” eftir Ásrúnu
Matthiasdóttur og „Börn eru lika
fólk”, eftir Valdisi óskarsdóttur.
Þessar þrjár bækur voru meðal
þeirra sem bárust i barnabóka-
samkeppni Máls og menningar og
dómnefnd mælti með til útgáfu.
Á meðal þýddra barnabóka
verða þrjár bækur eítir Astrid
Lindgren, þ.e. „Emil i Kattholti
lifir enn” i þýðingu Vilborgar
Dagbjartsdóttur, „Madditt” i
þýðingu Sigrúnar Árnadóttur og
„Ég vil lika fara i skóla” þýdd af
Ásthildi Egilson. Eins verða gefn-
ar út þrjár bækur um „Einar
Áskel” eftir Gunilla Bergström
og hefur Sigrún Árnadóttir annast
þýðingu þeirra. Að lokum er rétt
að geta bókar eftir höfund hinna
vinsælu Patrick-bóka. K.M. Pey-
ton, en sú nefnist „Sýndu að þú
sért hetja” og hefur Silja Aðal-
steinsdóttir þýtt hana.
'egna þes%: að hann hefur réynst vel á Islandi
|Er sérstaklega rúmgóður
#Er hár undir lægsta púnkt
#Er frábær i snjó ag lausamöl
#Er lipur og sparneytinn
• Er á sérstaklega góðu verði
• Er á ótrúlega góðum greiðslukjörum
TRABANTAA/ARTBURG UMBOÐIÐ
Vonorlondl v/Sogoveg — Slmor 03560-07710
Menningarsjóður Norðurlanda
Verkefni Menningarsjóðs Norðurlanda er að stuöla að
norrænni samvinnu á sviöi menningarmála. 1 þessum til-
gangi veitir sjóðurinn styrki til norrænna samstarfsverk-
efna á sviði visinda, fræöslumála og almennrar
menningarstarfsemi.
Á árinu 1981 mun sjóðurinn hafa til ráðstöfunar 8,5
milljónir danskra króna. Af þessu fé er hægt að sækja um
styrki til norrænna samstarfsverkefna sem unnin eru i eitt
skipti fyrir öll. Einnig má sækja um styrki til verkefna
sem taka lengri tima og þá fyrir ákveðið reynslutimabil.
Umsóknir ber að rita á umsóknareyðublöð sjóösins og er
umsóknum veitt viðtaka allt árið. Umsóknir veröa af-
greiddar eins fljótt og hægt er væntanlega á fyrsta eða
öðrum stjórnarfundi eftir að þær berast.
Frekari upplýsingar um starfsemi sjóðsins veitir Nor-
ræna menningarmálaskrifstofan Snaregade 10, DK-1250
Kaupmannahöfn simi (01)114711.
Umsóknareyðublöð fást á sama stað og einnig i mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, simi
25000.
Stjórn Menningarsjóðs Norðurlanda
/XUglýs'»ð , Títnanum
Lausar stöður
Lækna og hjúkrunarfræðlngs við
heilsugæslustöð við Borgar-
spítalann í Reykjavík
Lausar eru til umsóknar tvær stöður
lækna og ein staða hjúkrunarfræðings við
heilsugæslustöð við Borgarspitalann i
Reykjavik.
Stöðurnar veitast frá og með 1. desember
1980.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og störf sendist ráðuneytinu fyrir 27.
október 1980.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
24. september 1980