Tíminn - 05.10.1980, Side 6
' < f O'
Sunnudagur 5. október 1980.
Ctgefandi Framsóknarflokkurlnn.
Framkvœmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurbsson. Ritstjórnarfull-
trúi: Oddur ólafsson. Fréttastjóri: Eirfkur S. Eiríksson. Aug-
lýsingastjóri: Steingrimur Gfslason.
Ritstjórnarskrifstofur, f ramkvæmdastjórn og auglýslngar
Sföumúla 15. Sími 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562,
86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö í iausasölu kr. 250
Askriftargjald kr. 5000 á mánuði. Blaöaprent.
Flugleiðir
Það var vafalítið rétt ákvörðun hjá starfsmönn-
um Flugleiða að hætta við þátttöku i umræðuþætti
i sjónvarpinu, sem átti m.a. að snúast um þrætu-
efni þeirra og stjórnenda fyrirtækisins.
Ef Flugleiðir eiga að valda þvi verkefni að
tryggja áfram eðlilegan flugrekstur út á við og inn
á við, þarfnast fyrirtækið nú annars en að fram
fari einhvers konar hólmganga milli starfsmanna
þess og stjórnenda á opinberum vettvangi.
Fyrir framtið Flugleiða skiptir sennilega mestu,
að gott samstarf takist milli starfsmanna og
stjórnenda, en gömlum deilumálum sé ýtt til
hliðar. Það þjónar engum sæmilegum tilgangi að
halda rifrildi um þau áfram.
Það gefur augaleið að það hefur allt annað en
heppileg áhrif á samstarf Flugleiða og starfs-
manna, að starfsmannafélög þau, sem fyrirtækið
þarf að semja við, eru ekki færri en 39 og mismun-
andi taxtar skipta hundruðum. Þetta leiðir til
metnaðar og samkeppni milli starfsmannanna.
Af þessum ástæðum hafa Flugleiðir lika oft átt
yfir höfði sér, að einhver hópurinn af þessum 39,
kynni að gripa til verkfallsvopnsins og reyndi að
knýja fram kröfur sinar á þann hátt. Þetta skapar
óvissu, sem er sérstaklega skaðleg fyrirtæki, sem
þarf að keppa á alþjóðlegum samgönguleiðum.
Fjölmiðlar hafa að sjálfsögðu fjallað mikið um
málefni Flugleiða að undanförnu. Rikisfjölmiðl-
arnír hafa eðlilega talið sér skylt að vera þar ekki
eftirbátur. Þáttur þeirra hefur verið nokkuð gagn-
rýndur og stundum þótt minna meira á siðdegis-
blaðamennsku og gagnrýni á stjórnendur Flug-
leiða en hlutlausa fréttaöflun.
Nokkuð er til i þessu, en taka verður með i
reikninginn, að fréttamenn vinna oft undir erf-
iðum kringumstæðum. Þeir þurfa að skila fréttum
sinum fljótt og hafa þvi litinn tima til að vera með
vangaveltur. Eins og aðrir, eru þeir meira og
minna undir áhrifum umhverfisins.
Það, sem hefur skórt á hjá fjölmiðlum, bæði
rikisf jölmiðlum og blöðunum (Timinn ekki undan-
skilinn), er sennilega það, að ekki hefur verið
skýrt nægilega, hvað veldur mestu um erfiðleika
Flugleiða. Hér er átt við hina miklu samkeppni i
Atlantshafsfluginu, þegar undirboð á fargjöldum
koma á sama tima og oliuverð stórhækkar.
Fréttaflutningurinn hefur beinst of mikið i þá
átt, að eiginlega sé allt stjórnendum Flugleiða að
kenna. Þeir eiga vitanlega einhverja sök, en
meginorsökin er óviðráðanleg.
Vonandi tekst að leysa þessi mál þannig, að
sæmilegar flugsamgöngur haldist innanlands og
við önnur lönd. Fyrir Islendinga er ekkert þýð-
ingarmeira en að sæmilegar flugsamgöngur geti
haldist milli íslands og Ameriku og íslands og Ev-
rópu. Hér þarf að gæta jafnvægis og tengjast
hvorki einhliða i austurátt eða vesturátt. Það er
grundvallaratriði.
Steingrimur Hermannsson samgönguráðherrá
hefur að allra dómi unnið mikilvægt starf til þess
að tryggja þetta. Það getur hins vegar ekki borið
tilætlaðan árangur, nema allir, sem þetta mál
snertir, leggi hönd á plóginn. Þvi er nú hluthafa-
fundarins hjá Flugleiðum beðið með eftirvænt-
ingu. Þ.Þ.
Þórarinn Þórarinsson:
Erlent yfirlit
Hua orðinn valtur
í formannssætinu
Réttarhöldin að hefjast gegn ekkju Maós
ÞAÐ hefur nú veriö tilkynnt i
Peking, aö réttarhöldin gegn
þorpurunum fjórum muni senn
hefjast og dómur kveöinn upp
yfir þeim fyrir afglöp þeirra.
Aögangur aö réttarhöldunum
veröur takmarkaöur og fá er-
lendir blaöamenn ekki aö vera
viöstaddir.
Þorparamir fjórir voru hand-
teknir i október 1976 og hafa
setiö I haldi síöan. Jiang Qing,
ekkja Maós, er oftast haldin
versti þorparinn og fjórmenn-
ingamir oft kenndir viö hana,
Jiang Qing-klikan.
Hinir þorparamir eru Wang
Hongwen, sem um skeiö var tal-
inn liklegasti eftirmaöur Maós,
Zang Chunqiao, sem búizt var
viö, aö hreppti sæti Chou En-lai
sem forsætisráöherra, en Hua
varö hlutskarpari, og Yao
Wenyuan, blaöamaöur frá
Shanghai, sem hefur veriö tal-
inn helzti hugmyndafræöingur
og mesti áróöursmaöur klik-
unnar.
Jafnhliöa réttarhöldunum
gegn fjórmenningunum, fara
fram réttarhöld gegnsex mönn-
um öörum sem em taldir til-
heyra Lin Biao-klíkunni. Lin
Biao var um skeiö útnefndur
sem eins konar arftaki Maós og
er talinn einn helzti forvigis-
maöur menningarbyltingarinn-
ar svonefndu. Sögur herma, aö
Lin hafi farizt i flugslysi 1971,
þegar hann var aö flýja til
Sovétrikjanna eftir mis-
heppnaöa tilraun til aö ráöa
Maó af dögum.
Þekktastur þeirra sexmenn-
inganna sem nú er stefnt fyrir
rétt sem fylgismönnum Lins, er
Chen Boda, sem um skeiö var
einkaritari Maós. Hinir fimm
eru allir fyrrverandi hers-
höföingjar, sem gegndu mikil-
vægum embættum innan hers-
ins meöan veldi Lins var mest.
Sérstakur dómstóll hefur
veriö skipaöur til aö fjalla um
mál fjórmenninganna, skipaöur
35 dómurum. Hann mun einnig
fjallaummálChenBoda. Annar
dómstóllhefur veriö skipaöur til
aö fjalla um mál hershöföingj-
anna. Yfirleitt er talaö um þetta
i kinverskum fjölmiölum sem
réttarhöldin gegn Lin Biao-
Jiang Qing-gagnbyltingarklík-
unni.
Sakir þær, sem eru bornar á
hana, eru margvlslegar, m.a.
tilraun til aö myröa Maó. Þeirri
ásökun mun þó aöallega beint
gegn sexmenningunum, sem
voru fylgismenn Lins.
RÉTTARHÖLDIN gegn
þorpurunum fjórum hafa lengi
veriö á döfinni, en fyrst nú er
látiö til skarar skriöa. Ýmsir
Hua Kuo-feng
fréttaskýrendur gizka oröiö á,
aö meira búi hér undir. Sitthvaö
geti bent til, aö þau séu þáttur I
undirbúningi til aö steypa Hua
Kuo-feng endanlega af stóli.
Þessi ályktun er dregin af
grein, sem nýlega birtist I Dag-
blaöi alþýöunnar sem er aöal-
málgagn klnverska Kommún-
istaflokksins.
Grein þessi er eftir þekktan
sagnfræöing, Li Honglin, sem
hefur veriö samstarfsmaöur
Dengs, sem nú er mesti valda-
maöur Kina. t greininni segir,
aö meöan keisarastjórn var I
Kina, hafi keisarinn haft rétt til
aö útnefna eftirmann sinn. Slik-
an rétt geti enginn leiötogi i
kommúnistlsku rlki haft. Þaösé
fólkiö en ekkifráfarandi leiötogi
sem hafi þennan rétt.
Hér þykir geirnum vera beint
gegnengum öörum en Hua. Maó
er talinn hafa ráöiö því aö Hua
var skipaöur forsætisráöherra,
þegar Chou En-lai féll frá I aprll
Jiang Qing, ekkja Maós, ásamt þorpurunum Wang (til vinstri) og
Yao (til hægri).
1976. Þegar Maó féll svo sjálfur
frá 1 september sama ár, var
hann búinn aö útnefna Hua sem
arftaka sinn sem formann
flokksins.
Slöan hefur Hua veriö bæöi
formaöur flokksins og forsætis-
ráöherra þangaö til á nýloknum
fundi kinverska þingsins, þegar
hann varö aö láta forsætis-
ráöherraembættiö af hendi. Viö
þvi tók Zhao Ziyang, sem hefur
notiö hylli Dengs aö undan-
förnu.
ÝMISLEGT þykir nú benda til
aö þaö eigi eftir aö koma I ljós,
aö Hua hafi haft náiö samstarf
viö þorparana fjóra og veriö
sérstaklega i náöinni hjá þeim.
Þaö vakti á sínum tima mikla
athygli, þegar Hua hófst skyndi-
lega til æöstu valda, en hann
mátti þá heita óþekktur. Nú eru
þær sögur á kreiki, aö næstu
fjögur árin á undan hafi Hua
veriö æösti yfirmaöur öryggis-
gæzlunnar i landinu og beri þvi
beint eöa óbeint ábyrgö á
fangelsun Dengs og annarra
þeirra leiötoga sem þorpararnir
fjórir voru mótfallnir. Völd
þorparanna fjögurra byggöust á
þvl, aö Maó var á bandi þeirra.
Hafi Hua átt fjórmenningun-
um völd sin aö þakka, hefur
hannlaunaö þeim illa. Þeir voru
fangelsaöir rúmum mánuöi eft-
iraö Maó lézt. Hua sættist siöar
viö Deng, en sitthvaö þykir
benda til aö Deng hafi aldrei
treyst honum vel.
Líklegt þykir, aö þaö muni
skýrast á flokksþingi Kommún-
istaflokksins, sem haldiö veröur
i Peking I janúar, hvort Hua
heldur stööu sinni sem for-
maöur flokksins. Sennilega
veröur réttarhöldunum yfir Lin
Biao-Jiang Qingklikunni þá lok-
iö.
Margir fréttaskýrendur velta
þvi fyrir sér, hvernig myndin af
Maó, sem auglýstur hefur veriö
sem hinn mikli leiötogi, veröur
oröin aö öllum þessum mála-
rekstri loknum.