Tíminn - 05.10.1980, Side 9

Tíminn - 05.10.1980, Side 9
Sunnudagur 5. október 1980. Mannkynssaga Máls og menningar: Landa- fundir og siðaskipti Út er komin hjá Máli og menn- ingu Mannkynssaga 1492-1648 eftir Jón Thor Haraldsson. Bókin sem fjallar um eitt eftirtektar- verðasta timabil nýrri sögu, skiptist i 24 kafla. Megináhersla er lögð á stjórnmálasögu, auk þess sem i bókinni eru allitarlegir menningarsögukaflar og Norður- landasaga. Fjallað er um kapital- isma og konungsvald, Landa- fundina, Siðaskipfin og Þrjátiu ára striðið, svo eitthvað sé nefnt, sem kunnuglega kemur fyrir sjónir. Mannkynssaga þessi er hin sjötta I ritröð sem Mál og menn- ing hefur á undanförnum árum og áratugum gefið út. Hún er dável myndskreytt, henni fylgja kort, heimildaskrá, nafnaskrá og at- riðisorðaskrá, einnig „Almennt timatal”. Bókin er 437 blaðsiður prentuð i Prentsmiðjinni Odda. Tímarit Máls og menningar — nýtt hefti Timarit Máls og menningar, 2. hefti 1980, er komið út og er að nokkrum hluta helgað málefnum farandverkafólks. Veigamesta greinin i þeim flokki er Skýrsla um hreyfingu meðal farand- verkafólks eftir Jósef Kristjáns- son þar sem rakin eru tildrög að stofnun Baráttuhóps farand- verkafólks i Vestmannaeyjum i fyrrasumar og saga hreyfingar- innar siðan. Þessum efnisflokki tilheyra einnig tvær greinar eftir erlendar farandverkastúlkur og viðtal við Olafiu Þórðardóttur i Sandgerði um verbúöalif fyrir strið, einnig ljóö eftir Helgu M. Novak og Kristinu Bjarnadóttur. Þá ritar Árni Oskarsson greinina „Vinna, sofa, éta, þegja”,sem er athugun á textagerð um sjó- mennsku og vertfðarlif. Þá er löng grein i heftinu eftir OTYY"R ASTA m., W m Æ h M JLJk. OG GÆÐIN ERU \ * HVER ANNAR EN JCB getur boðið: ★ Heilsoðna burðargrind ★ Enga þyngdarklossa, þar sem vélin er á annað tonn þyngri en aðrar vélar af svipuðum stærðarflokki ★ Stærra vökvakerfi ★ öflugri snúning moksturstækja og gröfu- búnaðar ★ Hærra undir lægsta punkt GERIÐ SAMANBURÐ Einstaklega hagstætt verð og greiðslukjör á vélunum á þessu ári. Leitið nánari upplýsinga um verð og greiðslukjör ÉSÍiiSB |A U Immsa U/ODUSf LAGMÚLI 5, SIMI 81555 Arna Bergmann sem nefnist „Von um virðingu fyrir sjálfum mér”, þar sem bornar eru saman skáldsögur Theódórs Friðriks- sonar og sjálfsævisaga hans, 1 verum.sýnt hvernig meðhöndlun sömu atburðir fá, annars vegar i endurminningu, hins vegar I skáldsagnaformi og dregnar at- hyglisverðar ályktanir um stöðu skáldsögu og endurminninga i vitund Islendinga. Ljóð eru i heft- inu eftir Vilborgu Dagbjarts- dóttur, Véstein Lúðviksson og Anton Helga Jónsson, saga eftir Gabrfel Garcia Marquez i þýð- ingu Ingibjargar Haraldsdóttur og grein eftir Jón Viðar Jónsson, . Bertolt Brecht og Berliner En- semble. Adrepa er eftir Bjarn- friði Leósdóttur og bókaumsagnir eftir Pétur Gunnarsson og Silju Aðalsteinsdóttur. Fremst i heft- inu eru minningarorð um Þóru Vigfúsdóttur, ekkju Kristins E. Andréssonar, eftir Rögnvald Finnbogason og Magnús Kjartansson. Þetta hefti er 128 bls., prentað i Prentsmiðjunni Odda hf. Nokkur dráttur hefur verið á útkomu Timarits Máls og menningar I ár af óviðráðan- legum ástæðum, en tvö siðustu hefti ársins eru nú i undirbúningi samhliða og er stefnt að þvi að bæði komi út fyrir áramót.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.