Tíminn - 05.10.1980, Blaðsíða 24

Tíminn - 05.10.1980, Blaðsíða 24
<32 Sunnudagur 5. október 1980-. afsláttarkort Mánudaginn 6. október hefst afhending 10% afsláttarkorta á skrifstofu KRON, Lauga- vegi 91, Domus. Kortin eru tvö og gilda i öllum deildum Dom- us, 5% afsláttur er þó af stærri heimil- istækjum. Annað kortið gildir til og með 5. nóvember, en hitt til og með 4. desember. Nýir félagsmenn fá afhent afsláttarkort. KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS Höggdeyfir Smiðjuvegi 14, Kópavogi Simi 77152 HAU STSENDINGIN KOMTN Loft-Gas-Heavy Duty demparar i flestar gerðir bifreiða. Ótrúlega lágt verð — Póstsendum Tónleikar og danssýning listamanna frá Eistlandi i Þjóðleikhúsinu mánudags- kvöldiö 6. október kl. 20. Afar fjölbreytt efnisskrá: Einsöngur pianóleikur, kvart- ettsöngur, leikur á þjóðleg hljóöfæri. þjóðdansar, ballett. Aðgöngumiðasala I Þjóðleikhúsinu. MÍR. Sovéskir dagar MÍR1980 Furstadæmisins Qatar er sjaldan getið. Það er litið og fá- mennt, og það hefur horfið I skugga Arabalanda, þar sem tiðindasamara er á þann mæli- kvarða, er fréttastofnanir heimsins hafa til viðmiðunar. Qatar hefur samt verið sjálf- stætt riki I niu ár og á þessum niu árum hcfur orðið þar ör þró- un og ótrúiega miklar framfar- ir. Qatar er raunar dálítill skagi, rúmlega ellefu þúsund ferkiló- metrar að flatarmáli. Megin- hluti skagans er mjög þurr og hrjóstrugur og fyrir þrjátiu ár- um var þar eymdarlif. Við ströndina fengust að visu verð- mætar perlur, en allur hagnaður af perluköfun rauk út i veður og vind, þegar japansk- ar perlur, sem fengnar voru með ræktun skelfisks, tóku að berastá markaðinn. Verslun og viðskipti beið mikinn hnekki á kreppuárunum á milli heims- styrjaldanna og fiskveiöar, sem stundaðar voru, gáfu harla litið af sér. Meginhluti fólksins baröi ofan af fyrir sér á harla ófrjóu landi, og framtiöin sem við þvi blasti var án fyrirheita. Samt var olia I jörðu i Qatar og oliuvinnsla hófst. En henni fylgdi ekki neinn gullstraumur. Fyrsta oliuskipið lét úr höfn i Umm Said með farm á heims- markaöinn árið 1949, en oliu- félögin, sem önnuðust vinnsluna, höfðu sett oliulönd- um Araba harða kosti, er þau urðuað lúta. Fæstir urðu höku- Emirinn i Qatar, Hamad al-Thani. Lítið eyðimerk■ urland, sem kastað hefur ellibelgnum Krónprinsinn, Hamad bin Khalifa al-Thani. feitir af þvl, er þau guldu fyrir oliuna. En oliuvinnslan i Qatar jókst ört og frá árinu 1951 til 1959 fimmtugfölduðust tekjurnar. Enn var það samt ekki neinn auður, sem Qatarbúar hrepptu. Þeirra arður var einkum að gleðjast við vitneskjuna um það, að auðlind undir fótum þeirra varð útlendu auöfélagi uppspretta mikils gróða og þjónaði orkuþörf tæknivæddra þjóðfélaga i öðrum álfum. Sum- ir fengu þó vinnu i olluvinnslu- stöðvunum.en það var eingöngu erfiðisvinna, sem ætið var illa launuð. A ööru var ekki völ. Menntun var nálega óþekkt fyrirbrigði i Qatar, og fólk þar hafði svo engin tengsl við iðnaðarþjóðfélög. Þar að auki var Qatar á þessum árum bund- ið Bretum, er tekiö höfðu aö sér „vernd” skagans meö samningi sem undirritaður var árið 1916, þegar heimsstyrjöldin fyrri stóö sem hæst. 1 reynd höfðu oliufélögin fengið það sem þau girntust, en Qatarbúar það, sem minnst var komistaf með aöláta þá fá fyrir oliuna. A sjötta áratug aldarinnar fóru Qatarbúar smám saman aö rumska. Það rann upp fyrir þeim, aðsvo til allur oliugróðinn fór fram hjá þeirra garöi og hafnaði i sjóði annarra. Ódýr olia varö undirstaða vel- gengnistima á Vesturlöndum, og á sjöunda áratugnum fór mikillar óþreyju að gæta I Qatar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.