Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 13
A-Class – Ánægjunnar vegna
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
Nýr A-Class sameinar skynsemi og þægindi með fullkomnum hætti. Hann er nettur
en einnig ótrúlega rúmgóður og glæsileikinn helst í hendur við stórkostleg þægindin.
A-Class er bíll sem þú velur ánægjunnar vegna – af því að það er skynsamlegt.
Verð frá 2.290.000 kr.
Manninum sem var
grunaður um að hafa áreitt að
minnsta kosti fjögur stúlkubörn
kynferðislega að kvöldi 4. júlí hefur
verið sleppt úr varðhaldi. Að sögn
Björgvins Björgvinssonar aðstoðar-
yfirlögregluþjóns leiddi rannsókn
ekkert saknæmt í ljós.
Í ljós kom að maðurinn er andlega
vanheill en hann var úrskurðaður í
gæsluvarðhald 6. júlí. Á þeim tíma
þótti ekki ráðlagt að flytja hann á
geðdeild vegna rannsóknar-
hagsmuna.
„Við yfirheyrslur á stúlkunum
fjórum, sem hann var grunaður um
að hafa áreitt kynferðislega, kom í
ljós að málið var á misskilningi
byggt og þá var manninum sleppt
um leið. Hann féllst á að fara á geð-
deild og var fluttur þangað sama dag
og hann var leystur úr haldi og dvel-
ur þar enn,“ segir Björgvin og bætir
við að það sé tilfinning lögreglunnar
að þetta hafi verið misskilningur,
maðurinn gangi ekki heill til skógar
og hafi bara verið að leita sér að leik-
félaga.
„Það er óásættanlegt
hvernig Alþingi sniðgengur
löglega eigendur að sjávar-
auðlindinni,“ segir í bréfi Samtaka
eigenda sjávarjarða til alþingis-
manna. Vísað er til þess að
sjávarútvegsnefnd hafi átt fund
með hagsmunaaðilum í sjávar-
útvegi og rætt þar stjórn fiskveiða
án þess að boða fulltrúa samtak-
anna á fundinn. „Alþingi Íslend-
inga, sjávarútvegsnefnd, hefur
ekkert samráð haft við samtökin
og gerði enga tilraun til að heyra
sjónarmið þeirra, hvað viðvíkur
nýtingu auðlindarinnar,“ segja
eigendur sjávarjarða, sem
krefjast „að Alþingi fari að lögum,
hafi samráð og afli sér löglegra
umboða og heimilda allra hlutað-
eigenda til ráðstöfunar á
sjávarauðlindinni“.
Segjast afskiptir á
sjávarjörðum
Auglýsingasími
– Mest lesið