Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 19
Look and book er gagnvirk bókunarþjónusta
fyrir ferðamenn. Þar er hægt að skoða, bóka og
borga allt í einu.
„Þetta er bókunarstandur fyrir ferðatengda þjónustu á
Íslandi. Notandinn getur kannað framboð hjá þeim aðil-
um sem eru skráðir hjá okkur og eru með upplýsingar
á netinu. Síðan getur notandinn tengst þjónustuverinu
með síma og myndavél sem er á standinum. Þjónustu-
verið kannar framboðið og getur síðan bókað og tekið
við greiðslu þar sem standurinn er með kortalesara.
Síðan prentast út kvittun fyrir kaupunum,“ segir
Sigurður I. Halldórsson, framkvæmdastjóri Snerti-
lausna ehf. sem þróuðu og reka standana.
Á standinum er snertiskjár þar sem notandinn getur
kannað framboð á gistingu og afþreyingu á borð við
hestaferðir, hvalaskoðun, sjóstöng, jeppaferðir,
skoðunarferðir, snjósleðaferðir og gönguferðir. Auk
þess eru upplýsingar um veitingastaði, viðburði,
samgöngur, færð á vegum og veðurfar.
Þjónustan er notandanum að kostnaðarlausu en þeir
ferðaþjónustuaðilar sem skráðir eru hjá Look and book
borga vissa þóknun.
Standarnir eru víða um land á fjölförnum ferða-
mannastöðum og í verslunum N1, Eymundsson, á Park-
Inn hótelunum og á BSÍ.
Sigurður segir aðsóknina hafa farið hægt af stað en
aukist jafnt og þétt. Verkefnið er íslensk nýsköpun að
sögn Sigurðar, sem hyggst byrja hérlendis áður en
verður af mögulegri útrás.
Look and book er bæði stílað inn á erlenda ferðamenn
og Íslendinga sem vilja ferðast innanlands.
Þjónustuverið er opið frá kl. 8.30-22 alla virka daga og
frá kl. 9-16 um helgar. Sjá nánari upplýsingar á slóðinni:
www.lookandbook.is
Gagnvirk ferðaþjónusta
VEXTIR FRÁ
AÐEINS
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 20.6.2007.
3,7%
Frjálsi fjárfestingarbankinn lánar fyrirtækjum og einstaklingum til kaupa eða
endurfjármögnunar á atvinnuhúsnæði. Lánstími er allt að 30 árum og við kappkostum
að veita framúrskarandi þjónustu á hagstæðari kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6,
hringdu í 540 5000 eða sendu póst á frjalsi@frjalsi.is til að kynna þér málið nánar.
Finndu þér stað
Atvinnuhúsnæðislán með lægri lántökukostnaði
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Heilsaðu iPhone.
Hann er loksins kominn. iPhone síminn frá Apple er til sýnis í verslun
Farsímalagersins Laugavegi 178. Síminn er ekki kominn í sölu strax
en áhugasamir geta skráð sig á biðlista á farsimalagerinn.is
Fyrstir koma – fyrstir sjá!
póstlist