Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 36
Slúðurbloggarinn Perez Hilton er ansi oft fyrstur með slúður- fréttirnar og er svo vinsæll að hann er nánast orðinn frægur sjálfur. Í vikunni var hann fenginn í viðtal í þáttinn The View sem Barbara Walters sér um. Það var þó ekki Walters sem tók viðtalið við Perez heldur Whoopi Goldberg sem var gestastjórnandi í þættinum. Perez fékk þó að hitta Walters, sem hann virðist dýrka og dá. „Ég fékk að hitta hana baksviðs. Barbara tók sér smá tíma til þess að koma og heilsa upp á Perezinn. Hún er goðsögn í lifanda lífi og klassadama!“ Barbara hættir bráðum sem stjórnandi þáttarins og mikið hefur verið spáð og spekúlerað um það hver muni taka við. Þá hafa til dæmis verið nefndar þær Rosie O‘Donnell og Ivanka Trump, dóttir Donalds karlsins Trump. Perez orðinn frægur Bandaríska rappstjarnan P Diddy hefur sett inn skilaboð á Myspace- síðu sína um að hann sé að leita að nýjum aðstoðarmanni. Kappinn, sem heitir réttu nafni Sean Combs, hefur beðið umsækjendur um að senda inn þriggja mínútna myndskeið þar sem þeir lýsa því hvers vegna þeir ættu að fá starfið. Diddy varar umsækjendur við því að hann geti verið erfiður í umgengni og að hann muni eflaust öskra á aðstoðarmann sinn á stundum og láta hann vinna langan vinnudag. „Þið vitið að ég er sá besti og ég vil líka vinna með þeim bestu,“ sagði hann af einskærri hógværð. Um tuttugu umsækjendur hafa þegar sett inn myndskeið í gegnum vefsíðuna YouTube. Spurður hvers vegna hann notaði ekki venjulegar viðtalsaðferðir í leitinni að starfsmanni sagði hann: „Þetta er ný öld, nýr tími, nýtt tímabil. Þið getið gleymt því að þurfa að koma á skrifstofuna mína sveittir í lófunum af stressi.“ Gæti öskrað á aðstoðarmanninn Rebecca Loos, fyrrverandi aðstoðarkona Davids Beckham sem gerði allt vitlaust árið 2004 þegar hún sagði frá meintu ástarsambandi sínu við knattspyrnukappann, segir það sér að þakka hversu sterkt hjónaband Davids og Victoriu er. Victoria lét hafa eftir sér í nýlegu viðtali að tíminn þegar Loos sagði frá sambandinu í breskum sjónvarpsþætti hefði verið mjög erfiður og reynt mikið á hjónabandið. Það hefði hins vegar verið nægilega sterkt til að láta jafn fáránlegar ásakanir ekki hafa áhrif á sig. Loos segir að Beckham- hjónin ættu að þakka sér fyrir að hafa sagt opinberlega frá sögu sinni. „Það er mér að þakka að samband þeirra er sterkara en nokkru sinni. Þau hafa meira að segja átt annað barn síðan þá,“ sagði Loos þegar hún var spurð út í ummæli Victoriu í viðtalinu. Loos hvikar hvergi frá upprunalegri sögu sinni og segir framhjáhald Davids vissulega hafa átt sér stað. „Eins og Victoria sagði þá eru það slæmu hlutirnir sem styrkja hjónabandið,“ segir Loos, sem notaði einnig tækifærið og sendi út aðvörun til Victoriu. „Hún ætti að fylgjast vel með manninum sínum í LA. Það er fullt af sætum stelpum þar og ég veit ekki hvort David mun verða þægur strák- ur.“ Segir Beckham-hjónin eiga sér allt að þakka Rapparinn Snoop Dogg hyggst sýna á sér nýjar hliðar í raunveruleikaþætti sem hefur göngu sína sjónvarpsstöðinni E!. Þættirnir eiga að sýna hversu erfitt það er að samþætta fjölskyldulífið við rappara- lífsstílinn sem oftar en ekki snýst um íturvaxnar konur, skart, flotta bíla og glæpi. Snoop er þriggja barna faðir og þjálfari unglingaliðs í bandarískum ruðningi. Þar með er þó ekki öll sagan sögð því Snoop fékk nýlega fimm ára skilorðsbundinn dóm og var gert að inna af hendi átta hundruð stunda samfélags- þjónustu fyrir að bera skotvopn og hafa fíkniefni í sinni vörslu. Snoop lýsti sig sekan við dómtöku og var dómurinn í samræmi við það. Málið dró nokkurn dilk á eftir sér og var honum meðal annars meinað að koma til Bretlands þar sem hann hugðist halda tónleika með góðvini sínum P. Diddy. Áströlsk stjórnvöld veittu honum ekki heldur vegabréfsáritinu vegna þessa sama máls. „Þetta eiga eftir að vera að hrikalega fyndnir og hjartnæmir þættir,“ segir Ted Harbert, yfir- maður Comcast Entertainment Group sem á og rekur sjónvarps- stöðina E!, en hann er algjörlega óhræddur við ólíkindatólið Snoop. „Við teljum að einmitt þessar andstæður í lífi hans, utan sviðs og á því, eigi svo sannarlega erindi við áhorfendur okkar,“ bætir Harbert við. Það er varla ofsögum sagt að Snoop Dogg sé umdeildur í sínu fagi. Hann fæddist árið 1971 í Kaliforníu og hans rétta nafn er Calvin Broadus. Snoop-nafnið er hins vegar komið frá velþekktri persónu í teiknimyndasögu sem Calvin var löngum nefndur eftir í æsku. Snoop hefur verið fremstur í flokki rappara um árabil og hefur ósjaldan vísað til bágra aðstæðna blökkumanna í Banda- ríkjunum sem fylla fangelsin og stunda glæpi á götum úti milli þess sem þeir skjóta hver annan. Rapparinn nafntogaði hefur margoft komist í kast við lögin og femínistar á Íslandi mótmæltu meðal annars harðlega komu hans hingað til lands vegna þess hvernig konur væru sýndar í myndböndum hans. Sjálfur hefur rapparinn staðið fyrir framleiðslu klámmynda en hefur sagt skilið við þá iðju enda var kona hans til tíu ára, Shante Taylor, ekki par hrifin af slíku. Þá var réttað yfir Snoop í morðmáli árið 1993 en kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að hann væri saklaus. Heather Mills og sir Paul McCartney eru að skipuleggja sumarfrí saman, samkvæmt News of the World. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu er nokkurrar þíðu farið að gæta í samskiptum þeirra, sem urðu afar stirð þegar Mills sakaði Paul um að vera háðan verkjalyfjum og áfengi og að hann hefði margoft gengið í skrokk á henni. Mills og McCartney virðast hins vegar um þessar mundir staðráðin í að halda erfiðleikum sínum fjarri lífi dóttur sinnar Beatrice og hafa meðal annars hugleitt að gerast nágrannar í náinni framtíð. Sameiginlegt sumarfrí virðist því vera rökrétt framhald af óopinbera vopnahléinu sem nú hefur staðið yfir. Talið er að þau ætli sér að gista á glæsilegu setri sem Paul á skammt frá New York en heimildarmenn News of the World taka þó skýrt fram að ekki sé allt fallið í ljúfa löð. „Enn er mikil spenna á milli þeirra en þau vonast til að höggva á hnútinn í sumarfríinu. Paul er mjög hamingjusamur um þessar mundir og öll vandræði virðast tilheyra fortíðinni,“ sagði náinn vinur bítilsins fyrrverandi í samtali við News of the World. Fara saman í frí Breska blaðið Mail on Sunday hélt því fram í gær að söngkonan smávaxna Kylie Minogue og franski leikarinn Olivier Martinez væru að hittast á laum. Parið hætti sem kunnugt er saman í febrúar eftir að upp komst um framhjáhald leikarans með baðfatafyrirsætunni Sarai Givati en þá hafði Kylie nýlokið krabbameinsmeðferð. Þetta hliðarspor varð Martinez mikill álitshnekkir og uppskar hann meðal annars uppnefnið Le Rat í frönskum fjölmiðlum eða Rottan. Þótt þau hafi hætt saman við frekar eldfimar aðstæður hafa þau haldið góðu sambandi og hefur Oliver leyft Kylie að gista í íbúð sinni í París. Þau hafa þó aldrei verið á sama tíma í borginni en nú þykist Mail on Sunday hafa komist á snoðir um að lengi lifi í gömlum glæðum. „Þau hafa talað saman í síma en reynt að halda ákveðinni fjarlægð frá hvort öðru þar til nú. Það væri frábært ef þau næðu saman aftur,“ sagði heimildar- maður blaðsins. Talsmaður Kylie vísaði þessu alfarið á bug. „Þau hafa alltaf hist reglulega og á því hefur engin breyting orðið. Þau eru ekki byrjuð saman aftur,“ sagði hann. Endurnýja kynnin

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.