Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 20
Nokkur ráð til að koma frosnum iPod í gang. Margir iPod-eigendur lenda í því að iPodinn þeirra frýs eða lætur öllum illum látum. Yfirleitt er þó ekki flókið að koma honum í samt lag og oft bara nóg að endurræsa hann. Eigi maður iPod, iPod nano eða iPod mini á að vera nóg að halda menu- og select-tökkunum niðri í sex til tíu sekúndur þar til Apple- merkið birtist. Ef til vill þarf þó að endurtaka þetta svo það takist. Við það ætti iPodinn að lagast. Til að endurræsa iPod shuffle er hins vegar best að aftengja hann úr tölvunni, sé hann á annað borð tengdur henni. Slökkvið því næst á honum á bakhliðinni. Bíðið í fimm sekúndur og færið takkann á bakhliðinni á annað hvort play eða shuffle og við það ætti hann að fara í gang. Virki þetta ekki er best að setja iPodinn í hleðslutæki og tengja við innstungu eða tölvu. Fullvissið ykkur um að kveikt sé á tölvunni svo þetta virki. Fólki hættir nefnilega til að steingleyma því í hita leiksins. Þegar iPodinn frýs Microsoft kynnir til sögunnar tölvumús sem er ýmsum kost- um búin. Microsoft hefur sent frá sér nýja tölvumús, svokallaða Wireless Notebook Presenter Mouse 8000, sem býr yfir ýmsum skemmtilegum notkunarmöguleikum og beðið hefur verið eftir með mikilli eftir- væntingu. Músina, sem þykir einkar hand- hæg við kynningar, má nota til að fletta í gegnum glærur, til dæmis í PowerPoint frá Microsoft og öðrum kynningarforritum, og það úr tæp- lega tíu metra fjarlægð frá tölv- unni. Hún er þar að auki með inn- byggðan ljósbendil og blek á tölvu- tæku formi, sem má hvort tveggja nota til að undirstrika ákveðin atriði á kynningum. Músina má líka nota á kynningum sem byggja á marg- miðlunartækni eða sem handhæga fjarstýringu heima við, þar sem undir henni er stjórnborð til að fletta ljós- myndum, spila kvikmyndir og tónlist og hækka og lækka hljóð í tölvunni. Þá er hún búin 2,4 GHz blátannartækni, sem gerir það að verkum að hún virkar þráðlaust úr fyrrnefndri tíu metra fjarlægð, án nokkurra truflana. Á músinni er ennfemur takki sem gerir henni kleift að komast fljótt að glærum og stækka upp ákveðin atriði á þeim. Síðast en ekki síst er á henni ljós, sem blikkar þegar hún er að verða rafmagnslaus. Með hliðsjón af ofansögðu má velta fyrir sér hvort tölvumýs séu hugsanlegir arftakar farsíma, verði þær færar um enn fleiri aðgerðir í framtíðinni. Engin venjuleg mús www.byggingavorur.com Mex - byggingavörur Lynghálsi 3 Sími 567 1300 & 848 3215 EKKI BARA STIGAR - LÍKA GLUGGAR OG HURÐIR STUTTUR AFGREIÐSLUFRESTUR F í t o n / S Í A Sigma linsur fyrir flestar gerðir myndavéla FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.