Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 40
Hvíldin er erfiðasti tími ársins fyrir mig Landsbankadeild karla 1. deild karla Fjarðabyggð varð fyrsta liðið til að sækja stig til Grindavík- ur í 1. deild karla í sumar en liðin gerðu markalaust jafntefli í gær. Grindvíkingar voru sterkari aðilinn og sköpuðu sér hættulegri færi en gestirnir að austan sem hafa verið spútniklið sumarsins spiluðu skynsaman varnarleik en voru samt alltaf hættulegri í sínu skyndisóknum. Þessi úrslit hindruðu það að Grindavík stingi af á toppnum en Fjarðabyggð hefur jafnframt sex stiga forskot á Fjölni í baráttunni um efstu þrjú sætin en Grafar- vogsbúar eiga leik inni líkt og Þróttur sem er fjórum stigum á eftir Fjarðabyggð í þriðja sætinu. „Við vorum að mæta liði sem eru sterkt. Þeir ætluðu sér greini- lega stig í dag, þetta var gott stig fyrir þá en tvö töpuð stig fyrir okkur. Við fáum alveg færi á að setja þá en á móti svona liði verður að klára færin. Svo loksins þegar við skorum þá er dæmd rangs- taða,“ sagði Óli Stefán Flóvents- son, fyrirliði Grindavíkur, eftir leik. Þrátt fyrir góða stöðu þá segir Óli Stefán mikið vera eftir. „Við kvörtum ekki yfir stöðunni og þetta er stig í húsi. Við erum ekki búnir að tapa á heimavelli og nú er næst annar heimaleikur á móti Stjörnunni á föstudaginn og það er annar úrslitaleikur. Mótið er samt bara hálfnað en meðan að við höldum haus og höldum áfram að spila svona fótbolta þá hef ég litlar áhyggjur af þessu,“ sagði Óli Stefán. „Við komum hingað til þess að ná í öll stigin en vissum að það yrði erfitt,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fjarðabyggð- ar er svona tiltölulega sáttur með stigið eftir leikinn. „Við erum á góðri leið með að halda okkur uppi, erum ennþá að læra á deildina og læra á okkar getu. Þetta eru hörku strákar í þessu liði og maður dáist bara að hugarfarinu hjá þeim. Við vitum alveg að við erum ekki besta liðið en við erum með hörku lið,“ sagði Þorvaldur sem vildi ekki taka dýpra í árinni en játti því þó að hann og liðið fyndu fyrir meiri pressu heima fyrir eftir alla vel- gengni liðsins í sumar. Tvö töpuð stig fyrir okkur Grindvíkinga Neðsta lið Landsbanka- deildarinnar, KR, náði í gott stig gegn Keflavík í gær en KR-skútan hefur ekki alltaf fiskað vel í Bítla- bænum. KR er þrátt fyrir það enn neðst í deildinni en stigin tvö reyn- ast Keflavík einnig dýr í eltingar- leiknum við FH. Fyrri hálfleikur var frekar bragðdaufur. Keflavík stýrði umferðinni gegn varnarsinnuðum KR-ingum. Baldur Sigurðsson var geysiöflugur á miðjunni en KR- vörnin gerði vel í að loka á kantspil Keflvíkinga. KR-vörnin var að sama skapi í miklum vandræðum með föst leikatriði heimamanna og Baldur var í tvígang nærri því að skora með skalla. Sigmundur Kristjánsson var mjög líflegur í sókninni hjá KR og nær allar sóknaraðgerðir Vestur- bæinga fóru í gegnum hann. KR fékk víti á 35. mínútu þegar brotið var á Kristni Magnússyni. Ómar Jóhannsson varði arfaslaka spyrnu Rúnars Kristinssonar auðveldlega og markalaust í leikhléi. Það var KR sem stýrði umferð- inni fyrri hluta síðari hálfleiks en örvæntingarfullir Keflvíkingar voru nánast búnir að leggja niður vopnin í sókninni en blessunar- lega fyrir heimamenn stóð vörnin vaktina ágætlega. Heimamenn hresstust síðan um miðjan hálfleikinn og komust yfir ellefu mínútum fyrir leikslok þegar Simun átti frábært skot sem hafnaði neðst í markhorninu. Gott mark hjá Færeyingnum sem hafði nákvæmlega ekkert komist áleiðis þar til hann skoraði. KR-ingar neituðu að gefast upp og aðeins þremur mínútum síðar jafnaði varamaðurinn Björgólfur Takefusa leikinn með góðu skoti í teignum. Það var síðasta mark leiksins og liðin tóku því hvort sitt stigið sem var líklega sanngjörn niðurstaða. „Það er erfitt að koma hingað og taka stig. Ég er þokkalega sáttur við okkar leik. Við vorum skyn- samir og gerðum það sem var lagt upp með,“ sagði Rúnar Kristins- son, leikmaður KR, frekar svekkt- ur en hann klúðraði vítaspyrnu í leiknum. „Ég ætlaði bara að setja boltann í mitt markið og markvörðurinn stóð kyrr. Það var nú ekkert flókn- ara en það. Þetta var lélegt víti,“ sagði Rúnar. KR átti einn sinn skásta leik í sumar. Vörnin hélt vel, miðverð- irnir voru traustir og bakverðirnir ungu geysiöflugir. Pétur Mart- einsson var loksins tekinn úr lið- inu en tryggð Teits við Pétur hefur verið aðdáunaverð miðað við spila- mennsku Péturs sem hefur lítið getað. Teitur hefur hingað til ekki verið að veðja á réttu hestana en þetta var skref í rétta átt. Baldur Sigurðsson var bestur í óvenju daufu Keflavíkurliði. „Við erum á heimavelli gegn neðsta lið- inu og þá eigum við að vinna. Við komumst þess utan yfir en miss- um það niður og það er alveg glórulaust. Ég er hundfúll,“ sagði Baldur en Keflvíkingar voru skugginn af sjálfum sér gegn Þrótti og nokkuð vantaði á fyrri kraft í leiknum í gær og liðið skap- aði sama sem ekki neitt. „Nánast öll lið í deildinni eru farin að bakka meira en áður gegn okkur en við erum samt að skora en því miður erum við ekki að halda hreinu. Skagaleikurinn situr ekki í mér en ég veit ekki með hina. Það er ekki hægt að keyra á sama hraða gegn liðum sem bakka mjög djúpt og þá þarf þolinmæði og við erum að glíma við það vandamál,“ sagði Baldur. Keflavík og KR skiptu með sér stigunum í Keflavík í gær. Lokatölur 1-1 í frekar jöfnum leik. KR klúðraði víti í leiknum og er enn neðst í Landsbankadeildinni tveimur stigum á eftir Víkingi og Fram.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.