Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.07.2007, Blaðsíða 6
• Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 80 05 0 6. 2 0 0 7 Þriðjudaginn 17. júlí verður farin fræðslu- og gönguferð um Hengilssvæðið. Hugað verður að orkunni og beislun hennar, orku-jarðfræði, gróðri og sögu. Mæting við Hellisheiðarvirkjun við Kolviðar- hól kl.19:30. Leiðsögumenn eru Einar Gunnlaugsson, jarðfræðingur, og Kristinn H. Þorsteinsson, garðyrkjufræðingur. Ganga um Hengilssvæðið R V 62 37 Rekstrarvörur 1982–200725ára Bjarni Ómar Ragnarsson - verslunarstjóri hjá RV Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur – fyrir sumarbústaðinn og veiðihúsið Shimon Peres tók í gær við forsetaembætti í Ísrael og segist staðráðinn í að gera allt sem hann getur til þess að stilla til friðar í blóðugum deilum Ísra- ela og Palestínumanna. Embætti forsetans er að mestu leyti táknrænt, völdin liggja eink- um hjá forsætisráðherra lands- ins, en Peres segist ætla að gera það sem hann getur, „hvetja“ ríkisstjórnina til að taka skref í friðarátt, gefa leiðtogum þjóðar- innar góð ráð og tala við almenn- ing. „Á opinberum vettvangi beitir maður ekki sverði. Maður beitir orðum. Maður talar við fólk,“ segir Peres. „Það ætla ég að gera. Ég hef ekkert vald annað en afl sannfæringar minnar.“ Margir Ísraelar hafa sakað Peres um að vera rómantískan draumóramann, ekki síst eftir að hann fór að tala um „hin nýju Mið-Austurlönd“ á þeim tíma þegar allt virtist stefna í að var- anlegur friður myndi takast milli Ísraela og Palestínumanna. „Ég held að enginn hafi orðið fyrir jafn miklum árásum og gagnrýni á þessum síðustu sextíu árum eins og ég. En staðreyndin er sú, að eftir 60 ára gagnrýni og hræðileg ummæli, þá ákváðu þeir að kjósa mig til forseta,“ sagði Peres. „Ég átti ekki von á því.“ Peres verður 84 ára í næsta mánuði, þannig að hann verður orðinn níræður þegar kjörtímabil hans rennur út að sjö árum liðn- um. Hann segist hvorki ætla að láta aldur sinn né táknræna stöðu embættisins hamla sér í starfi. „Ef maður er heilbrigður og skýr í hugsun hvað er þá að? Ég er ekkert að flýta mér að deyja,“ sagði Peres. „Og þangað til ætla ég ekki að sóa lífi mínu.“ Peres var á sínum tíma aðstoð- armaður Davids Ben Gurion, fyrsta forsætisráðherrra Ísraels, og tók þátt í að byggja upp her landsins á sjötta áratugnum. Hann hefur á langri ævi gegnt nánast öllum helstu embættum í ísraelskum stjórnmálum, þar á meðal verið forsætisráðherra þri- svar sinnum. Þegar hann var utanríkisráð- herra átti hann stóran þátt í tilurð fyrsta friðarsamnings Ísraela og Palestínumanna, og fékk fyrir vikið friðarverðlaun Nóbels sem hann deildi með Jitsak Rabin, þáverandi forsætisráðherra, og Jasser Arafat, leiðtoga Palestínu- manna. Peres hefur undanfarið verið aðstoðarforsætisráðherra í ríkis- stjórn Ehuds Olmerts. Hann tekur við forsetaembættinu af Moshe Katzav, sem hrökklaðist úr emb- ættinu fyrir hálfum mánuði eftir að fjórar konur höfðu sakað hann um alvarleg kynferðisbrot, þar á meðal nauðgun. Peres orðinn forseti Shimon Peres, sem hlaut á sínum tíma friðarverðlaun Nóbels, ætlar að nota næstu sjö ár til að beita sér fyrir friði. Hann verður 84 ára í næsta mánuði. Á opinberum vettvangi beitir maður ekki sverði. Maður beitir orðum.“ Norberto Andrade, yfirbarþjónn á Millenium-hótelinu í London, segir að geislavirka eit- urefninu pólon 210 hafi að öllum líkindum verið sett út í te Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi KGB- njósnara, þegar hann sat þar ásamt þremur öðrum Rússum 1. nóvember síðastliðinn. „Þegar ég var að koma með gin og tónik á borðið var ég truflaður,“ segir Andrade í viðtali við breska dagblaðið Daily Telegraph í gær. „Ég gat ekki séð hvað var að gerast, en þetta virtist vera gert mjög meðvitað til þess að leiða athyglina að einhverju öðru. Ég átti erfitt með að setja drykkina niður.“ Andrade segist ekki hafa séð þegar eitrinu var laumað út í teið, en hann segist telja að það hafi gerst þegar hann var truflaður. Seinna sögðu lögreglumenn honum að geislavirka efnið hafi fundist út um allt borðið og á gólfinu og á mynd sem var á veggnum beint fyrir ofan Litvinenko. „Þetta var í eina skiptið sem andrúmsloftið virtist fjandsamlegt og eitthvað var að gerast á þeim tíma- punkti.“ Andrade segir að seinna, þegar hann var að taka af borðinu, hafi hann tekið eftir því að teið virtist vera gulara en venjulega og var orðið „þykkara – það virt- ist klístrað.“ Þetta er í fyrsta sinn sem lýsing sjónarvotts í mál- inu er gerð opinber. Litvinenko lést af áhrifum eitursins 23. nóvember. Stundar þú reglulega hreyfingu þér til heilsubótar? Fylgist þú með fréttum af fræga fólkinu? Fimm daga vinnu- heimsókn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra með fylgdarliði til Ísraels og sjálfs- stjórnarsvæða Palestínumanna hefst í dag með kynnisferð að landamærum Ísraels og Líbanons og upp í Gólanhæðir á landamær- unum að Sýrlandi. Á dagskrá eru fundir með ísra- elskum og palestínskum ráðamönn- um og með fulltrúum frjálsra félagasamtaka, heimsóknir í flótta- mannabúðir og fleira. Ingibjörg Sólrún kann að verða fyrsti erlendi ráðamaðurinn sem hittir Shimon Peres eftir að hann sver embættiseið sem nýr forseti Ísraels í vikunni. Á morgun hittir hún í Jerúsalem Tzipi Livni, utan- ríkisráðherra Ísraels, sem og aðstoðarvarnarmálaráðherrann og nokkra valinkunna þingmenn á Ísraelsþingi, Knesset. Hún heim- sækir einnig Helfararminningar- safnið Yad Vashem. Á fimmtudag hittir hún Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, og Salam Fayyad, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar Palestínu- manna, í Ramallah á Vesturbakk- anum. Af öryggisástæðum er ekki farið til Gazasvæðisins. Í beinu framhaldi af heimsókn- inni til Ísraels og sjálfstjórnar- svæðanna fer utanríkisráðherra til Jórdaníu, skoðar þar steinhofið Petru og ræðir við ráðamenn, ásamt því að heimsækja sjúkrahús sem annast hefur flóttamenn frá Írak. Ræðir ástandið við ráðamenn Sá sem drekkur sódavatn úr flösku notar 1500 sinni meiri orku og losar 80 sinnum meira af koltvísýringi út í andrúmsloftið en sá drekkur vatn úr krananum. Þetta eru niðurstöður norskrar rannsóknar sem greint var frá í Aftenposten um helgina. Yfirvöld í New York hófu herferð í síðustu viku gegn ofdrykkju fólks á flöskuvatni. Ástæðan er sú að þrjár af hverjum fjórum flöskum enda í ruslatunnunum í stað endur- vinnslugáma. Ráðamenn reyna nú að sannfæra borgarbúa um að vatnið í krananum sé hollara og þar að auki sé það frítt. Flöskuvatnið er óumhverfsvænt

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.