Fréttablaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurágúst 2007næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2930311234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Fréttablaðið - 07.08.2007, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 07.08.2007, Blaðsíða 40
Verðið á Volkswagen Golf hefur aldrei verið hagstæðara. Taktu gæðin og glæsileikann með í reikninginn og þú sérð að þetta er tækifæri sem borgar sig að grípa. Komdu, reynsluaktu og tryggðu þér Golf. Gerðu bílinn enn glæsilegri með sportpakka að verðmæti 280.000 kr. • 16" álfelgur • sóllúga • leðurstýri • þokuljós • armpúði milli framsæta • samlitur Golf Trendline kostar aðeins 25.490 kr. á mánuði.* Volkswagen Golf er grænn bíll HEKLA greiðir fyrir kolefnisjöfnun allra nýrra Volkswagen-bíla í eitt ár. Kolefnisjöfnun felst í því að binda samsvarandi magn gróðurhúsalofttegunda og bíllinn gefur frá sér. Þetta gerum við með skógrækt og landgræðslu. HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi 1.9 9 8 .0 0 0 kr. *M .v . 1 0% ú tb o rg u n o g b íl as am n in g SP t il 8 4 m án að a. Faðir minn gat ekki gert upp við sig hvort hann vildi verða bóndi eða sjómaður þegar hann var yngri. Rétt rúmlega tvítugir höfðu foreldr- ar mínir eignast bú á Suðurlandi auk nokkurra dætra. Þegar þau höfðu byggt nýtt íbúðarhús skall óðaverð- bólga á. Þegar pabbi þurfti svo að dvelja lengi á sjúkrahúsi vegna mjög skæðrar lungnabólgu var bónda- draumurinn að mestu úr sögunni og næsta grunnatvinnugrein þess tíma tók við – sjómennska. Hægt var að selja aðsetur fjölskyldunnar bónda sem ætlaði að verða ríkur á loðdýra- rækt. Haldið var til Stokkseyrar, svona rétt áður en mest öll útgerð þar lagðist af. Leiðir fjölskyldunnar lágu því víðar um landið. urðu þó útundan. Úr því var loksins bætt í sumar. Lagt var í hann með trausta vegahand- bók, Vestfirðingasögur í gamalli útgáfu og Íslandssögu Illuga í óhandhægu broti. Þema ferðarinnar skyldi vera hryllingur liðinna tíma. var upphafsreitur ferðarinnar. Þar kynntum við fjöl- skyldan okkur hörmungar galdra- fársins. var næsti áfangastað- ur. Kirkjan sem reist var af drengj- unum sem þar voru geymdir fyrr á öldinni var læst. Ég leit inn um rauð- litað glerið og virti fyrir mér kvala- svip Krists á altaristöflunni áður en við grilluðum á hvítri ströndinni. er ekki hægt að skilja útundan í ferð sem þessari. Staður- inn afskekkti þar sem eitt frægasta sakamál 19. aldar átti sér stað. Gönguleiðin að bænum er torfær og grýtt. Því kom mér á óvart að sjá konu, nokkuð við aldur, sitja við rústir bæjarins. Grátt hár hennar í nákvæmlega sama lit og veðraður rekaviðurinn sem eitt sinn hafði haldið þaki bæjarins uppi. Hún var að setja nýja gestabók við bæinn. Tilkynnti mér, eftir að við höfðum kynnt okkur, að hún væri afkom- andi ógæfufólksins sem bærinn er helst þekktur fyrir. Hún fræddi mig um það að á Sjöundá hefði verið búið til 1920; afi hennar og amma hefðu verið síðustu ábúendurnir. er einnig nauðsynlegur viðkomustaður í hryllingsferð. Sýslumaðurinn Ari í Ögri er jú maðurinn sem stóð fyrir eina fjöldamorði Íslandssögunnar. heimleið komum við að yfirgef- inni sundlaug. Hún var hrein og hlý. Ólíkt niðurníddu sturtuhúsinu sem eyðilegging og rotnun höfðu unnið á. Tómur ískælir í gangveginum með myndum af brosandi fólki var eins og ósmekklegur brandari. Svona í stíl við fallega en kalda eyðifirðina í kring. Frá salerni hússins heyrði ég dynjandi vatnsnið. Ég gekk inn og reyndi að skrúfa fyrir heitavatns- krana. Úr honum hafði sjóðheitt vatn greinilega runnið lengi því mikill kísill hafði sest á stútinn. Blátt gullið – sjálfan ríkidóm framtíðarinnar – náði ég þó ekki að beisla og áfram seytlaði það ofan í niðurfallið og út í firðina þar sem menn dreymir um að koma á laggirnar stöð til að hreinsa svartagull annarra þjóða. Stöð sem myndi eyða tækifærunum sem fyrir eru. Stöð sem hljómar eins og hryllingur úr framtíðinni. Íslandssaga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað: 211. tölublað (07.08.2007)
https://timarit.is/issue/277529

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

211. tölublað (07.08.2007)

Aðgerðir: