Fréttablaðið - 07.08.2007, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 07.08.2007, Blaðsíða 11
„Tarfurinn var fastur svo það var ekkert hægt að gera í stöðunni annað en skjóta hann,“ segir Sævar Guðjónsson, leiðsögu- maður með hreindýraveiðum, en hann rakst á hreindýrstarf á Áreyjatindi á dögunum sem var illa flæktur í raf- girðingavír. „Við sjáum dæmi um þetta annað slagið og sem betur fer er stundum hægt að hjálpa dýrunum. Einu sinni skaut ég hornin af tarfi til þess að losa hann við svona flækju en í þessu tilfelli var vírinn flæktur um háls og fætur dýrsins svo það var ekki nokkur leið að losa hann. Vírinn særir skepnurnar með tímanum og þessi grey fá ekki penisilín eins og við svo það borgar sig að fella þau áður en þau fara að þjást, þótt það sé vissulega leiðinlegt,“ segir Sævar. Sævar segir að hreindýraveiðitímabilið fari rólega af stað en veiðar hafi gengið vel. „Þau dýr sem ég hef séð eru í mjög góðu ástandi og þeir tarfar sem við höfum skotið hér niðri á fjörðunum eru feitir og flottir,“ segir Sævar sem býst við að traffíkin aukist þegar líður á mánuðinn. Þann 1. ágúst höfðu verið veiddir 67 tarfar og ein kýr. Kvóti ársins hljóðar upp á 577 kýr og 560 tarfa en heimilt er að veiða hreindýr til 15. september. Leiðinlegt að þurfa að fella svona dýr Velkomin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Umfangsmiklar breytingar hafa staðið yfir á Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðustu misserin. Verslunar- og þjónusturýmið hefur ríflega tvöfaldast og fjölmargir nýir rekstraraðilar bæst í hópinn. Veitingastöðum fjölgar jafnt og þétt og úrval verslana og vöruframboð hefur aldrei verið glæsilegra. Aukið rými og bætt þjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar Við hvetjum alla farþega til þess að mæta tímanlega og njóta alls þess sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur upp á að bjóða. Hægt er að nálgast upplýsingar um þjónustu flugstöðvarinnar á airport.is. Munið! Innritun hefst 2 tímum fyrir brottför! Fáðu meira – mættu fyrr! Fáðu meira fyrir ferðina ÍS L E N S K A S IA .I S F L E 3 77 03 0 6/ 07

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.