Fréttablaðið - 07.08.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.08.2007, Blaðsíða 2
 „Maður getur alltaf á sig börnum bætt,“ segir Stella Guð- mundsdóttir spákona. Stella kynnti „Símann hennar ömmu“ um helgina í smáauglýs- ingum Fréttablaðsins. Þar bauð hún börnum og unglingum, sem líður illa, að hringja í sig og spjalla. „Það sem vakti fyrir mér var að ná til þessara unglinga sem hringja ekki í hjálparsíma Rauða krossins, 1717. Það eru allt of fáir sem láta sig ungt fólk varða,“ segir Stella. Auglýsingin hefur birst einu sinni og enn hefur enginn ungling- ur hringt. Hins vegar hafa full- orðnir látið í sér heyra. „Það var til dæmis einhver perri sem stundi um miðja nótt. Hann hringdi margoft úr leyninúmeri. Ég spurði hann bara hvort hann væri að syngja sitt síðasta,“ segir Stella og hlær. Stella er spákona í hjáverkum og býður þeim sem hún spáir fyrir að leggja aura í skál til að styrkja annað sjálfboðastarf hennar, að keyra ungmenni heim. „Ég hef gaman af því að keyra og um helgar hitti ég oft ungt fólk sem vantar far heim og þá fá þau far með mér,“ segir hún. „Þetta er það fólk sem við eigum að hlúa að,“ segir þessi hjálpfúsa kona. „Ég held að það séu mjög margir sem vildu gera þetta sem ég er að gera, en fólk hefur sig ein- hverra hluta vegna ekki í það.“ Hitaveitu Suðurnesja barst tíu milljóna dala ávísun frá varnarliðinu í pósti 15. júní síðastliðinn. Upphæðin jafngildir 625 milljónum króna. Ávísunin var greiðsla vegna samningsrofs um kaup á heitu vatni, sem varð í kjölfar brottfarar varnarliðsins. Samið var um greiðsluna 25. október 2006 og tók því um átta mánuði fyrir varnarliðið að greiða upphæðina. Þetta kom fram í fréttabréfi Hitaveitu Suðurnesja, Fréttaveitunni. Varnarliðið var stærsti einstaki viðskiptavinur Hitaveitunnar og var samið um þessa greiðslu vegna brottfarar hersins. Fengu 625 millj- óna króna tékka Skýrsla Brunamála- stofnunar um brunann á Lækjar- torgi í apríl síðastliðnum hefur verið send hagsmunaaðilum. Þeir fá rúmar þrjár vikur til að fara yfir hana og koma með athuga- semdir. Eftir það verður haldinn blaðamannafundur sem verður þá líklega í lok ágústmánaðar. Björn Karlsson brunamála- stjóri sagði að skýrslugerðin hefði verið miklu seinlegri en hann bjóst við. „Það er búið að vera svo mikið um breytingar þarna,“ sagði Björn. „Heilmikið kraðak af teikningum er til af húsunum og við þurftum að fara vandlega yfir það allt saman.“ Skýrsla send eigendum Er amma fyrir alla unglinga Bresk stjórnvöld reyna nú hvað þau geta til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kúariðu svo ekki verði úr nýr faraldur á borð við þann sem varð árið 2001. Enn er verið að rannsaka hvort kúariðusmitið sem uppgötvaðist í síðustu viku megi rekja til rannsóknarstöðvar þar sem bóluefni gegn kúariðu er framleitt. Einnig er verið að kanna hvort flóðin í síðasta mánuði gætu hafa átt hlut að máli. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, gerði hlé á sumarleyfi sínu í gær og fór að hitta bændur sem búa í nágrenni býlisins við Wanborough þar sem kúariðusmitið fannst. Debbie Reynolds, yfirdýralæknir í Bretlandi, segir að kúariðusmitið sé af sama stofni og greindist árið 1967. Þessi stofn hefur greinst í dýrum lengi, en hefur verið notaður í bóluefni. Hilary Benn, umhverfisráðherra Bretlands, segir að skýrslu frá sérfræðingum sé að vænta á mánudag eða þriðjudag. „Við verðum að koma í veg fyrir meiri útbreiðslu,“ segir hann, og rifjar upp faraldurinn árið 2001 þegar grípa þurfti til harkalegra aðgerða; slátra þurfti sjö milljón dýrum og brenna hræjunum í gryfjum víðs vegar um landið. Þessar aðgerðir urðu mikið áfall bæði fyrir landbúnað og ferðaþjónustu í Bretlandi. Hvorki Glitnir né Lands- bankinn hafa fylgt í kjölfar Kaupþings sem hækkaði vexti á nýjum íbúðalánum í 5,95 prósent, eða um 0,75 prósentur, fyrir síðustu mánaðamót. Vextir á nýjum íbúðalánum í íslenskum krónum eru enn 5,2 prósent hjá bönkunum tveimur og það sama er uppi á teningnum hjá Byr sparisjóði. Bæði SPRON og Frjálsi fjárfest- ingarbankinn fóru hins vegar að dæmi Kaupþings og hækkuðu vexti í 5,95 prósent frá og með 1. ágúst. Lán frá Íbúðalánasjóði bera lægstu vextina. Þeir eru 4,8 prósent með uppgreiðslugjaldi en 5,05 prósent án uppgreiðslugjalds. Bankarnir fylgj- ast ekki að Bragi, er Ein með öllu þá öll? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði 22 ára gamlan karlmann sem ók á Vesturlandsvegi við Grafarholt klukkan 21 í gærkvöldi. Maðurinn mældist á 169 kílómetra hraða á klukkustund, rúmlega tvöföldum hámarkshraða á vegkaflanum. Maðurinn var sviptur ökurétt- indum á vettvangi. Að sögn lögreglu sprengdi hann sekta- mörk lögreglu, en einungis er heimilt að sekta fyrir allt að 160 kílómetra hraða. Maðurinn þarf því að fara fyrir dómara sem ákvarðar refsingu hans. Að sögn lögreglu er ljóst að það verði umtalsverð fjárupphæð. Sprengdi sekta- mörk lögreglu Lögreglan í Borgar- nesi stöðvaði ungan mann fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna klukkan fimm á föstudagsmorgun. Fíkniefni fundust í bifreið hans og var maðurinn handtekinn. Maður- inn var án ökuréttinda eftir að hafa verið sviptur þeim. Í kjölfarið náði einhver í bíl mannsins til lögreglunnar fyrir hann. Á laugardag klukkan hálf þrjú var hann svo stöðvaður á Blönduósi á bílnum. Aftur greind- ist hann undir áhrifum eiturlyfja og fundust aftur fíkniefni í bíln- um. Auk þess fannst þýfi í bílnum frá innbroti á Selfossi fyrir um viku. Í ljós kom að eigandi bifreið- arinnar var erlendis og var því lagt hald á hana. Að sögn lögreglunnar á Blöndu- ósi var maðurinn tekinn fyrir fíkniefnaakstur í þriðja skiptið í Reykjavík á sunnudaginn. Hafði hann þá útvegað sér aðra bifreið og voru aftur fíkniefni í bíl hans. Að sögn lögreglu á maðurinn yfir höfði sér eins mánaðar fang- elsisvist fyrir að keyra án öku- leyfa. Þá eru hin brotin ótalin. Annar maður var stöðvaður á tveimur stöðum á landinu undir áhrifum fíkniefna um helgina. Fyrst var hann stöðvaður á fimmtudagskvöld í Borgarnesi og aftur á laugardagskvöld á Blöndu- ósi. Var lagt hald á bílinn á Blöndu- ósi, en ekki fundust fíkniefni á manninum. „Þegar vaknar grunur um lyfja- akstur getum við tekið strokusýni á tungu eða enni, sem eru sam- bærileg við blásturstækin sem notuð eru við ölvunarakstur,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðalvarð- stjóri á höfuðborgarsvæðinu. „Ef strokusýnin eru jákvæð eru gerðar frekari rannsóknir. Ekkert má finnast í blóði, annars eru menn sviptir ökuleyfi.“ Ásgeir segir að fyrir liggi skýrari heimildir fyrir lögregluna til að bregðast við lyfjaakstri eftir breytingar á umferðarlögum frá því í fyrra. Tekinn þrisvar í röð fyrir fíkniefnaakstur Maður var handtekinn á þremur stöðum á landinu um helgina og á tveimur mismunandi bílum fyrir akstur undir áhrifum eiturlyfja. Í öll skiptin fundust á honum eiturlyf og í eitt skiptið þýfi. Sífellt fleiri teknir fyrir lyfjaakstur. Björgunarsveit var kölluð út til að aðstoða erlendan ferðamann sem hafði snúið ökkla á göngu í Esjunni í gær. Kviknaði í fjórhjóli björgunarsveitar þegar því var ekið á vettvang og brann það til kaldra kola. Engan sakaði. Ferðamaðurinn óskaði eftir aðstoð á þriðja tímanum og fór slökkvilið á vettvang til aðstoðar. Senda þurfti þá eftir björgunar- sveit til að hjálpa til við að flytja manninn. Á leið eftir Vestur- landsveginum kviknaði í fjórhjóli björgunarsveitarinnar og þurfti að kalla út dælubíl slökkviliðsins til að slökkva glóðirnar. Kviknaði í fjór- hjóli í akstri

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.