Fréttablaðið - 11.08.2007, Síða 24

Fréttablaðið - 11.08.2007, Síða 24
Í dag, klukkan sextán, verður Gall- erí Ágúst opnað með sýningu tveggja myndlistarmanna, en þeir eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Rakel Bernie. Stofnandi og eigandi gallerísins, Sig- rún Sandra Ólafsdóttir, er með opnun þess að láta fjögurra ára draum ræt- ast en hugmyndina fékk hún þegar hún var stödd á samtímalistamessu í Torri- no á Ítalíu. „Þarna voru samankomin um 200 gallerí alls staðar að úr heiminum og mér gafst tækifæri á að kynnast þess- um heimi og galleríistunum sem standa að baki honum,“ segir Sigrún. „Við veru mína á þessari messu virð- ist fræi hafa verið sáð í kollinn á mér. Ég fór á fullt í að skoða hvað væri að gerast í þessum málum hér á Íslandi – hvað listamenn væru að gera og hverj- ar þarfir markaðarins væru og ég sá að það var greinilega þörf á fleiri fagleg- um galleríum sem vinna með samtíma- list og samtímalistamönnum. Smám saman fór svo þessi hugmynd mín að vinda upp á sig og undirbúning- urinn um leið. Ég hef eftir þessa fyrstu messu farið á sams konar messur í Sviss, aðra á Ítalíu, í London og svo fór ég til Miami í Bandaríkjunum. Ég hef jafnframt fengið tækifæri til að vinna á þessum messum og með því kynnst þessum heimi afar vel. Á sama tíma hef ég svo stundað nám í listfræðum svo það má með réttu kalla þetta góðan undirbúning,“ segir Sigrún og hlær. Sigrún ákvað að vel skyldi vanda til verksins og fékk því ítalska arki- tektinn Massimo Santanicchia til þess að hanna sýningarsalinn, en sá hefur unnið og starfað hérlendis til margra ára og kennir meðal annars í Listahá- skóla Íslands. „Rýmið tókst alveg ótrúlega vel og listamennirnir sem ætla að vígja það hafa margoft haft á orði hvað verkin njóti sín vel í lýsingunni og á þessum veggjum,“ segir hún. Galleríið verður opnað í dag með sýningu þeirra Ásdísar Sifjar Gunnars- dóttur og Rakel Bernie, Fenómena, en báðum listamönnunum hefur orðið vel ágengt á sviði samtímalistar til þessa. „Þær eru að mörgu leyti ólíkir lista- menn enda eru þær hvor af sínu þjóð- erninu og svolítill aldursmunur á milli þeirra líka, en á sama tíma er sitthvað sem tengir þær,“ segir Sigrún Sandra og bendir um leið á orð bandaríska sýningarstjórans, Mariangelu Capuzzo, sem segir þær Ásdísi og Rakel báðar vinna með hið hversdagslega og vefja það ævintýra- og yfirnáttúrublæ. Gallerí Ágúst er á Baldursgötu 12, beint á móti veitingastaðnum Þremur Frökkum og verður opið frá miðviku- degi til laugardags milli klukkan tólf og fimm og eftir samkomulagi. Bæjarhátíð Þorlákshafnar, Hafnardagar, hófst á fimmtudaginn og stendur fram á sunnudag. Bæjar- búar munu gera margt til að gleðja sig og aðra. Klukkan 11.00 í dag er dorgveiðikeppni á Suður- garði. Handverksmark- aður verður við Ráðhús Ölfuss þar sem hægt er að festa kaup á ýmissi list, humar og harðfiski. Ljósmyndasýning er í Ráðhúsinu þar sem sýnd- ar eru myndir frá Þorláks- höfn teknar árið 1911. Hjalti Úrsus stjórnar keppni klukkan 16.00 um titilinn Hafnartröllið. Að kvöldi laugardags verður varðeldur með fjöldasöng og loks dans- leikur með hljómsveitinni Ingó og gaurunum. Á sunnudeginum geng- ur Karl Sigmar Karlsson um götur Þorlákshafnar og rifjar upp gamla daga. Auk þess verður hægt að fara í litboltakeppni alla helgina á túninu við póst- húsið. Nánari upplýsingar er að finna á síðunni www.hafn- ardagar.is Hafnardagar í Þorlákshöfn „Ég loka augunum eitt andartak með rit- vélina fyrir framan mig. Tæmi hugann og bíð þolinmóð og þá, eins greinilega og ef ég horfði á þau með eigin augum, birt- ast börnin, persónurnar í huga mér. Svo horfi ég á þau lifna við, hreyfa sig, tala, hlæja… beint fyrir framan mig. Þetta er eins og að hafa lítið sýningartjald í hugan- um. Svo skrifa ég það sem ég sé og heyri á ritvélina mína.“ Auðjöfurinn Andrew Carnegie andast 50 ára afmæli 14. ágúst. Valdimar Þór Haraldsson verður með opið hús Í Ölfusborgum 11. ágúst. Vinir og ætting jar velkomnir. Ástkær bróðir, Óli H. Karlsson (f. 1935), frá Siglufirði, Snorrabraut 32, andaðist á líknardeild Landspítala á Landakoti laugar- daginn 28. júlí. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Landspítala-háskóla- sjúkrahúsi. Ragnar Karlsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Guðrúnar Elísabetar Guðmundsdóttur Frá Stóra-Nýjabæ, Skógarbæ, Árskógum 2, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar og LSH fyrir ummönnun Guðrúnar svo og sr. Bolla Pétri Bollasyni og allra annarra sem komu að útför hennar. Ómar Heiðberg Ólafsson Kristín Þórarinsdóttir Bragi Hjörtur Ólafsson Guðmundur Kristinn Ólafsson Ingibjörg Sigurðardóttir S. Stefán Ólafsson Jóhanna Guðbrandsdóttir Olga Ólafsdóttir Sigurður Jónsson Sólveig Ólafsdóttir Trausti Hermannsson Sigurlín Ólafsdóttir Ólafur Valur Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Péturs G. Jónssonar vélvirkja, Holtagerði 13, Kópavogi, sem lést 12. júlí síðastliðinn. Margrét Veturliðadóttir Jóna Lilja Pétursdóttir Jón Pétur Pétursson Kristín Guðmundsdóttir Gunnar Pétursson Lísbet Grímsdóttir Katla Þorsteinsdóttir Þorlákur Pétursson Sigríður Sigmarsdóttir Margrét P. Cassaro Sigurgeir Gunnarsson afabörn, langafabörn og systkini. lést mánudaginn 06. ágúst og verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju þriðjudaginn 14. ágúst. Fyrir hönd systur og annarra aðstandanda. Berta J. Einarsdóttir Elskulegur föðurbróðir minn, Sverrir Jónsson Hvammi, Húsavík, Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Bára Sævaldsdóttir frá Sigluvík, lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri 5. ágúst. Útför hennar fer fram frá Svalbarðskirkju miðviku- daginn 15. ágúst kl. 11.00. Sævaldur Valdimarsson Vigdís Halldórsdóttir Smári Fanndal Einarsson Bára Sævaldsdóttir Haukur Eiríksson Steinunn Jóna Sævaldsdóttir Stefán Einar Jónsson Valdimar Stefán Sævaldsson og langömmubörn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.