Fréttablaðið - 11.08.2007, Blaðsíða 38
2 sport
DRAUMALIÐIÐ
Petr Chech
Chelsea
Gary Neville
Man Utd.
Ashley Cole
Chelsea
John Terry
Chelsea
Nemanja Vidic
Man Utd.
Cristiano
Ronaldo
Man Utd.
Arjen
Robben
Chelsea
Steve Gerrard
Liverpool
Frank Lampard
Chelsea
Wayne Rooney
Man Utd
Didier Drogba
Chelsea
» GUÐJÓN ÞÓRÐARSON, þjálfari Skagamanna,
er eini Íslendingurinn sem hefur þjálfað í ensku knatt-
spyrnunni. Guðjón stýrði Stoke, Barnsley og Notts County
með hléum frá árinu
1999 til 2005. Hann kom
Stoke upp í 1. deild árið
2001 og vann neðri-
deildarbikarinn árið
2000. Sport fékk Guðjón
til að velja draumalið sitt
í ensku úrvalsdeildinni.
Í liði Guðjóns eru sex
leikmenn frá Chelsea,
fjórir frá meisturum
Manchester United og einn frá Liverpool. Sex Englending-
ar eru í liðinu, einn Tékki, einn Serbi, einn Hollendingur,
einn Portúgali og einn frá Fílabeinsströndinni.
„Þetta er feikiöflugt lið sem ég myndi treysta til að vinna
sjálfa fernuna, deildina, meistaradeildina, bikarinn og
deildarbikarinn. Svo einfalt er það,” segir Guðjón.
Í var Ingimarsson er kominn í hóp örfárra íslenskra íþróttamanna sem þéna yfir 200 milljónir á ári fyrir
atvinnu sína. Hann skrifaði undir
nýjna þriggja ára samning við
Reading fyrir skömmu og færir
sá samningur honum rúmlega
200 milljónir í árslaun. Ekki er
nema ár síðan Ívar fram-
lengdi samning sinn við
félagið síðast en hann fær
nú ríflega launahækkun.
Það eru aðeins Eiður Smári
Guðjohnsen hjá Barcelona
og Hermann Hreiðars-
son hjá Portsmouth sem
þéna meira en Ívar en
heimildir Sports herma
að hvorugur þeirra fái
undir 400 milljónum í
árslaun.
Ívar er í miklum
metum hjá forráða-
mönnum Reading enda
hefur hann verið einn af
lykilmönnum liðsins í ævin-
týralegum uppgangi þess á
undanförnum árum. Hann lék
lykilhlutverk þegar Reading
fór upp í ensku úrvalsdeild-
ina tímabilið 2005 til 2006 og
var síðan máttarstólpi í lið-
inu sem hafnaði öllum að
óvörum í áttunda sæti
úrvalsdeildarinnar á fyrsta
tímabili félagsins í deild-
inni frá upphafi. Ívar lék
hvern einasta leik með lið-
inu síðasta vetur og var
kjörinn leikmaður ársins af
stuðningsmönnum þess.
Ívar vildi ekki tjá sig um launamál sín
þegar Sport ræddi við hann en Ólafur Garð-
arsson, umboðsmaður hans, sagði í samtali við
Sport að samningurinn væri afar góður og
fæli í sér töluverða hækkun frá samningnum í
fyrra.
» Arnar Gunnlaugsson
Arnar spilaði með
Leicester í ensku úrvals-
deildinni í þrjú og hálft
keppnistímabil á árunum
1999 til 2002. Arnar, sem kostaði tvær
milljónir punda frá Bolton, spilaði 30
leiki fyrir Leicester og skoraði þrjú mörk.
» Eiður Smári Guðjohnsen
Eiður Smári spilaði
með Chelsea í sjö
tímabil á árunum
2000 til 2006 og varð
tvívegis enskur meist-
ari með liðinu. Hann
kostaði fimm milljónir punda frá Bolt-
on og skoraði 54 mörk í 186 leikjum
fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.
» Guðni
Bergsson
Guðni er langleikja-
hæsti Íslendingur-
inn í ensku úrvals-
deildinni. Hann
lék alls 342 leiki fyrir Tottenham
og Bolton á ferli sem náði frá árinu
1988 til 2003. Hann skoraði 24 mörk í
þessum leikjum.
» Jóhannes Karl
Guðjónsson Jóhann-
es Karl lék tvö tímabil í
ensku úrvalsdeildinni,
fyrst 2002-2003 með
Aston Villa og síðan árið eftir með
Wolves. Hann lék 11 leiki fyrir Aston Villa
og skoraði tvö mörk og 11 leiki fyrir Wol-
ves. Hann var í láni frá spænska liðinu
Real Betis í báðum tilvikum.
» Jóhann B.
Guðmundsson
Jóhann B. lék með
Watford í ensku úrvals-
deildinni veturinn 1999
til 2000. Hann spilaði níu
leiki með liðinu.
» Lárus Orri
Sigurðsson
Lárus Orri lék 29 leiki
með West Brom í
ensku úrvalsdeildinni
tímabilið 2002 til 2003
sem var eina leiktíðin á ellefu ára ferli
hans í Englandi í úrvalsdeildinni.
» Þórður Guðjónsson
Þórður lék með Derby
í ensku úrvalsdeildinni
tímabilið 2000 til 2001
þegar hann var lánaður
frá Las Palmas. Hann
lék tíu leiki með liðinu
og skoraði eitt mark.
ÞEIR HAFA LÍKA SPILAÐ
Í ÚRVALSDEILDINNI YFIR 200 MILLJÓNIR
Í ÁRSLAUN
Varnarmaðurinn sterki ÍVAR INGIMARSSON gerir það gott með
Reading í ensku úrvalsdeildinni. Hann var verðlaunaður í sumar
með nýjum þriggja ára samningi sem færir honum rúmlega 200
milljónir í árslaun. EFTIR ÓSKAR HRAFN ÞORVALDSSON
Nafn: Ívar Ingimarsson
Aldur: 29 ára
Hæð: 183 cm
Þyngd: 80 kg
Félög í Englandi: Torqu-
ay, Brentford, Wolves,
Brighton og Reading
Leikir/mörk í úrvals-
deild: 38/2
Landsleikir: 25
LAUNAHÆSTU LEIKMENN
ÚRVALSDEILDARINNAR
John Terry, Chelsea 829,6
Michael Ballack, Chelsea 767,5
Anryi Shevchenko, Chelsea 767,5
Steven Gerrard, Liverpool 760,9
Cristiano Ronaldo, Man. Utd 754,4
Michael Owen, Newcastle 697
Fernando Torres, Liverpool 565,8
Didier Drogba, Chelsea 565,8
*tölur eru í milljónum króna.
16
MILLJÓNIR er upphæðin sem John Terry, fyrirliði
Chelsea og enska landsliðsins, fær í vikulaun frá
Chelsea eftir að hann skrifaði undir nýjan fjögurra ára
samning við ensku bikarmeistarana fyrir skömmu.