Fréttablaðið - 11.08.2007, Side 30
S
tephen Harper, forsæt-
isráðherra Kanada, er
nýkominn úr þriggja
daga ferð um heim-
skautaslóðir þar sem
hann ítrekaði harðlega
að Rússar ættu engan veginn einir
tilkall til norðurskautsins.
Ferð Harpers er farin í beinu
framhaldi af leiðangri Rússa til
norðurskautsins, þar sem þeir
sendu niður kafbát og komu fyrir
rússneska fánanum í títanhylki á
hafsbotninum.
Rússar hafa allt frá árinu 2001
sagst eiga tilkall til stórs hafsvæð-
is á norðurskautinu, en ekkert
annað ríki hefur viðurkennt þær
kröfur, og Kanadamenn hafa
brugðist hart við rússneska leið-
angrinum.
„Rússar sendu kafbát til að setja
lítinn fána á hafsbotninn. Við send-
um forsætisráðherra okkar til að
ítreka fullveldisrétt Kanada,“
hafði AP fréttastofan eftir ónafn-
greindum embættismanni í Kan-
ada.
Þótt ferð Harpers á heim-
skautaslóðirnar í Kanada hafi
verið skipulögð fyrir löngu, þá
hefur norðurskautsleiðangur
Rússa gefið þessari ferð aukið
vægi og Harper fór ekki dult
með að Kanadamenn muni í engu
gefa eftir í deilunum við Rússa.
Meðal þess sem Kanadamenn
ætla gera á næstunni er að opna
stóra höfn fyrir herskip á norð-
urströnd Kanada.
Á morgun ætla síðan Danir að
senda af stað leiðangur til norður-
skautsins, skipaðan 40 vísinda-
mönnum sem ætla að gera ýmsar
rannsóknir á svæðinu og fara áður
ókannaðar slóðir.
Danir ætla að sigla frá Sval-
barða, sem tilheyrir Noregi, á
sænskum ísbrjót sem heitir Óðinn
og njóta aðstoðar frá kjarnorku-
knúnum rússneskum ísbrjót sem
er nógu kraftmikill til að geta
brotist í gegnum hart íslagið sem
sums staðar er allt að fimm metra
þykkt.
„Enginn hefur áður siglt um
þetta svæði. Skipum hefur verið
siglt meðfram ísjaðrinum en eng-
inn hefur farið þarna inn,“ segir
leiðangursstjórinn Christian
Marcussen í viðtali við AP.
Auk Rússlands, Kanada og Dan-
merkur gera Bandaríkin og Nor-
egur einnig tilkall til hafsvæðis og
þar með hafsbotnsins við norður-
skautið. Deilur þessara ríkja um
svæðið hafa staðið árum og ára-
tugum saman.
Til dæmis gera bæði Danir og
Kanadamenn tilkall til Hanseyju,
sem er aðeins tæplega 1300 fer-
kílómetrar að stærð, og er norð-
austur af Grænlandi. Þær deilur
hafa staðið áratugum saman. Árið
1984 gerði Tom Høyem, þáverandi
Grænlandsmálaráðherra Dan-
merkur, sér til dæmis ferð til
Hanseyju og setti þar niður fána-
stöng með danska fánanum.
Samkvæmt alþjóðalögum er norð-
urpóllinn alþjóðlegt hafsvæði sem
ekkert ríki á tilkall til. Fimm ríki
eiga þó 200 sjómílna efnahagslög-
sögu út frá ströndum umhverfis
norðurpólinn.
Rússar byggja kröfur sínar hins
vegar á því að Lomonosov-hrygg-
urinn, stór neðansjávarhryggur
sem teygir sig þvert yfir norður-
skautið frá Síberíu til Kanada og
Grænlands, sé í raun framlenging
á landgrunni Síberíu.
Tilgangurinn með ferð Rússa til
norðurskautsins var meðal annars
sá að gera ýmsar mælingar og
kortleggja betur Lomonosov-
hrygginn til þess að renna stoðum
undir kröfur sínar.
Kanadamenn og Danir mótmæla
hins vegar þessum rökum og
benda á að á hinum enda hryggjar-
ins sé hann beint framhald af land-
grunni Kanada annars vegar og
Grænlands hins vegar. Þess vegna
eigi þeir jafnmikið tilkall til hans
og Rússar.
Samkvæmt bandarískri rannsókn
er talið að undir hafsbotni norður-
skautsins kunni að leynast fjórð-
ungur af allri þeirri olíu og gasi,
sem enn er ófundið. Það munar
um minna, og nú virðist kapp-
hlaupið um þessar auðlindir vera
að hefjast fyrir alvöru.
Hlýnun jarðar á stóran þátt í
því að þessar deilur koma upp
núna, þar sem ísinn hefur bráðnað
hraðar en menn áttu von á. Búist
er við því að innan fárra áratuga
verði hægt að halda uppi reglu-
legum siglingum norður fyrir
Kanada og víðar um hafið við
norðurskautið, og um leið verður
auðveldara að vinna auðlindir úr
hafsbotninum.
Artur Chilingarov, leiðangursstjóri
Rússa í norðurskautsferðinni, er
tæplega sjötugur, þekktur heim-
skautakönnuður í Rússlandi og
jafnframt varaforseti Dúmunnar,
neðri deildar rússneska þingsins.
Rússar virðast stoltir af þessu
nýjasta afreki hans og meðal ann-
ars tók Vladímír Pútín Rússlands-
forseti vel á móti Chilingarov og
þakkaði honum framtakið.
„Mér er fjárans sama hvað allir
þessir útlendu stjórnmálamenn
segja um þetta,“ sagði Chiling-
arov um gagnrýni Kanadamanna
um daginn. „Rússland hlýtur að
sigra. Rússland hefur allt sem
þarf til að ná sigri. Norðurheim-
skautið hefur alltaf verið rúss-
neskt.“
Rússneski utanríkisráðherrann,
Sergei Lavrov, segir ennfremur
ekki nema sjálfsagt að Rússar hafi
sett niður fána á norðurpólnum:
„Alltaf þegar könnuðir hafa kom-
ist á stað sem enginn annar hefur
kannað, þá setja þeir niður fána,“
sagði hann. „Þannig var þetta gert
á tunglinu.“
Aðdráttarafl norðurskautsins
Rússar vöktu heldur betur athygli umheimsins í síðustu viku þegar þeir
komu fyrir fána á hafsbotni norðurpólsins og gerðu þar tilkall til eignar-
halds. Kanadamenn voru snöggir til að mótmæla og núna um helgina ætla
Danir í leiðangur til norðurpólsins. Bandaríkjamenn og Norðmenn vilja líka
sinn skerf í auðlindunum sem hlýnun jarðar gerir æ aðgengilegri.