Fréttablaðið - 11.08.2007, Qupperneq 34
Ljósmyndarinn Sigurveig
Pálmadóttir er nú á ævintýra-
legu þyrluferðalagi um megin-
land Ameríku sem áætlað er
að ljúki í september.
Sigurveig Pálmadóttir ljósmynd-
ari er um þessar mundir á þyrlu-
ferðalagi um meginland Ameríku
ásamt eigimanni sínum Willem
Meiners, sem er fararstjóri ferð-
arinnar og flugmanninum Stephan
Goldberg. Óhætt er að segja að
þau hafi lent í hverju ævintýrinu á
fætur öðru og oftar en ekki hefur
bjartsýnin komið að góðum
notum.
„Það hefur stundum kostað
okkur tíma og erfiði að finna elds-
neyti, sem inniheldur hvorki etan-
ol eða alkóhól,“ segir Sigurveig.
„Það hefur að meðaltali tekið þrjá
klukkutíma. Metið var átta klukku-
tímar í Perú. Við þurftum að keyra
meira en 200 kílómetra út fyrir
bæinn sem við lentum í áður en
rétt eldsneyti fannst.“
Þess utan segir Sigurveig ferða-
lagið að mestu leyti hafa gengið
vel, ef frá er talin öll pappírsvinn-
an sem hefur þurft að afgreiða til
að komast í gegn á flugvöllum. Þar
á Perú aftur metið. Til marks um
það urðu þau að bíða í heila sjö
klukkutíma áður en þau komust út
úr flugstöðinni til þyrlunnar, af
engri sýnilegri ástæðu.
En hvað skyldi hafa orðið til
þess að þau lögðu upphaflega af
stað? „Hugmyndin kviknaði þegar
við vorum á flugi yfir Flórída og
hugleiddum hvort hægt væri að
fljúga í kringum meginland Amer-
íku. Sáum að fyrst þyrfti að fljúga
til Alaska, þaðan til Panama, yfir
Panama-skurðinn og suður, þar til
á hjara veraldar væri komið.
Stuttu seinna lentum við til þess að
fá okkur hádegisverð og fundum
penní frá Panama á flugstöðvar-
gólfinu. Þá ákváðum við að fara.“
Ferðin hófst í Frederick í Mar-
yland 3. maí, flogið upp til Alaska
og svo niður Kaliforníu. Þegar
blaðamaður hafði samband við
Sigurveigu voru félagarnir
nýkomnir yfir miðbauginn við
Macapa í Brasilíu. Þau voru þá á
leið til Venesúela, þar sem ætlunin
var að snúa við.
Eins og fyrr segir hafa þau lent
í ýmsum ævintýrum á leiðinni,
þótt Sigurveigu finnist erfitt að
tiltaka einhverja hápunkta á ferða-
laginu. Henni finnst þó frábært að
hafa fengið að sjá alla þá framandi
staði sem á vegi þeirra hafa orðið
og segir sumt hafa komið á óvart.
Meðal annars að vesturströnd
Perú og norður Chile skuli að
mestu leyti vera eyðimörk og eins
að vetur skuli ríkja á þessum árs-
tíma í Suður-Ameríku þegar sumar
er á Íslandi.
„Fram undan verður síðan að
vega og meta það sem bæst hefur
við lífsreynsluna eftir ævintýrið,“
segir Sigurveig. „Finna leið til
þess að deila henni með öðrum og
sýna að aldrei er of seint að setja
sér háleit markmið. Svo ætla ég að
halda ótrauð áfram á vit nýrra
ævintýra, þegar þau knýja að
dyrum.“
Þess má geta að Sigurveig held-
ur úti bloggsíðunni www.helloc-
opter.org, þar sem hægt er að lesa
sér frekar til um ævintýri hennar.
Aldrei of seint að setja
sér háleit markmið
Ný og glæsileg svíta hefur verið
opnuð að Hótel Rangá, ásamt
tíu nýjum lúxusherbergjum.
Hótel Rangá stendur á bökkum
lygnrar ár, mitt á milli Hellu og
Hvolsvallar. Það er þekkt fyrir
afbragðs þjónustu bæði í gistingu
og mat og nú nýlega var 10 lúxus-
herbergjum bætt við þau 38 her-
bergi sem fyrir voru. Mestur ljómi
stafar þó af 74 fermetra svítu með
stóru ljósu baðkari í miðju rýmis-
ins sem opnuð var í sumar. Hún
gerir mikla lukku að sögn Friðriks
Pálssonar, eins eigenda hótelsins.
„Það sem við ætluðum okkur var
að búa til dálítið stóra svítu sem
jafnframt væri hlýleg. Ég tel að
það hafi tekist. Þær Sólveig Berg
Björnsdóttir og Ásdís Helga
Ágústsdóttir í YRKI arkitektar
leystu þetta verkefni snilldarvel
og við erum mjög ánægð með
útkomuna.“
Hótel Rangá er eitt af Icelanda-
irhótelunum. Það er búið 48 þægi-
legum herbergjum með hornbað-
körum á snyrtingum, veitingasal,
setustofu, ráðstefnusal og heitum
pottum utandyra. Ekki spillir
útsýnið með Heklu trónandi í
norðri.
Fyrir utan laxveiðimenn segir
Friðrik hótelið gera dálítið út á
brúðkaupsmarkaðinn, bæði hér
heima og erlendis. Stundum hafi
hluta af öðrum gangi hótelsins
verið lokað og svíta búin til þar
fyrir innan en nú séu slíkar bráða-
birgðalausnir úr sögunni. „Þennan
stutta tíma sem svítan okkar hefur
verið opin höfum við fengið góða
gesti í hana, bæði íslenska og
erlenda sem hafa ákveðið að láta
sér líða vel,“ segir hann.
Rómantík svífur yfir vötnum
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
tímapantanir í síma: 535-7700
Læknasetrið Mjódd, Þönglabakka 1
www.ferdavernd.is ferdavernd@ferdavernd.is
ferðavernd
Kr. 39.995
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2 - 11 ára í stúdíó/íbúð/herbergi í viku.
Kr. 49.990
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í stúdíó/
íbúð/herbergi í viku.
Þú bókar sæti og
4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir.
Súpersól til Búlgaríu
20. ágúst frá kr. 39.995
Golden Sands í Búlgaríu hefur sannarlega slegið í gegn hjá
Íslendingum. Terra Nova býður nú frábært tilboð til þessa
vinsæla sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra
strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika,
fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf. Þú bókar sæti
og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Allr
a s
íðu
stu
sæ
tin